Eignir almennings rýrna

Lækkandi fasteigna­verð og vaxandi verðbólga leiðir til þess að eignir almennings eru að dragast saman. Horfur eru á aukinni verðbólgu í janúar vegna aðgerða stjórn­valda.

Vondar aðstæður
Vondar aðstæður Hús­næð­is­verð lækk­aði um 1,15% á milli mán­aða, á sama tíma og verð­bólga eykst. Mynd: Golli

Nýjar tölur sýna að eignir íslenskra fasteigna­eigenda rýrna nú umtals­vert til skamms tíma, bæði að nafnvirði og enn meira að raunvirði.

Verð fasteigna féll um 1,16% frá nóvember til desember, metið út frá vísitölu íbúða­verðs frá Húsnæðis- og mannvirkja­stofnun (HMS). Mánuðinn áður hafði vísitalan fallið um 0,35%.

Verðbólga leggst ofan á verðlækkun

Á sama tíma og nafnvirði fasteigna fellur rýrnar virði þeirra vegna vaxandi verðbólgu. Í síðasta mánuði hækkaði vísitala neyslu­verðs um 1,15%. Það þýðir að virði fasteigna lækkaði í raun um liðlega 2,3% á einum mánuði.

Tæplega 80% af eigin fé almennings á Íslandi liggur í fasteignum.

Eignir fólks rýrna einnig til síðustu 12 mánaða. Þannig hefur vísitala fasteigna­verðs hækkað um 2,1% á sama tímabili og verðbólga mælist 4,5%, sem þýðir 2,4% raun­lækkun á virði fasteigna.

Ekki er útlit fyrir að ástandið batni til skamms tíma. Lítil virkni er á fasteigna­markaði og nýbyggingar safnast upp. Þrír af hverjum fjórum fasteigna­sölum telja virknina litla á markaði miðað við árstíma, í könnun HMS.

Verðtryggingin ræður ríkjum

Hrein ný húsnæðislán eru nánast að öllu leyti verð­tryggð síðustu mánuði, enda eru óverðtryggðir vextir á bilinu 7,95% til 9,75% í lágri veðsetningu. Þetta þýðir að húsnæðislán þeirra lands­manna munu hækka með verð­bólgunni. Ólíkt janúar í fyrra, þegar vísitala neyslu­verðs lækkaði um 0,27%, og þar með verð­tryggð lán um það sama, er því spáð að vísitala neyslu­verðs hækki um 0,3% í næstu mælingu sem birtist 29. janúar næst­komandi og að verðbólga, sem sýnir hækkun vísi­tölunnar síðustu 12 mánuði, reynist fara úr 4,5% í 5,1%. Það væri mesta verðbólga frá október 2024.

Þrátt fyrir verð­lækkun fasteigna er húsnæðis­kostnaður að hækka vísitölu neyslu­verðs, eins og hún er reiknuð sem „greidd húsaleiga“.

Vænt verðbólgu­skot skýrist af reglu­bundnum gjaldskrár­hækkunum og svo innleiðingu stjórn­valda á breyttri gjaldtöku vegna ökutækja.

Eignabóla eftir Covid

Þó svo að eignir almennings fari nú rýrnandi hafa þær blásið út frá því í Covid-faraldrinum, þegar stýri­vextir og svo húsnæðis­lána­vextir voru lækkaðir verulega, sem leiddi af sér eignabólu á húsnæðis­markaði. Þannig jókst eigið fé í fasteign úr 3,9 billjónum króna í 7,4 billjónir frá 2019 til 2024, en á sama tíma hefur vísitala neyslu­verðs hækkað verulega og þar með verðbólga.

Þau sem koma ný inn á fasteigna­markað í tölu­verðri verðbólgu samhliða verð­lækkun húsnæðis búa hins vegar ekki að fyrri hækkun og eiga á hættu að lenda í neikvæðri eiginfjár­stöðu haldi þróunin áfram.

Óttast er að kreppu­verðbólga geti myndast á Íslandi, þar sem verðlag hækkar samhliða atvinnu­leysi, en Seðla­bankinn bindur vonir við að hátt vaxtastig leiði til þess að verð­bólgan hjaðni loks með vorinu.

Sömuleiðis er vaxandi óvissa og áhætta í alþjóða­málum, sem gæti leitt til áfalla. Ef íslenska krónan fellur eða verðbólga verður vegna skerðingar á aðfanga­keðjum, leiðir það til þess að fasteignalán lands­manna hækka, það er að segja þau algengustu, sem eru verð­tryggð.

Lítið byggt af sérbýli

Góðu fréttirnar fyrir húsnæðis­markaðinn eru að svokölluð snjó­hengja vaxta­endur­skoðunar, þar sem lágir, fastir óverðtryggðir vextir frá Covid-tíma­bilinu losnuðu og hækkuðu verulega, er nú að baki. 

Þá vekur athygli að nánast allar nýbyggingar á höfuð­borgar­svæðinu eru í fjölbýli. Aðeins 10% eru í sérbýli, en á Vestfjörðum og Norð­vesturlandi eru allar sérbýli. Hlut­fallið spannar frá fjórðungi upp í helming í öðrum lands­hlutum.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár