Borguðu lögmanni Trumps fyrir aðgengi að forsetanum

Fulltrúar Petro Poroshenko, forseta Úkraínu, komu 400 þúsund Bandaríkja­dala greiðslu til Michael Cohen, til að fá fund með Donald Trump.

Í aðdrag­anda þess að Donald Trump Bandaríkja­forseti átti fund með Petro Poroshenko, forseta Úkraínu, í júní í fyrra, barst lögmanni hans, Michael Cohen, greiðsla frá Úkraínu upp á 400 þúsund Bandaríkja­dali, rétt um 40 milljónir króna.

Samkvæmt umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC barst greiðslan frá yfir­völdum í Úkraínu, og fólki sem stendur forsetanum nærri.

Heimildar­maður BBC segir að Poroshenko hafi fram að fundi hans með Trump, gengið erfiðlega að fá fund og aðeins hafa getað gert sé vonir um að ná mynd af sér með Trump í Washington DC.

Greiðslan til Cohen leiddi hins vegar til þess, að hann náði að fá fund með forsetanum.

Áður hefur komið fram, að Paul Manafort, sem stýrði framboði Trumps um skeið, hafi fengið milljónir Bandaríkja­dala í greiðslur frá þrýsti­hópum í rússneskra yfirvalda í Úkraínu.

Manafort hefur þegar játað á sig lögbrot, meðal annars að hafa ekki sagt bandarísku alríkis­lögreglunni FBI satt og rétt frá, en hann neita að öðru leyti sök og hefur tekið undir með Donald Trump, um að rannsókn Roberts Mueller, saksóknara, á afskiptum Rússa af forseta­kosningunum 2016, sé fyrst og síðast norna­veiðar.

Þrátt það tal, þá hefur Mueller haldið áfram rannsókn sinni, en búist er við því að hún taki enda í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár