Verðbólgan tekur stórt stökk

Vísitala neyslu­verðs hækkar um meira en búist hafði verið við og verð­bólgan er komin í 5,2%.

Verðbólga er komin í hæsta gildi sitt frá september 2024 eftir nýjustu mælingu, þar sem hún fer umfram spár. Vísitala neyslu­verðs hækkaði um 0,38% í janúar einum og sér og er hækkun vísi­tölunnar til síðustu 12 mánaða, eða verðbólga, komin í 5,2%.

Lands­bankinn hafði spáð því að verðbólga mældist 5,1% í janúar og að vísitalan myndi hækka um 0,3%. Íslands­banki hafði spáð 4,9% verðbólgu.

Þetta þýðir að höfuð­stóll verð­tryggðra fasteigna­lána lands­manna mun hækka um 0,38% á einum mánuði, að frádreginni afborgun sem er breytileg eftir lengd lána og stöðu. Langflest húsnæðislán sem tekin hafa verið síðustu mánuði eru verð­tryggð.

Aðrar slæmar fréttir fyrir húsnæðis­eigendur nú er að þróun fasteigna­verðs er ekki að hækka vísitölu neyslu­verðs. Þvert á móti hefur fasteigna­verð lækkað. Áhrifin birtast þó í gegnum „reiknaða húsaleigu“. Vísitala neyslu­verðs án húsnæðis hækkar um það sama og vísitalan almennt.

Ein helsta ástæðan fyrir hækkun vísi­tölunnar eru gjaldskrár- og skatta­breytingar ríkisins.

„Um áramótin voru gerðar ýmsar breytingar á gjöldum tengdum ökutækjum sem höfðu áhrif á vísitölu neyslu­verðs. Olíugjald og vörugjöld á eldsneyti voru lögð niður og kolefnis­gjaldið var hækkað. Tekin voru upp kílómetra­gjöld fyrir öll ökutæki, vöru­gjöldum á ökutæki var breytt og rafbíla­styrkurinn var lækkaður,“ segir í tilkynningu Hagstofunnar.

Hækkun vísi­tölunnar kemur þrátt fyrir útsölu­áhrif, þar sem verð á fötum og skóm lækkaði um 7,4% og húsbúnaði um 5,4%. Þá lækkuðu flug­fargjöld um 10,8%.

Verðbólgu­tölurnar nú eru líklegar til að fresta stýri­vaxta­lækkunum Seðla­banka Íslands. Næsta vaxta­ákvörðun er á miðvikudag, 4. febrúar.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Benda má á að mánaðarbreiting upp á 0,38%, sem kemur fram í töflunni í greininni, gefur ársverðbólgu upp á 4,6% (0,38x12) en ekki 5,2%. Það er að segja verðbólgan í dag er 4,6% en er hinsvegar búin að vera að meðaltali 5,2% seinustu 12 mánuði. Það er í raun í hæsta máta undarlegt að stjórnvöld skuli nota margra mánaða gamlar tölur til að reikna út verðbólguna í dag.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár