Segir lágtekjuhópana eiga inni mun meira en 4 prósent launahækkun

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir lág­tekju­fólk eiga marg­falt meiri launa­hækk­anir inni. Í skýrslu Gylfa Zoega segir að ekki sé meira svig­rúm til launa­hækk­ana en 4 pró­sent eigi að við­halda stöð­ug­leika.

Eiga meira skilið
Eiga meira skilið Sólveig Anna Jóns­dóttir aftekur að lág­launa­fólk sætti sig við litlar kjara­bætur í nafni stöð­ug­leika. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, hafnar því alfarið að lág­tekju­fólk í íslensku sam­fé­lagi eigi að sætta sig við aðeins fjög­urra pró­senta hækkun launa í kom­andi kjara­samn­ingum. Í nýrri skýrslu hag­fræði­pró­fess­ors­ins Gylfa Zoega, sem hann vann fyrir for­sæt­is­ráðu­neytið, kemur fram að sé ætl­unin að við­halda stöð­ug­leika við gerð kjara­samn­inga sé svig­rúmið til launa­hækk­ana ekki nema fjögur pró­sent.

Sólveig Anna var gestur í Kast­ljósi gær­kvölds­ins þar sem rætt var um skýrslu Gylfa í sam­hengi við kjara­samn­inga­við­ræður á kom­andi vetri. Sólveig Anna sagð­ist að sumu leyti fagna því að í skýrslu Gylfa væri þó talað um að eitt­hvað svig­rúm væri til launa­hækk­ana því mál­flutn­ingur sumra í sam­fé­lag­inu hefði verið á þeim nótum að ekk­ert svig­rúm væri og fólk ætti að búa sig undir ein­hvers konar núp­ró­senta samn­inga. „Ég lít nátt­úru­lega svo á að lág­tekju­hóp­arnir eigi inni miklu, miklu hærri hækk­anir en það,“ sagði Sólveig.

Í skýrslu Gylfa er jafn­framt nefnt að rík­is­vald­inu væri unnt að gera ferk­ari áætl­anir, í sam­ráði við sveit­ar­fé­lög, um að koma upp ódýru hús­næði fyrir lág­tekju­fólk og ungt fólk. Sú áhersla er að mati Sól­veigar Önnu jákvæð „Það er einmitt nefnt í skýrsl­unni, eða eins og ég skil þetta, að það gangi ekki að við bíðum eftir því að mark­að­ur­inn leysi þetta heldur verði að grípa til mark­vissra aðgerða. Ef það ger­ist þá er það mjög góð byrjun.“

Ljóst er að slíkar hug­myndir í hús­næð­is­málum koma ekki til fram­kvæmda í einu vet­fangi. Frétta­maður Kast­ljóss spurði Sólveigu Önnu hvort verka­lýðs­hreyf­ingin væri til­búin til að skrifa undir samn­inga um lágar launa­hækk­anir, fjögur pró­sent eins og nefnt er í skýrslu Gylfa, án þess að hafa trygg­ingu fyrir að ein­hverjar slíkar áætl­anir um hús­næð­is­upp­bygg­ingu yrðu að veru­leika og nefndi laga­setn­ingu í þeim efnum. Sólveig Anna aftók slíkt með öllu. „Nei, ég held að það sé óhætt að segja að það mun ekki ger­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár