„Fjármálaráðherra talar um veislu á meðan fólkið okkar er að gefast upp“

Verka­lýðs­for­ingjar gagn­rýna fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar harð­lega.

Ragnar Þór Ingólfsson
Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR. Mynd: Stundin

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, telur þær kjara­bætur sem fel­ast í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar heldur rýrar. Drífa Snædal, fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands­ins, er sama sinnis og Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir  frum­varpið valda von­brigðum. Allt of lítið sé gert fyrir vinn­andi fólk. 

„Per­sónu­af­sláttur hækkar um 539 kr. Hluta af skertum barna­bótum skilað til baka. Vöru­gjöld á bensín og bif­reiðar hækka. Vaxta­bætur lækka um 600 millj­ónir. Heildsalar og fram­leiðslu­fyr­ir­tæki eru að hækka verð. Krónan hefur veikst um 7-8% gagn­vart USD og Evru frá 1. ágúst. Seðla­bank­inn hótar vaxta­hækk­unum verði launa­hækk­anir umfram 4%. Fjár­mála­ráð­herra talar um veislu á meðan fólkið okkar er að gef­ast upp.“ Þannig kemst Ragnar Þór að orði á Facebook.

„Kyn­slóð­irnar á undan náðu fram, með þrot­lausri bar­áttu, öllum þeim rétt­indum og lífs­gæðum sem við þekkjum í dag. Hvernig sam­fé­lagi ætlum við að skila til afkom­enda okkar? Ætlum við að skila af okkur sam­fé­lagi betri lífs­kjara eða vera kyn­slóðin sem taldi lífs­kjara­bar­átt­una snú­ast um okkur sjálf eða hvað er í þessu fyrir mig á meðan inn­viðir sam­fé­lags­ins molna undan okkur?“ skrifar Ragnar Þór. „Ætlum við að láta þetta yfir okkur ganga eða standa saman í að bæta lífs­kjör þannig að við getum búið í sam­fé­lagi þar sem hægt er að lifa með mann­legri reisn af dag­vinnu­launum og fá ekki lífs­tíðar fátækt­ar­dóm ef eitt­hvað kemur upp á?“

Sólveig Anna Jóns­dóttir hjá Eflingu sagði í kvöld­fréttum RÚV í gær að hækkun per­sónu­af­slátt­ar­ins og barna- og vaxta­bóta væri alltof lítil og aukn­ing hússnæð­is­stuðn­ings snaut­leg. Drífa Snædal, sem hefur boðið sig fram til for­seta Alþýðu­sam­bands­ins, fer líka hörðum orðum um fjár­laga­frum­varpið.

„Metn­að­ar­leysið til að bæta
lífs­kjör og jafna stöðu fólks algert“

„Fjár­laga­frum­varpið gefur okkur litlar vænt­ingar um að stjórn­völd ætli sér að standa með vinn­andi fólki. Þvert á móti er metn­að­ar­leysið til að bæta lífs­kjör og jafna stöðu fólks algert,“ skrifar Drífa. „Þau skemmd­ar­verk sem hafa verið unnin jafnt og þétt á skatt- og bóta­kerf­unum síð­ustu ár eru ekki leið­rétt sem neinu nemur og hinir ósnert­an­legu, þeir sem greiða sér arð af sam­eig­in­legum auð­lindum og vinnu­fram­lagi eru enn jafn stikk frí þegar kemur að því að leggja í sam­eig­in­lega sjóði. Það er ljóst að verka­lýðs­hreyf­ingin hefur verk að vinna í vetur og eina vonin til þess að snúa af braut ójafn­aðar er sam­einuð hreyf­ing.“

Verka­lýðs­for­ingj­arnir hafa boðað harða kjara­bar­áttu á kom­andi vetri. Þórarinn G. Pét­urs­son, aðal­hag­fræð­ingur Seðla­bank­ans, sagði á fundi hjá Félagi atvinnu­rek­enda í gær að ef hug­myndir um stór­felldar almennar launa­hækk­anir yrðu að veru­leika gæti Seðla­bank­inn vart annað en hækkað vexti til að halda aftur af verð­bólgu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjarabaráttan

GreiningKjarabaráttan

Kjara­við­ræður stranda á for­sendu­á­kvæðum og breið­fylk­ingin fundar um mögu­legar verk­falls­að­gerðir

Formaður VR fékk í gær sam­þykkta heim­ild til þess að grípa til aðgerða og félög innan breið­fylk­ing­ar­innar hafa blásið til fundar í dag þar sem rætt verður um næstu skref. Um tals­verðan við­snún­ing er að ræða frá því að kjara­við­ræður hófust fyrst. Nú hafa við­ræð­urnar harðnað og er það fyrst og fremst vegna ósættis um for­sendu­á­kvæði í langa­tíma­kjara­samn­ingnum.
GreiningKjarabaráttan

Af hverju dó ham­ingjan milli breið­fylk­ing­ar­innar og Samtaka atvinnu­lífs­ins?

Allt annar tónn hefur verið í kjara­bar­átt­unni nú en síð­ustu miss­eri. Við­semj­endur ætl­uðu að taka höndum saman og auka stöð­ug­leika í efna­hags­líf­inu. En svo heyrð­ist lítið af fram­gangi. Í þess­ari viku var við­ræðum slitið og deil­unni vísað til rík­is­sátta­semj­ara. Margir klór­uðu sér í hausnum og spurðu hvað hefði eig­in­lega gerst? Svarið við því er: ansi margt.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár