Spiegel: Trump er lygari og kynþáttahatari sem verður að hætta

Þýska tímaritið Der Spiegel sparar ekki stóru orðin um Donald Trump forseta Banda­ríkjanna og segir hann algjör­lega vanhæfan til að gegna hlutverki sínu.

Í leiðara þýska tíma­ritsins Der Spiegel, ensku­mælandi útgáfunnar, er Donald J. Trump Bandaríkja­forseti harðlega gagn­rýndur og hann sagður vanhæfur til að gegna þessu stærsta pólitíska embætti heimsins. Í leið­aranum segir meðal annars að Trump sé lygari og kynþátta­hatari, og hann búi ekki yfir þeim eigin­leikum sem forseti Banda­ríkjanna þurfi að búa yfir, til að geta gegnt starfinu. 

Þá er hann sagður „svindlari“ sem hafi verið staðinn að ósannindum í „mörg hundruð skipti“. Heimurinn horfi nú upp á bandarískan harmleik með hann í forseta­embætti, og að nú sé nóg komið.

Óhætt er að segja að öll spjót standi á Trump þessa dagana. Sérstakur saksóknari hefur verið skipaður til að rannsaka tengsl framboðs Trumps við Rússa, og þá ekki síst samskipti hans við James Comey, sem hann rak úr embætti yfirmanns alríkis­lögreglunnar FBI fyrir skömmu.

Í minnis­blaði Comey segir að Trump hafi þrýst á hann um að hætta rannsókn á tengslum Michael Flynn við Rússa, en Flynn hætti í stöðu þjóðar­öryggis­ráðgjafa um miðjan febrúar, eftir 20 daga í embætti, eftir að ljóst var að hann hafði sagt vara­forsetanum Mike Pence ósatt um samskipti hans við Sergey Kislyak, sendi­herra Rússlands í Washington DC.

Flynn ræddi meðal annars um viðskipta­þvinganir gagnvart Rússum við Kislyak.

Í gær samþykkti James Comey að koma fyrir þingnefnd Banda­ríkjaþings til að svara spurningum nefndar­manna um rannsókn FBI á tengslum við Rússa og samskipti hans við Trump. Yfirheyrslan verður opin og hún sýnd beint í sjónvarpi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár