Tollastríðið lækkar olíuverð og norsku krónuna

Tolla­stríð Banda­ríkjanna við helstu viðskipta­þjóðir þeirra hefur leitt til lægri verðs á hrávörum sem og veikingu gengis norsku krónunnar.

Norska hagkerfið finnur fyrir viðskiptastríði Bandaríkjanna við Rússland, Evrópusambandið og Kína.
Norska hag­kerfið finnur fyrir við­skipta­stríði Banda­ríkj­anna við Rússland, Evr­ópu­sam­bandið og Kína. Mynd: Úr safni

Viðskipta­stríð Banda­ríkjanna við Evrópu­sambandið, Rússland og Kína hefur leitt til lægra olíuverðs og aukið óvissu á hluta­bréfa-og gjaldeyris­mörkuðum. Samhliða því hefur norska krónan veikst töluvert, en búist er við áfram­haldandi veikri stöðu gjald­miðilsins á meðan á tolla­stríðinu stendur. Þetta kemur fram í fréttum Forbes og Dagens Næringsliv.

Lægra olíuverð

Helstu áhrif viðskipta­stríðs landanna tveggja hingað til hefur verið kólnun á kínverskum hlutabréfa­markaði. Versnandi rekstrar­skilyrði kínverskra fyrir­tækja gæti leitt til Þar sem Kína er einn stærsti olíu­neytandi á heimsvísu myndi væntur samdráttur þar í landi leiða til mikillar eftir­spurnar­minnkunar á hrávörum. Þessi ótti hefur þegar fælt fjárfesta frá olíu­félögum, en olíuverð hefur farið lækkandi frá byrjun júlí. Óttast er að tolla­stríðið farið harðnandi á næstunni, en Bandaríkja­forseti hótaði frekari tollum á Kína í viðtali við CNBC í síðustu viku.

Verndar­stefna Banda­ríkjanna í alþjóða­viðskiptum hefur leitt til tolla­lagningar á fjölmörgum vörum í Evrópu, Kína, Rússlandi og Banda­ríkjunum. Í lok maí setti ríkis­stjórn Trumps á ál-og stáltolla á Evrópu­sambandið og Rússlandi, en báðir aðilar svöruðu í sömu mynt og lögðu tolla á bandarískar útflutnings­vörur.

Forbes nefnir hins vegar að aðrir þættir hafi einnig leitt til olíuverð­lækkunnar síðustu vikna, líkt og yfir­lýsing OPEC-ríkja um aukna fram­leiðslu, auk framleiðslu­kipps leirsteins­olíu í Banda­ríkjunum.

Álverðið lækkar

Olía er ekki eina hrávaran sem hefur orðið fyrir barðinu á viðskipta­stríðinu, en heims­markaðsverð á áli hefur einnig farið lækkandi frá innleiðingu áltolla Banda­ríkjanna í lok maí. Kjarninn fjallaði einnig nýlega um versnandi rekstrar­niðurstöðu álfyrirtækisins Alcoa í kjölfar áltolla í lok maí, en hlutabréfa­verð fyrir­tækisins féllu eftir að það lækkaði afkomuspá sína fyrir árið um 14%.

Norska krónan veikst

Samhliða verð­lækkun á hrávörum hefur norska krónan veikst töluvert. Samkvæmt viðmælanda norska viðskipta­blaðsins Dagens Næringsliv (DN) hefur viðskipta­stríðið einnig haft bein áhrif á gengi krónunnar, en aukin óvissa á mörkuðum hefur hindrað nýjar fjár­festingar til skamms tíma og haft neikvæð áhrif á hluta­bréfa-og gjaldeyris­markaðinn. Í viðtali við DN telur viðmælandinn að norska krónan muni haldast veik nokkurn tíma og gæti jafnvel veikst enn meira, þar sem mögulegt er að viðskipta­stríðið muni harðna á næstu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár