Ætla að flýta nýrri umferðargjaldtöku og lækka framlög til stjórnmálaflokka

Umfang aðgerða sem ríkis­stjórnin hefur komið með inn í vinnu við fjármála­áætlun felur í sér tekjusókn eða aðhald sem nema á 26 milljörðum króna fyrir næsta ár. Nýju gjaldtöku­kerfi umferðar verður flýtt, en það er þó enn óljóst hvernig útfærslan verður.

Ríkisstjórnin samþykkti tillögur sem eiga að vinna gegn þenslu og verðbólgu á ríkisstjórnarfundi á miðvikudag.
Rík­is­stjórnin sam­þykkti til­lögur sem eiga að vinna gegn þenslu og verð­bólgu á rík­is­stjórn­ar­fundi á mið­viku­dag. Mynd: Bára Huld Beck

Ríkis­stjórnin samþykkti á fundi sínum á miðvikudag nokkrar tillögur sem ætlað er að vinna gegn þenslu og verðbólgu í hagkerfinu. Þessum tillögum kom Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra í gær áfram til fjár­laganefndar sem vinnur nú að því að leggja lokahönd á fjármála­áætlun fyrir þinglok.

Sagt var frá tillögum ríkis­stjórnarinnar í frétta­tilkynningu á vef Stjórnar­ráðsins í gær. Aðgerðirnar, sem eru bæði á tekju- og útgjalda­hlið ríkis­sjóðs, eiga að draga úr halla á ríkis­sjóði hraðar en gert er ráð fyrir í fjármála­áætlun eins og hún liggur fyrir þinginu, og segir í tilkynningu stjórn­valda að það sé gert bæði í því skyni að „draga úr þenslu og byggja upp styrk ríkis­sjóðs til að mæta óvæntum áföllum framtíðar“.

Heildar­umfang tillagnanna eru 26 milljarðar, eða um 0,7 prósent af vergri lands­framleiðslu. Í tilkynningu stjórn­valda segir að þessar aðgerðir eigi „að vega á móti þörf fyrir stýri­vaxta­hækkanir“ og að tillögurnar verði nánar útfærðar í fjár­laga­frumvarpi fyrir næsta ár.

Nýtt umferðargjaldakerfi – enn allt í myrkri um útfærslu

Efst á blaði yfir nýjar og auknar tekjur sem ríkis­stjórnin ætlar sér að sækja er flýting innleiðingar á nýju gjaldtöku­kerfi í umferðar­málum. Unnið hefur verið að breytingum á gjaldtöku­kerfi umferðar um nokkra hríð og hefur fjármála­ráðherra sagt að ýmsir kostir komi til greina í þeim efnum.

Bjarni ræddi þessi mál meðal annars í sam­tölum við Kjarn­ann síðla á síð­asta ári. Þar nefndi hann sjálf­virkni­lausnir og tolla­hlið á meðal val­kosta þegar kæmi að gjald­töku af umferð. „Þar koma margir kostir til greina, eins og við sjáum bara í öðrum lönd­­um. Það er hægt að lesa af mæl­um, það er hægt að vera með toll­hlið, það er hægt að nota sjálf­­virkn­i­­lausnir og fleira. Þetta er eitt­hvað sem við ætlum að taka til skoð­unar og hrinda í fram­­kvæmd,“ sagði Bjarni.

Kjarninn hefur óskað eftir frekari upplýsingum frá fjármála­ráðuneytinu um hvort búið sé að taka ákvarðanir um fyrir­komulag nýrrar gjaldtöku á umferð, en í tilkynningu stjórn­valda er talað um að unnið sé „að innleiðingu einfaldara og skilvirkara tekju­öflunar­kerfi, sem samræmist þörf á áfram­haldandi útgjöldum við nýframkvæmdir, viðhald og rekstur vega­kerfisins“.

Óljóst er af tilkynningu stjórn­valda hversu miklar nýjar tekjur eiga að koma inn með nýju fyrir­komulagi tekju­öflunar af bíla­umferð.

Skattar hækkaðir á áfengi og tóbak í fríhöfninni

Á tekju­hliðinni ætlar ríkis­stjórnin innleiða nokkrar sértækar gjalda­breytingar og það sem er efst á blaði í þeim efnum er að til stendur að lækka afsláttinn af áfengis­gjaldi og tóbaks­gjaldi í fríhöfninni frá því sem nú er. Fleiri krónur af hverri seldri vínflösku í Leifsstöð munu því renna til ríkisins. Óljóst er hvað þetta á að skila mörgum krónum í ríkis­kassann á ársgrundvelli.

Ríkis­stjórnin leggur einnig til að fyrir­komulag og umfang verðmæta­gjalds vegna sjókvíaeldis verði endur­skoðað og að vara­flugvalla­gjald verði lagt á. Einnig er fyrir­hugað að frá og með árinu 2024 og verði ráðist í „tekju­öflun af ferða­mönnum í samráði við ferða­þjónustuna samhliða áfram­haldandi innviða­uppbyggingu og álags­stýringu í tengslum við vaxandi straum ferða­manna til landsins“ eins og það er orðað í tilkynningu stjórn­valda.

Á tekju­hliðinni stendur einnig til að uppfæra krónutölu­gjöld með nýrri áætlun um verðlags­þróun, en þau eiga ekki að hækka umfram hana.

Ferðakostnaður ríkisins og framlög til stjórnmálaflokka lækka

Á útgjalda­hliðinni er efst á blaði að til stendur að lækka ferða­kostnað ríkisins varanlega, en um er að ræða 640 milljón króna lækkun samkvæmt tilkynningu stjórn­valda. „Dregið hefur úr þörf á ferða­lögum í samræmi við loftslags­stefnu Stjórnar­ráðsins og í kjölfar heims­faraldursins,“ segir í tilkynningunni.

Einnig leggur ríkis­stjórnin til að aðhald málefna­sviða verði tíma­bundið á árinu 2023 í samræmi við forsendur fjárlaga ársins 2022, að því frátöldu að ekkert aðhalds­markmið verði sett fyrir heil­brigðis- og öldrunar­stofnanir.

„Þannig verði almennt aðhald 2% utan þeirra liða sem vaninn er að undan­skilja en 0,5% á framhalds- og háskóla. Engin aðhalds­krafa er sett á bótakerfi almanna­trygginga og atvinnu­leysis, sjúkra­tryggingar og dómstóla, að viðbættum heil­brigðis- og öldrunar­stofnunum,“ samkvæmt tilkynningu stjórn­valda.

Ríkis­stjórnin leggur einnig til að nýju útgjalda­svigrúmi sem gert er ráð fyrir í fyrir­liggjandi fjármála­áætlun verði frestað og að almennt útgjalda­svigrúm málefna­sviða árið 2023 verði 2,1 milljarðar króna, í stað áforma um 4,1 milljarð króna. Áformað svigrúm verði síðan fært aftur inn í ramma málefna­sviða næstu tvö árin.

Nokkrar aðrar breytingar eru svo lagðar til. Þar á meðal er frestun á „nokkrum“ ótilgreindum útgjalda­málum fram til ársins 2024 og lækkun á framlögum til stjórn­málaflokka. Samkvæmt svari frá fjármála­ráðuneytinu stendur til að lækka framlögin um 5 prósent og festa þau við krónutölu en ekki vísistölu. Í fyrra runnu alls 728,2 milljónir króna úr ríkis­sjóði til stjórn­málaflokka.

Einnig ætla stjórn­völd að hliðra helmingi sérstaks eins milljarðs króna viðbótar­framlags til menningar mála vegna ársins 2023 til ársins 2024, sem þýðir að 500 milljóna framlag mun koma til á hvoru ári.

Sumum fjárfestingum seinkað

Ríkis­stjórnin ætlar svo einnig að endur­skoða fjár­festingar­áform hins opinbera, að sögn „einkum til þess að endur­spegla betur mat á þörf fyrir viðbótar fjár­veitingar á næsta ári“.

„Að undan­förnu hafa tiltekin fjár­festingar­verkefni dregist frá því sem áætlanir gáfu til kynna m.a. þar sem framkvæmda­geta hefur reynst minni. Þá er gert ráð fyrir að hliðra verkáföngum aftur um eitt ár í einhverjum tilfellum þar sem færi gefst á að afla hagstæðari tilboða síðar í ljósi stöðunnar á bygginga­markaði,“ segir um þetta í tilkynningu stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár