Hagvöxtur í Bandaríkjunum mælist sá minnsti síðan 2014

Þvert á spár þá var hagvöxtur í Banda­ríkjunum undir eitt prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Hagvöxtur á fyrstu þremur ársins í Banda­ríkjunum mældist aðeins 0,7 prósent sem var töluvert undir væntingum greinenda. Donald J. Trump, Bandaríkja­forseti, lofaði því í kosninga­baráttunni að árlegur hagvöxtur færi upp í fjögur prósent en hann hefur verið á bilinu 2 til 3 prósent. 

Þvert á þessi loforð var þróuin öfug á fyrstu mánuðum ársins, en 0,7 prósent hagvöxtur er sá minnsti sem mælst hefur frá árinu 2014, samkvæmt breska ríkis­útvarpinu BBC.

Á miðvikudaginn tilkynnti fjármála­ráðherrann Steven Mnuchin að skattar á fyrirtæki yrðu lækkaðir stórkost­lega á næstunni, af breytingar fengju stuðning þingsins.

Skattur á fyrirtæki verður samkvæmt þeim hugmyndum lækkaður úr 35 prósent í 15 prósent.

Markmiðið er að auka hagvöxt og auka fjár­festingu. Greinandi sem BBC ræðir við í umfjöllun sinni segir að þessi hagvaxtar­mæling nú sé vissulega lægri en reiknað var með, en í takt við það að yfirleitt mælist fyrstu þrír mánuðir ársins lægri í hagvexti en næstu mánuðir þar á eftir. 

Þá segir hún einnig, að stefn Trumps muni ekki fara að virka almennilega fyrr en á næsta ári, þegar fyrstu fjárlög hans taka gildi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár