Óskandi að Costco finni áfram grundvöll til rekstrar hér á landi

Fyrrum forstöðu­maður Rannsókna­seturs versl­un­ar­innar fjallar um svokölluð Costco-áhrif á innlendan dagvöru­markað í nýjasta tölublaði Vísbendingar.

Emil B. Karlsson
Emil B. Karlsson Mynd: Aðsend mynd

Emil B. Karlsson, fyrr­verandi forstöðu­maður Rannsókna­seturs verslunarinnar, segir að þó hann sé að sönnu enginn talsmaður erlendra risa-verslunar­keðja eins og Costco og telji nauðsynlegt að veita versluninni fullt aðhald í verðlagi og rekstri, þá sé óskandi að verslunar­keðjan finni áfram grundvöll til rekstrar hér á landi. Það sé bæði til hagsbóta fyrir neytendur, veiti innlendum samkeppnis­aðilum aðhald og sýni vonandi öðrum erlendum lágvöruverðskeðjum að það gangi að reka verslun á Íslandi þó markaðurinn sé lítill.

Þetta kemur fram í grein sem Emil skrifar í nýjustu Vísbendingu.

Hann segir að það hafi verið algengt að talað væri um Costco-áhrifin hér fyrir fimm árum þegar erlendi verslunar­risinn kom til landsins með stormsveipi og breytti öllu landslagi á innlendum dagvörumarkaði. Hann skoðar í greininni hver þessi áhrif voru og hvort þau vari enn.

„Vegna smæðar íslenska markaðarins er innlend verslun mjög viðkvæm fyrir erlendri samkeppni. Þannig hafði innkoma Costco á íslenskan dagvörumarkað í maí 2017 þær afleiðingar að vöruverð lækkaði og riðlaðist markaðs­hlutdeild innlendra smásala og heildsala, en það hafði verið stöðugt síðustu áratugina þar á undan. Gripið var til hagræðingar meðal stærstu innlendu verslan­anna og leitað var leiða til aukinnar útvíkkunar hjá stærstu dagvöru­verslana­keðjunum.

Verð hluta­bréfa í Högum, stærstu verslunar­keðjunni, lækkaði og tveimur verslunar­fyrirtækjum var lokað, Kosti og verslunum Víðis. Áhrif Costco náðu ekki síður til heild­sölu­markaðarins og jafnvel til innlends iðnaðar eins og drykkjar­vöru­fram­leiðenda og fram­leiðenda heimilis­pappírs. Á meðan nutu neytendur góðs af lægra vöruverði og nýjum vöru­merkjum. Enda sýndi könnun stuttu eftir opnun verslunarinnar að um 40 prósent lands­manna hefðu komið og keypt sér aðildar­kort og önnur 40 prósent hugsuðu sér að gera hið sama,“ skrifar hann.

Neikvæð umræða og viðhorf til verslana breyttust

Emil segir að reynslan af innkomu Costco sýnir að samkeppni á verslunar­markaði geti haft veruleg áhrif á verslunar­mynstrið á Íslandi. Þegar ein erlend verslun sem opnuð er í Garðabæ hafi viðlíka umrót í för með sér megi draga ályktanir af áhrifum þess að frekari alþjóðleg samkeppni verði á komandi tímum.

Auk þeirra breytinga sem urðu á verðlagi, vöru­framboði og samsetninga þeirra verslana sem fyrir voru á markaði varð önnur og ekki síðri breyting, skrifar Emil. Sú neikvæða umræða og viðhorf til verslana breyttust að hans mati. „Um langt árabil var umræða um verslun mest á frekar neikvæðum nótum. Algengt stef var að verslanir okruðu á neytendum í skjóli fákeppni og samþjöppunar. Að einhverju leyti virðist þetta hafa verið á rökum reist. Allavega var borð fyrir báru til verð­lækkana með innkomu Costco.“

Hann bendir á að að minnsta kosti þrjár skýrslur höfðu verið samdar fyrir stjórn­völd vegna hinnar háværu umræðu um þessi mál. Öllum hafi verið ætlað að greina orsakir hærra verðlags á matvælum hér á landi en í nágranna­löndunum. Ein skýrslan var samin af Hagfræði­stofnun HÍ, önnur af Samkeppnis­stofnun og sú þriðja af sérskipaðri nefnd undir forystu hagstofu­stjóra. Niður­stöður voru í öllum tilvikum samhljóma, samkvæmt Emil. „Helstu ástæður hærra vöruverðs hér en í nágranna­löndunum voru innlend vörugjöld, verndar­tollar, gengis­sveiflur, flutnings­kostnaður, að ekki var hægt að nýta sömu stærðar­hagkvæmni í innkaupum og nágranna­þjóðirnar vegna smæðar íslenska markaðarins og að einhverju leyti vegna fákeppni á innlendum dagvörumarkaði.

Nú hafa vörugjöld verið aflögð á matvæli, raftæki og fleiri vörur og verndar­tollar á landbúnaðar­vöru að einhverju marki verið rýmkaðir. En ofur­tollar á innfluttar landbúnaðar­vörur hafa að sögn verið hindrun í vegi þess að erlendar lágvöruverðs­verslanir hafa viljað opna hér verslanir auk smæðar íslenska markaðarins,“

Emil bendir jafnframt á að nú hafi heyrst raddir þess efnis að velta og vinsældir Costco fari minnkandi og gagnrýnt hafi verið að verð á innlendum dagvörum séu í einhverjum tilvikum ekki ódýrari þar en í hinum lágvöruverðs­verslununum, sem geti hugsanlega skýrst af því að innlendir heild­salar og fram­leiðendur bjóði Bónus og Krónunni lægra verð en Costco.

Hægt er að lesa grein Emils í heild sinni með því að ger­­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár