Fjárfestar „óttast“ hækkun vaxta og verðbólgu

Þrátt fyrir að hlutabréfa­markaðir hafi sýnt rauðar tölur lækkana þá hafa hagtölur í heims­búskapnum verið að batna verulega. Atvinnu­leysi í Banda­ríkjunum mælist nú 4,7 prósent, sem er sögulega með allra lægsta móti.

Mikil lækkun á verði hluta­bréfa í Banda­ríkjunum á síðustu tveimur viðskipta­dögum, hefur komið mörgum á óvart. Í Wall Street Journal segir að það séu einkum væntingar um hækkun vaxta og verðbólgu sem séu helsta skýringin á því þessari lækkun.

Í gær lækkaði S&P 500 vísitalan um 4,1 prósent, en dagurinn í gær var versti dagurinn á markaði í Banda­ríkjunum - þegar allir eigna­flokkar eru teknir saman - frá því árið 2011.

Markaðir lækkuðu einnig mikið í Evrópu og Asíu, en Nikkei vísitalan japanska lækkaði um 4,7 prósent.

Ekki er langt síðan einn yfirmanna Goldman Sachs bankans, Peter Oppenheimer, lét hafa eftir sér í viðtali við CNBC að margt benti til þess að ákveðin „leið­rétting“ yrði á hlutabréfa­verði á mörkuðum á næstunni.

Sagði hann útreikninga og haglíkön Goldman Sachs sýna að markaðir væru orðnir of bólgnir og að þegar slík staða hefði komið upp í gegnum árin, þá hefði verð lækkað hratt um allt að 13 prósent, yfir fjögurra mánaða tímabil.

Á undan­förnum tveimur dögum hefur lækkunin hins vegar verið töluvert skörp, eða um rúmlega 7 prósent.

Búist er við því að stýri­vextir í Banda­ríkjunum fari hækkandi á næstunni, en þeir eru nú 1,5 prósent og voru hækkaðir í desember síðastliðnum um 0,25 prósentu­stig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár