Hæstiréttur Indlands úrskurðar kynlíf með eiginkonum undir lögaldri nauðgun

Hæstiréttur á Indlandi fellir niður laga­ákvæði sem leyfir mönnum að stunda kynlíf með eigin­konum sínum undir lögaldri. Úrskurðinum hefur verið fagnað víðsvegar um heiminn af kven­réttinda­samtökum.

Barnabrúðkaupum mótmælt á Indlandi.
Barna­brúð­kaupum mót­mælt á Indlandi. Mynd: Al Jazeera

Hæstiréttur á Indlandi hefur fellt niður laga­ákvæði sem leyfir mönnum að stunda kynlíf með eigin­konum sínum undir lögaldri. Þetta kemur fram í frétt BBC.

Laga­ákvæðið sem um ræðir var hluti af lögum um nauðgun og kom fram í því að kynlíf milli manns og konu væri leyfilegt svo framarlega sem hún væri yfir 15 ára. Lögræðis­aldur á Indlandi er 18 ár, þannig að drengir og stúlkur þurfa að vera yfir 18 ára til að samþykkja kynlíf.

Úrskurðinum hefur verið fagnað víðsvegar um heiminn af kven­réttinda­samtökum. Þrátt fyrir jákvætt skref í átt að jafnrétti á Indlandi og mann­réttindum þá telja sumir sem þekkja til að erfitt verði að fram­fylgja þessum lögum.

Í dómnum kemur fram að stúlkur undir 18 ára aldri geti kært eiginmann sinn fyrir nauðgun svo framarlega sem þær greini frá ofbeldinu innan árs.

Talsmaður hóps sem beitti sér fyrir breytingunni, Vikram Srivastava, segir að þetta sé tímamóta­úrskurður sem leiðrétti sögulegt óréttlæti gegn stúlkum. Ekki væri hægt að nota hjónaband til að mismuna stúlkum.

Í fréttinni kemur fram að erfitt gæti reynst að fylgja lögunum eftir. „Dómstólar og lögregla getur ekki fylgst með hvað gerist í svefn­herbergi fólks. Stúlka undir lögaldri sem nú þegar er gift, nær alltaf með samþykki foreldra, hefur venjulega ekki hugrekkið til að fara til lögreglunnar eða dómstóla og kæra eiginmann sinn,“ segir frétta­ritari BBC, Geeta Pandey, í Delhi.

Indversk stjórn­völd hafa sagt að barna­hjónabönd séu tíma­skekkja og að þau séu hindrun þess að ná þróunar­markmiðum landsins: að útrými fátækt og hungri, að koma á almennri grunn­menntun, jafnrétti, verndun barna og að bæta heilsu kvenna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár