„Það var mjög óheppilegt að náinn ættingi hafi verið í þessum kaupendahópi“

Forsætis­ráðherra segir að ekki hafi verið ákveðið hvenær Banka­sýsla ríkisins verði lögð niður og hvaða fyrir­komulag taki við þegar selja á hlut í ríkis­banka. Hún hafði ekki séð það fyrir að faðir Bjarna Benedikts­sonar yrði á meðal kaupenda í ríkis­banka.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra, á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í morgun.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra, á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í morgun. Mynd: Skjáskot/Alþingi

„Það er auðvitað mjög óheppilegt að náinn ættingi hafi verið í þessum kaupenda­hópi. Og það vekur kannski spurningar vegna þess að við búum í mjög litlu samfélagi þar sem við höfðum ekki séð fyrir að þarna gætu slík náin tengsl verið uppi á borðum í þessum kaupenda­lista.“

Þetta sagði Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra á fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar í morgun þegar hún var spurð, af Sigmari Guðmunds­syni þingmanni Viðreisnar, hvort það væri í lagi að ráðherra gæti tekið ákvörðun um sölu ríkis­eignar þegar náinn ættingi viðkomandi væri á meðal kaupenda.

Þar vísaði Sigmar í að á meðal þeirra 207 fjárfesta sem fengu að kaupa 22,5 prósent hlut ríkisins í Íslands­banka í mars síðastliðnum í lokuðu tilboðsútboði var faðir Bjarna Benedikts­sonar, fjármála- og efnahags­ráðherra, en hann ber ábyrgð á sölu ríkis­eigna.

Katrín var mætt fyrir nefndina vegna setu sinnar í ráðherra­nefnd um efnahagsmál til að ræða skýrslu Ríkis­endur­skoðunar um sölu­ferlið, þar sem fram kom að fjölmargir annmarkar hafi verið á sölu­ferlinu. Á fundinum sagði hún að fjármála- og efnahags­ráðherra bæri ábyrgð gagnvart sölu­ferlinu, að rökstuðningur fyrir framkvæmd þess væri málefna­legur og byggði á skýrum forsendum. „Það er hin almenna rannsóknar­skylda sem ráðherrann hefur í þessu máli, en ekki að fara yfir 150-200 fjárfesta og kanna þar hver tengsl þeirra eru. En að því sögðu þá var mjög óheppilegt að þarna hafi verið um þessi nánu tengsl að ræða.“

Hún hafi ekki séð að lög hafi verið brotin við söluna á hlut íslenska ríkisins og telur fjármála- og efnahags­ráðherra meðal annars hafa axlað pólitíska ábyrgð með því að biðja um gerð úttektar Ríkis­endur­skoðunar.

Liggur ekki fyrir hvenær Bankasýslan verður lögð niður

Banka­sýsla ríkisins var harðlega gagnrýnd í skýrslu Ríkis­endur­skoðunar fyrir framkvæmdina á sölunni á hlut ríkisins í Íslands­banka, en forsvars­menn hennar hafa hafnað þeirri gagnrýni og varið sig af hörku, meðal annars með birtingu athugasemda á heimasíðu sinni.

Ríkis­stjórnin ákvað hins vegar 19. apríl, tæpum mánuði eftir söluna og mörgum mánuðum áður en skýrsla Ríkis­endur­skoðunar kom út, að leggja niður stofnunina og setja alla frekari sölu á hlutum í Íslands­banka á ís á meðan að á rannsókn Ríkis­endur­skoðunar og Fjármála­eftirlits Seðla­banka Íslands á ferlinu stóð.

Katrín sagði á fundinum í dag þeir annmarkar sem höfðu verið stað­festir af Ríkis­endurskoðun, en höfðu líka verið til umræðu í ríkis­stjórn í vor, hefðu leitt í ljós þörfina fyrir endur­skoðun á laga­umgjörð og stofnana­fyrir­komulagi. „Það var niður­staða okkar að eðlilegt væri að leggja niður Banka­sýsluna og leggja til nýtt fyrir­komulag. Við erum ekki búin að leggja til nýtt fyrir­komulag.“

Þegar um sé að ræða sölu á almanna­eign sé ekki nægjanlegt að hafa í huga það sem tíðkist á almennum mörkuðum. Það þurfi að hafa í huga önnur sjónarmið. „Þess vegna til dæmis lagði ég á það mikla áherslu að þessi færi listi yrði birtur, sem var ekki ráðgjöf Banka­sýslunnar, á sínum tíma. Kannski má segja að það hafi valdið mér verulegum vonbrigðum að skynja þá afstöðu gagnvart sölu á almanna­eign, að það væri ekki vlji til þess að upplýsa um þennan kaupenda­lista. Mér fannst það segja mér að þetta fyrir­komulag þarfnaðist verulegrar endur­skoðunar. En hvernig það nákvæmlega verður ætla ég ekki að segja til um fyrr en við erum komin með einhverja mótaða tillögu um það.“ Það sé þó alveg á hreinu að það þurfi að skýra betur aðkomu Alþingis og tryggja betur nauðsynlegt gagnsæi sem þurfi að vera til staðar þegar almanna­eignir eru seldar.

Listinn birtur gegn vilja Bankasýslunnar

Kaupenda­listinn yfir þá 207 aðila sem fengu að kaupa hlut í Íslands­banka í mars var birtur 6. apríl.

Þar kom í ljós að margir þeirra voru mun minni fjár­festar en flestir höfðu talið að ættu að fá að taka þátt í ferlinu. Þeir sem keyptu fyrir minna en 30 millj­­ónir króna voru 59 tals­ins. Þeir sem keyptu fyrir minna en 50 millj­­ónir voru 79.

Á meðal kaup­enda voru síðan faðir Bjarna Benedikts­sonar, fjár­­­­­mála­- og efna­hags­ráð­herra. Bjarni sagði í kjölfarið að hann hafi ekki vitað um þátttöku föður síns, Benedikts Sveins­sonar, fyrr en hann fékk kaupenda­listann afhentan.

Á meðal annarra sem var að finna á listanum voru starfs­­­menn sölu­ráð­gjafa útboðs­ins, fjöl­margir aðilar sem voru fyr­ir­­­ferða­­­miklir í banka­­­rekstri fyrir banka­hrun, fólk í virkri lög­­­­­reglu­rann­­­sókn, útgerð­­­ar­eig­endur með enga aug­ljósa sér­þekk­ingu á fjár­mála­starf­semi, skamm­tíma­fjár­festar sem höfðu keypt og selt aftur hratt eftir frumút­boðið og ein­stak­l­ingar sem fáum hafði fyrirfram dottið í hug að teld­ust vera fag­fjár­­­­­fest­­­ar. Sá sem keypti fyrir lægstu upp­­hæð­ina keypti fyrir um 1,1 millj­­ón króna.

Í skýrslu Ríkis­endur­skoðunar var sölu­­­ferlið á Íslands­­­­­banka gagn­rýnt harka­­­lega. Stofn­unin sagði fjöl­þætta ann­­­marka hafa verið á söl­unni. Í nið­­­ur­­­stöðu hennar sagði að standa hefði átt betur að söl­unni og hægt hefði verið að fá hærra verð fyrir hlut­inn í bank­an­­­um. Ákveðið var að selja á und­ir­verði til að ná fram öðrum mark­miðum en lög­­­bundn­­­um. Hug­lægt mat hafi ráðið því hvernig fjár­­­­­festar voru flokk­aðir og orð­­­spor­s­á­hætta af sölu­­­ferl­inu var van­­­met­in.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár