Starfsmenn voru að meðaltali 4,5 sekúndur að slá inn kennitöluna í mötuneytinu

Sérfræðingar borgarinnar fylgdust með starfs­mönnum stjórn­sýslunnar í borginni skammta sér á diska og komust að þeirri niður­stöðu að tillaga fulltrúa Sjálfstæðis­flokks um stafræna umbreytingu í mötu­neytum svaraði vart kostnaði.

Það er ekki talið svara kostnaði að fara í stafræna umbreytingu við skráningu á máltíðum borgarstarfsmanna.
Það er ekki talið svara kostn­aði að fara í staf­ræna umbreyt­ingu við skrán­ingu á mál­tíðum borg­ar­starfs­manna. Mynd: Pexels

Stafrænt ráð Reykja­víkurborgar hafnaði á fundi sínum í síðustu viku tillögu borgar­fulltrúa Sjálfstæðis­flokks um að ráðist yrði í „stafræna umbreytingu“ við skráningu á máltíðum starfs­manna Reykja­víkurborgar í ráðhúsinu og á Höfða­torgi, en tillagan var lögð fram í borgar­ráði í september.

Ráðist var í úttekt á vegum þjónustu- og nýsköpunar­svið vegna tillög­unnar og var það mat sviðsins að það svaraði tæplega kostnaði að ráðast í þetta verkefni, auk þess sem að helsti flösku­hálsinn sem myndaðist í mötuneytunum væri ekki vegna skráningar máltíða heldur þess tíma sem það tæki starfs­menn borgarinnar að raða matvælum á diska sína.

Í tillögu sjálfstæðis­manna var vakin athygli á því að í mötuneytunum væri „búnaður, sem ætlað er að lesa af aðgangs­kortum starfs­fólks, og skrá þannig máltíðir þeirra með stafrænum hætti“, en umræddur búnaður hefði ekki virkað í mörg ár.

„[Þ]arf starfs­fólk því að slá kenni­tölur sínar inn í tölvuna með hand­virkum hætti í hvert sinn, sem það fær sér máltíð, eða skrifa jafnvel þessar upplýsingar á pappír, sem liggur frammi í mötuneytunum í þessu skyni. Markmið tillög­unnar er að flýta fyrir afgreiðslu í mötuneytunum þar sem núverandi fyrir­komulag leiðir til tafa og biðraða­myndunar. Úrbætur varðandi þetta einfalda atriði myndi einnig eflaust auka trúverðug­leika Reykja­víkurborgar gagnvart starfs­fólki sínu og gera það jákvæðara varðandi þá stafrænu vegferð, sem borgin er á,“ sagði í tillögu fulltrúa Sjálfstæðis­flokks, sem vakti nokkra athygli er hún var lögð fram.

Helsti flöskuhálsinn þar sem fólk var að skammta sér

Sem áður segir var ráðist í úttekt vegna tillög­unnar og segir í umsögn þjónustu- og nýsköpunasviðs borgarinnar að fulltrúar verk­efnaráðs hafi farið í vettvangs­rannsókn í mötuneytin tvö í þessu skyni dagana 19.-25. september.

„Tíma­mælingar í mötuneyti leiddu í ljós að meðaltími við innslátt starfs­fólks á kennitölu sinni var 4,5 sekúndur fyrir hvern starfs­mann. Starfs­maður þarf í kjölfarið að velja á snertiskjá þá hluti sem viðkomandi er að versla sér í mötuneytinu og samþykkja greiðslu. Síðan þarf starfs­maðurinn að fylgja röð annars starfs­fólks í sömu erinda­gjörðum og raða matvælum á diskinn sinn. Við athugun á ferlinu kom í ljós að helsti flösku­hálsinn í þessu ferli er röðin sem myndast við matarílát og matvæli. Sjálfs­afgreiðsla matvæla getur tekið sinn tíma og í því ferli geta myndast flösku­hálsar þegar starfs­fólk velur á milli fjölda valkosta, s.s. salat, brauð, súpu, grænkera­fæðis, kjöts eða fisks, meðlætis, sósu, olíu og ávaxta, m.t.t. hollustu, næringar­gildis, lífsstíls eða jafnvel líðan viðkomandi starfs­manns þann daginn,“ segir í umsögn þjónustu- og nýsköpunar­sviðs.

Mötuneytin opna nú fyrr

Þar kemur einnig fram að þegar vettvangs­rannsóknin var framkvæmd hafi opnunar­tími mötuneytanna verið frá kl. 11:30 til 13 og að í ljós hafi komið að biðraðir mynduðust helst frá 11:30 til 12 en að á milli 12 og 13 hafi jafnan verið litlar eða engar biðraðir.

„Þann 3. október s.l. var tekin ákvörðun að breyta opnunar­tíma mötuneytanna á þann hátt að þau séu opin kl 11:00 til 13:00. Við þá framkvæmd styttust biðraðir og hægt er að draga þá ályktun að það sé vegna þess að álagið dreifðist betur yfir lengri opnunar­tíma,“ segir einnig í umsögninni.

Kostnaðarsamt og flókið

Í umsögn þjónustu- og nýsköpunar­sviðs segir að tölvu­kerfið sem notað sé í mötuneytinu sé „vissulega komið til ára sinna“ og að í „full­komnum heimi væri æskilegt að uppfæra það og gera notenda­upplifunina af því betri“. Þess er einnig getið að aldur kerfisins sé ein helsta ástæða þess að ekki er lengur unnt að láta kerfið lesa upplýsingar af starfsmanna­kortum.

„Tengingar mötuneytis­kerfisins við undir­liggjandi kerfi eru flóknar og í kjölfarið þyrfti að uppfæra fleiri bókhalds­kerfi. Það að uppfæra mötuneytis­kerfið er því ekki aðeins verkefni sem felur í sér að skipta um eða bæta við einum skanna því það þyrfti alltaf að koma til val hvers starfs­manns á skjá um hvers konar vörur viðkomandi er að versla. Hjá því væri aðeins hægt að komast ef nýtt sjálfs­afgreiðslu­kerfi yrði keypt eða þróað. Slíkar fyrir­myndir eru til á markaði, t.d. „skannað og skundað“ sem Krónan nýtir sér eða lausn byggð á fyrir­myndum frá Amazon,“ segir í umsögn þjónustu- og nýsköpunar­sviðs.

Þar segir einnig ljóst að þegar litið sé til sambærilegra verkefna að ábati verk­efnisins myndi tæplega svara kostnaði, þar sem verkefnið hefði „takmörkuð áhrif á þjónustu við íbúa og starfs­fólk þar sem fjöldi notenda er aðeins það starfs­fólk Reykja­víkurborgar sem starfar í stjórnsýslu­húsunum tveimur, Ráðhúsi og Höfða­torgi“.

„Þjónustu- og nýsköpunar­svið fagnar tillögu borgar­ráðs­fulltrúa Sjálfstæðis­flokksins. Það er ánægjulegt að sjá að borgar­fulltrúar séu meðvitaðir um mikilvægi stafrænna umbreytinga á upplifun borgar­fulltrúa og starfs­fólks Reykja­víkurborgar. Hins vegar er það mat sérfræðinga þjónustu- og nýsköpunar­sviðs að tillagan sem slík sé líkleg til að verða kostnaðarsöm og flókin og sé ekki líkleg til að hafa mikil áhrif á þjónustu við stóran hóp starfs­fólks,“ sagði í niður­stöðu sviðsins.

Tillaga fulltrúa Sjálfstæðis­flokksins var sem áður segir felld, með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Fram­sóknar, Viðreisnar og Sósíalista­flokks gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðis­flokks á fundi ráðsins síðasta miðvikudag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár