„Bjórpönkari“ sakaður um ósæmilega hegðun og valdníðslu

James Watt, eigandi og annar stofnandi skoska handverks­bjórrisans Brewdog hefur verið sakaður um óviðeigandi hegðun og vald­níðslu af fyrr­verandi starfs­fólki fyrir­tækisins.

Skoska brugghúsið BrewDog hefur vakið athygli síðustu ár fyrir fyrstaflokks handverksbjór. James Watt, annar stofnandi bjórrisans, hefur verið sakaður um ósæmilega hegðun og valdníðslu af tugum starfsmanna BrewDog í Bandaríkjunum.
Skoska brugg­húsið BrewDog hefur vakið athygli síð­ustu ár fyrir fyrsta­flokks hand­verks­bjór. James Watt, annar stofn­andi bjórris­ans, hefur verið sak­aður um ósæmi­lega hegðun og vald­níðslu af tugum starfs­manna BrewDog í Banda­ríkj­unum. Mynd: EPA

Fimmtán fyrr­verandi starfs­menn BrewDog í Banda­ríkjunum saka James Watt um ósæmilega hegðun og vald­níðslu í skosku heimilda­þátta­röðinni Disclosure. Í þættinum, sem ber yfir­skriftina „The Truth about Brewdog“ kemur fram að hegðun Watt hafi látið kvenkyns barþjónum líða „óþægilega“ og „hjálpar­vana“. Lögfræðingar Watt segja ekkert til í ásökununum og sjálfur þvertekur hann fyrir að hafa hagað sér ósæmilega.

BrewDog var stofnað árið 2007 í Fra­serburg í Skotlandi af Watt og vini hans Martin Dickie. Þeir eru miklir hugsjónar­menn sem voru komnir með ógeð af bragð­lausum og flötum lag­er­bjór. Á örskömmum tíma varð BrewDog eitt af mest vax­andi drykkj­ar­vöru­fram­leið­endum í Bret­landi.

Watt og Dickie fóru óhefðbundnar leiðir þegar kom að fjár­mögnun rekstursins. Þeir gáfu fjármála­kerfinu puttann og stóðu fyrir stærsta hópfjármögnunar­verkefni heims. Ári eftir stofnun var BrewDog orðið stærsta sjálf­stæða brugghús Skotlands. Árið 2016 færðu félagarnir út kvíarnar og stefndu á Bandaríkja­markað vopnaðir viðskipta­áætlun sem þeir kölluðu „and-við­skipta­lega“. Grunn­hug­myndin var sú að fjár­magna rekstur fyr­ir­tæk­is­ins, og vöxt þess, án aðkomu hefð­bund­inna fjár­mála­stofn­ana. Þ.e. engin fleiri banka­lán og engir ríkir stórir fjár­festar í jakka­föt­u­m. Félagarnir fengu því fljótt viðurnefnið „bjór­pönkararnir“.

Árið 2016 opnaði fyrsti BrewDog barinn í Banda­ríkjunum og í dag rekur BrewDog átta bari í þremur ríkjum, auk brugg­verksmiðju. Útrás BrewDog hélt áfram og sumarið 2018 opnaði BrewDog í Reykjavík. Í dag rekur BrewDog yfir hundrað bari, er með yfir 2000 manns í vinnu og er metið á um tvo milljarða punda, eða sem nemur tæpum 348 milljörðum króna.

Í fyrra skrifuðu 300 núverandi og fyrr­verandi starfs­menn BrewDog undir yfir­lýsingu þar sem Watt var sakaður um ógnar­stjórnun og sagður stuðla að eitruðu starfs­umhverfi. Í kjölfarið hóf teymi Disclosure rannsókn á BrewDog og starfs­háttum innan fyrir­tækisins.

Meðal þess sem fram kemur í heimilda­þættinum er að konum sem störfuðu sem barþjónar var ráðlagt hvernig best væri að forðast að veita Watt athygli og reyndu vakt­stjórar að skipuleggja vaktir þannig að sem fæstar konur væru að vinna þegar hann var væntanlegur í heimsókn.

Þá lýsir starfs­fólk því þegar það sá Watt kyssa ölvaðan viðskiptavin á þaksvölum eins af börum BrewDog. Hann var einnig þekktur fyrir að bjóða konum í einka­ferðir um brugg­verksmiðjur BrewDog seint á kvöldin.

„Vöruðum nýju stelpurnar við“

Katelynn Ising, sem starfaði á DogTap, stærsta bar og brugghúsi BrewDog í Ohio, segir konur sem unnu á barnum hafi klætt sig öðruvísi þegar Watt var á svæðinu.

„Við vöruðum nýju stelpurnar við, eins og segja þeim að fara strax eftir vaktina, ekki mála sig eða hafa sig sérstak­lega til, ekki vekja athygli hjá honum,“ segir Ising, sem varð einnig vitni af fjölmörgum skoðunar­ferðum Watt um brugg­verksmiðjuna með ungum konum. „Þær voru alltaf drukknar og flestar á þrítugsaldri. Þær voru sætar og hann sagðist vera að gefa þeim einka­skoðunar­ferð um brugg­verksmiðjuna.“

Þessi hegðun Watt var óþægileg að mati Ising og Jackie English, fyrr­verandi vakt­stjóri, tekur í sama streng. „Þú ert að sýna starfs­fólki þínu að þú getir gert hvað sem þú vilt vegna þess hver þú ert og hvað þú heitir. Þannig leið mér mjög oft,“ segir English. Barþjónn sem kaus að koma ekki fram undir nafni segir Watt hafa verið gefinn fyrir að stara. „Hann starði mikið. Mig langaði bara að fara og þurfa ekki að takast á við þetta,“ segir barþjónninn sem skipti vöktum eins og hún gat til að forðast Watt.

Lögmaður Watt segir það ekki rétt að Watt hafi boðið drukknum, ungum konum í skoðunar­ferðir. Hann segir Watt vissulega hafa boðið bæði konum og körlum, vinum og viðskipta­vinum, í skoðunar­ferðir um brugg­verksmiðjuna að kvöldi til. Það sé hins vegar ekkert til í því að þau sem voru í þessum ferðum hafi verið drukkin. Í bréfi til fjárfesta sem Watt sendi eftir þáttinn útskýrir hann að í ferðum sínum til Banda­ríkjanna hafi hann stundum farið á stefnumót og hafi nokkrum sinnum boðið konum á stefnumót í brugg­verksmiðjunni. Að hans mati er ekkert óviðeigandi við þá hegðun.

Rætt var við yfir hundrað núverandi og fyrr­verandi starfs­menn BrewDog við vinnslu þáttarins. Flest þeirra sem enn starfa á börum fyrir­tækisins sögðust ekki vilja tjá sig opinber­lega þar sem þau gætu átt í hættu á að missa vinnuna. Kayla McGuire, starfs­maður í brugg­verksmiðjunni í Ohio, er ein þeirra sem kemur fram undir nafni. „Stjórn­endur ættu ekki að geta ógnað starfs­fólki sínu,“ segir hún.

Hafnar öllum ásökunum en ætlar að „betrumbæta stjórnunarstílinn“

Watt er hvergi sakaður um saknæma hegðun gagnvart konum í umfjöllum BBC Disclosure en hann baðst undan viðtali við vinnslu þáttarins. Stjórnar­maður í stjórn BrewDog segist hafa gögn frá Watt sem sanna að því sem haldið er fram í þættinum sé byggt á röngum upplýsingum. Á sama tíma segir hann þó að Watt sé stað­ráðinn í að betrumbæta stjórnunar­stíl sinn.

Eftir birtingu þáttarins bað Watt alla afsökunar sem hefur liðið óþægilega í návist hans. Að hans mati eru allar ásakanir á hendur honum byggðar á „ósönnum orðrómum“ og „röngum upplýsingum“. Watt hyggst leita réttar síns í kjölfar þáttarins til að „vernda orðspor sitt“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár