Markaðsvirði veðsettra íslenskra hlutabréfa var 273 milljarðar króna í lok síðasta árs

Sam­an­lagt virði þeirra félaga sem skráð eru í Kauphöll Íslands jókst um rúm­lega þús­und millj­arða króna á síð­asta ári. Virði þeirra bréfa sem eru veð­sett hefur ekki verið hærra síðan fyrir hrun en hlut­falls­leg veð­setn­ing hefur ekki verið lægri frá 2017.

Eitt þeirra félaga sem var skráð á markað í fyrra, og hækkaði mikið í virði, er Síldarvinnslan.
Eitt þeirra félaga sem var skráð á markað í fyrra, og hækk­aði mikið í virði, er Síld­ar­vinnslan. Mynd: Nasdaq Iceland

Veð­setn­ing hluta­bréfa, oft kölluð gírun, jókst um 89,2 millj­arða króna á síð­asta ári og hefur aldrei verið meiri frá því að hluta­bréfa­mark­aður á Íslandi var end­ur­reistur eftir banka­hrunið. Alls var mark­aðsvirði veð­settra hluta­bréfa 272,6 millj­arðar króna um liðin ára­mót. Frá árs­lokum 2017, á fjórum árum, hefur mark­aðsvirði veð­setn­ing hluta­bréfa auk­ist um 163,8 millj­arða króna, eða 150 pró­sent.

Þetta má lesa út úr tölur sem Nasdaq Iceland, sem rekur Kaup­höll­ina hér á landi, birti í byrjun árs.

Nokkrar ástæður eru fyrir því að veð­setn­ing hluta­bréfa er að aukast. Fyrst má nefna að fleiri félög eru nú skráð á markað en voru í upp­hafi síð­asta árs, og munar þar mest um stórar skrán­ingar á Íslands­banka og Síld­ar­vinnsl­unni á síð­asta ári auk þess sem minni félög á borð við Play skráðu sig á First North mark­að­inn. Í öðru lagi hefur þátt­taka almenn­ings í hluta­bréfa­við­skiptum stór­auk­ist með þátt­töku hans í umfangs­miklum hluta­fjár­út­boðum í Icelandair á árinu 2020 og svo með útboð­inu í Íslands­banka í fyrra, þar sem útboðs­verðið reynd­ist langt undir mark­aðsvirði og þátt­tak­endur gátu leyst út umtals­verðan hagnað á nokkrum vikum.

[adspot]Í þriðja lagi hafa umsvif hluta­bréfa­sjóða sem eru opnir fyrir almennum fjár­festum auk­ist mikið, en eignir þeirra nær tvö­föld­uð­ust á síð­asta ári. Hluti þeirra er með heim­ild til að taka lán til að kaupa hluta­bréf.

Níu félög hækkuðu um meira en 50 prósent

Kjarninn greindi frá því á mánu­dag að gríð­ar­legar hækk­anir hafi orðið á virði bréfa í Kaup­höll­inni á síð­asta ári. Þannig hækk­aði virði bréfa allra félaga sem skráð eru á aðal­markað.

Alls hækk­uðu 15 félög á aðal­mark­aði um meira en 30 pró­sent á árinu og níu þeirra hækk­uðu um meira en 50 pró­sent. Arion banki, sem hækk­aði mest, jók mark­aðsvirði sitt um rúm­lega 100 pró­sent og Eimskip fylgdi fast á eftir með um 96 pró­sent hækkun.

Heild­ar­vísi­tala allra skráðra hluta­bréfa hækk­aði alls um 40,2 pró­sent á árinu 2021, heild­ar­við­skipti juk­ust í krónum talið um 77 pró­sent og í fjölda gerðra við­skipta um 79 pró­sent milli ára. Það hafa ekki verið gerð fleiri við­skipti með hluta­bréf á einu ári frá því fyrir banka­hrun, eða í 14 ár.

Eitt félag lækkaði, 25 hækkuðu

Eina félagið í Kaup­höll­inni sem lækk­aði á síð­asta ári var Solid Clouds, sem er skráð á First North mark­að­inn. Bréf í því félagi, sem skráð var á markað í júlí 2021, lækk­uðu um 26,6 pró­sent frá útboðs­gengi.

Þessi mikla hækk­un­ar­hrina er afleið­ing af því að ódýru fjár­magni hefur verið spýtt inn á fjár­mála­mark­aði af Seðla­bank­anum og rík­is­stjórn­inni sem við­bragð við kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Á meðal þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til er að vextir hafa lækkað niður í sögu­lega lága tölu, sveiflu­jöfn­un­ar­auki á eigið fé banka var afnumin um tíma og banka­skattur lækk­aður skarpt.

Virði skráðra bréfa jókst um meira en þúsund milljarða

Sam­an­lagt virði hluta­bréfa sem skráð eru í Kaup­höll­ina jókst fyrir vikið um rúm­lega eitt þús­und millj­arða króna á síð­asta ári og var 2.556 millj­arðar króna þegar því ári lauk. Ef horft er aftur til þess tíma þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn var að skella á fullum krafti á Ísland, í mars 2020, þá hefur virði hluta­bréfa hækkað um næstum 1.500 millj­arða króna, eða um 140 pró­sent.

[adspot]Þar telur að fjögur ný félög hafa verið skráð á markað, tvö á aðal­markað og tvö á First North, en mestu skiptir hin mikla hækkun sem orðið hefur á virði hluta­bréfa.

Fyrir vikið er hlut­fall veð­töku – mark­aðsvirði hluta­bréfa sem eru veð­sett deilt í heild­ar­mark­aðsvirði allra félaga – lágt þrátt fyrir að veð­taka í krónum hafi auk­ist umtals­vert. Raunar hefur hlut­falls­leg veð­taka, sem er nú 10,16 pró­sent, ekki verið lægri síðan sum­arið 2017, þegar hún var rétt undir tíu pró­sent.

Þegar horft er á veð­töku­hlut­fallið verður þó að taka til­lit til þess að líf­eyr­is­sjóðir eiga beint um 35 pró­sent af mark­aðsvirði allra skráðra félaga. Þær eignir eru óveð­settar enda standa inn­greiðslur og fjár­fest­inga­tekjur sjóð­anna undir fjár­fest­ingum hennar. Í síð­asta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika Seðla­banka Íslands, sem kom út í sept­em­ber í fyrra, sagði að bein veð­setn­ing hluta­bréfa í eigu ann­arra fjár­festa en líf­eyr­is­sjóða væri um 17 pró­sent.

Hund­ruð millj­arða flæða til hlut­hafa

Kaup­höllin tekur ekki lengur saman upp­lýs­ingar um hversu mikið félög skráð á mark­aði greiða sam­tals í arð eða nota til að kaupa eigin bréf til baka, og skila þannig fjár­munum til hlut­hafa sinna. Inn­herji, und­ir­vefur á Vísi sem fjallar um við­skipti, tók hins vegar saman upp­lýs­ingar um það skömmu fyrir ára­mót og sam­kvæmt þeirri úttekt greiddu félög skráð í Kaup­höll meira en 80 millj­arða króna út í arð og í end­ur­kaup á eigin bréfum á síð­asta ári. Það er aukn­ing upp á tæp­lega 50 millj­arða króna milli ára.

Í sömu úttekt kemur einnig fram að senni­legt sé að arð­greiðslur og end­ur­kaup auk­ist gríð­ar­lega á árinu 2022 og verði á bil­inu 150 til 200 millj­arðar króna.

Bara Arion banki, það félag sem jók virði sitt hlut­falls­lega mest á síð­asta ári, greiddi út 25,5 millj­arða króna til hlut­hafa sinna á fyrstu níu mán­uðum síð­asta árs og til­kynnti í haust að hann ætl­aði að greiða um og yfir 60 millj­arða króna til við­bótar í nán­ustu fram­tíð. Ef áform bank­ans ganga að fullu eftir er gert ráð fyrir því að hlut­hafar hans fái 87,9 millj­arða króna út úr honum frá byrjun árs 2020 og þar til útgreiðslu­ferl­inu er lok­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár