Pútín og Xi vilja styrkja strategískt samband sitt

Xi Jinping, forseti Kína, sækir Rússland heim. Forsetarnir hafa nú gefið út áætlanir um að styrkja strategískt samband sitt.

Vladimír Pútín, Rússlandsforseti
Vladimír Pútín, Rúss­lands­for­seti Mynd: EPA

Forsetar Rússlands og Kína gáfu í gær út tvær yfir­lýsingar um að ríkin tvö ætli sér að styrkja strategsískt samband sitt. Fyrri yfir­lýsingin er alhliða yfir­lýsing um áfram­haldandi strategíska samvinnu. Hin síðari er yfir­lýsing um að viðhalda stöðug­leika í heiminum. Þetta kemur fram á kínverskum ríkis­fjölmiðli.

Samkvæmt fréttinni benti Xi á að óstöðug­leiki ríki í alheims­stjórnmálum. Því sé styrking samskipta Rússlands og Kína söguleg köllun sem byggi á strategísku vali ríkjanna tveggja. Enn fremur ætli ríkin tvö að auka efnahagsleg tengsl sín með fjár­festingum og aukinni samvinnu í orkumálum, flugmálum og land­búnaði.

Vladimír Pútín, Rúss­lands­forseti, sagðist fagna heimsókn Xi til Rússlands, þar sem Xi sé gamall vinur sinn. Pútín sagði enn fremur að Kína og Rússland verði að berjast gegn einangrunar­hyggju.

Áfram­haldandi vinnu undir Belti og braut verði einnig haldið áfram fyrir efnahags­lega framþróun, að því kemur í fréttinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár