Vélmenni fær ríkisborgararétt í Sádi-Arabíu

Vélmennið Sophia hefur nú öðlast Sádi-Arabískan ríkis­borgararétt. Hún þekkir andlit og getur haldið uppi samræðum við fólk. Margir hafa þó bent á hræsnina en konur í landinu búa enn við skert mann­réttindi.

Fyrsta vélmennið í heiminum hefur nú fengið ríkis­borgararétt í Sádi-Arabíu. Frá þessu er grein í frétt DR. Þetta gerðist í tengslum við ráðstefnu í höfuð­borginni Riyadh. Blaða­maðurinn Andrew Ross Sorkin hjá CNBC tilkynnti vélmenninu um ríkis­borgara­réttinn.

Vélmennið heitir Sophia og var hún ánægð og þakkaði fyrir sig. „Ég er mjög stolt og það er mér heiður að taka við þessari einstöku viðurkenningu. Það er sögulegt að vera fyrsta vélmennið í heiminum til að ríkis­borgararétt,“ sagði Sophia í tilefni þess.

Sophia er þróaðasta vélmennið frá fyrir­tækinu Hanson Robotics. Hún getur líkt eftir ýmiss konar andlits­dráttum og þekkt andlit. Hún getur horfst í augu við fólk og haldið uppi samræðum. Hún hefur farið í fjölda viðtala og meðal annars komið fram í 60 mínútum.

Ekki eru allir á eitt sáttir með ákvörðun stjórn­valda í Sádi-Arabíu. Margir hafa bent á að vélmennið fái réttindi sem aðrir í landinu hafa enn ekki fengið. Konur búa til að mynda við skert mann­réttindi og telja margir að betra hefði verið að huga að þeim og réttindum þeirra áður en vélmenni fengi ríkis­borgararétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár