Bjórpönkarar sem leiða nýja kapítalismann

BrewDog hefur á tæpum ára­tug búið til á sjötta tug teg­unda af hand­verks­bjórum, sett heims­met í hóp­fjár­mögnun, sent fjár­mála­fyr­ir­tækjum ítrekað fing­ur­inn og látið til sín taka í mann­rétt­inda­málum.

Allt áhuga­fólk um hand­verks­bjór (e. craft beer) þekkir skoska brugg­húsið BrewDog. Eða ættu að minnsta kosti að þekkja það. Á tæpum ára­tug hefur þessu hug­ar­fóstri tveggja þá rúm­lega tví­tugra Skota, sem voru komnir með ógeð af bragð­lausum og flötum lag­er­bjór, náð að verða eitt af mest vax­andi drykkj­ar­vöru­fram­leið­endum í Bret­landi, gefa fjár­mála­kerf­inu risa­stóran putt­ann og standa fyrir stærsta hóp­fjár­mögn­un­ar­verk­efni heims. Án þess að gefa neinn afslátt að því sem gerir fyr­ir­tækið sér­stakt.

Og nú ætla þessir pönk­arar bjór­heims­ins að sigra Banda­ríkin. Án banka­lána en vopn­aðir við­skipta­á­ætlun sem þeir kalla „and-við­skipta­lega“.

Skoskir hugsjónarmenn og hundurinn þeirra

BrewDog var stofnað árið 2007 í Fra­serburg í Skotlandi af tveimur hug­sjóna­mönnum, James Watt og Martin Dickie. Fyr­ir­tækið verður því tíu ára á næsta ári. Þeir eru hug­sjóna­menn af mörgum ástæðum. Á Twitter-síðu Watt segir til að mynda að hann sé kapteinn BrewDog, og verk­efni hans sé að bjarga heim­inum frá vondum bjór.

James Watt og Martin Dickie stofnuðu BrewDog árið 2007 í Skotlandi.
James Watt og Martin Dickie stofn­uðu BrewDog árið 2007 í Skotlandi.

Þegar þeir stofn­uðu BrewDog voru menn­irnir tveir ein­ungis 24 ára gamlir. Til að byrja með voru þeir Watt og Dickie einu hlut­haf­arnir, fram­leiddu bjór­inn sjálfir, settu hann á flöskur og seldu annað hvort beint til kaup­manna eða út um skottið á gömlum sendi­bíl sem þeir áttu. Á ein­hvern ótrú­legan hátt tókst þeim að útvega sér það sem þeir kalla „skelfi­leg“ banka­lán til að koma starf­sem­inni af stað.

Ári síðar voru starfs­menn­irnir orðnir níu, auk eins hunds. Sá hundur, sem nú er lát­inn, var af labrador kyni og hét Bracken. BrewDog-fyr­ir­tækið er nefnt eftir honum.

Strax á því ári, 2008, varð BrewDog stærsta sjálf­stæða bjór­brugg­hús Skotlands. 2009 var fyr­ir­tækið orðið mest ört vax­andi „alt­ernative“ bjór­fram­leið­andi í Bret­landi og flagg­skips­bjór­inn þeirra, hinn dásam­legi Punk IPA, varð mest seldi IPA (India Pale Ale) bjór­inn í Skand­in­avíu. Á grunni þessa vaxtar varð til það sem Watt og Dickie kalla and-við­skipta við­skipta­á­ætl­unin þeirra, „Equity for Punks“. Grunn­hug­myndin er sú að fjár­magna rekstur fyr­ir­tæk­is­ins, og vöxt þess, án aðkomu hefð­bund­inna fjár­mála­stofn­ana. Þ.e. engin fleiri banka­lán og engir ríkir stórir fjár­festar í jakka­fötum.

Í lok árs 2009 hafði hlut­höfum fjölgað í 1.329 þótt að stofn­end­urnir tveir, og starfs­fólk þeirra, ættu enn langstærstan hlut í BrewDog.

Bankar gera bjór lélegan

Síðan þá hefur leiðin legið hratt upp á við hjá þessu eina áhuga­verð­asta fyr­ir­tæki Evrópu. Það hóf að opna BrewDog bari víða um Bretland og sækja sér fé í gegnum hóp­fjár­mögnun. Þ.e. áhuga­sömum BrewDog aðdá­endum var gefið tæki­færi til þess að fjár­festa í fyr­ir­tæk­inu sem fram­leiddi upp­á­halds­bjór­inn þeirra. Þeir gátu orðið virðu­legir eig­endur að brugg­húsi.

Punk IPA er vinsælasti IPA-bjórinn í skandinaívu.
Punk IPA er vin­sæl­asti IPA-bjór­inn í skand­inaívu.

Hóp­fjár­mögn­unaræv­in­týri BrewDog hefur verið stigið í nokkrum skrefum frá árinu 2010. Árið 2013 safn­aði fyr­ir­tækið 4,25 millj­ónum punda, um 780 millj­ónum króna, á innan við hálfu ári. Sá árangur var á þeim tíma met í hóp­fjár­mögnun.

Í fyrra til­kynnti BrewDog en metn­að­ar­fyllra plan. Fyr­ir­tækið ætl­aði sér að safna 25 millj­ónum punda, um 4,6 millj­arða króna, með hóp­fjár­mögnun. Enginn sér­stakur tímara­mmi var settur til að ná þess­ari upp­hæð. Þeir ætl­uðu bara að ná henni. Fyr­ir­tækið sagði sem fyrr að ástæða þessa væri sú að það vildi kom­ast hjá því að fjár­mála­fyr­ir­tæki myndu græða á fjár­mögnun þess. Alls voru 526.316 hlutir í BrewDog boðnir til sölu í skiptum fyrir fram­lög almenn­ings og lág­marks­þát­taka lág­markið sem þurfti að kaupa voru tveir hlutir á 95 pund, alls tæp­lega 17.500 krónur.

„Fjár­mála­stofn­anir hafi ýtt undir það að bjór sé lélegur og ódýr með því að hafa gróða alltaf að leið­ar­ljósi. Það sætti BrewDog sig ekki við.“

Venju sam­kvæmt sendi BrewDog frá sér yfir­lýs­ingu vegna fjár­mögn­un­ar­innar. Hún var hástemmd og her­ská, líkt og von var á úr þeirri átt­inni. Þar er haft eftir Watt að bylt­ing hafi orðið í gerð hand­verks­bjórs á und­an­förnum árum og með þeirri bylt­ingu hafa tek­ist að end­ur­skil­greina bjór. Nú væri hins vegar komið að því að end­ur­skil­greina fjár­mögn­un­ar­kerfi heims­ins. Fjár­mála­stofn­anir hafi ýtt undir það að bjór sé lélegur og ódýr með því að hafa gróða alltaf að leið­ar­ljósi. Það sætti BrewDog sig ekki við.

Heimsmet í hópfjármögnun

Í októ­ber 2015 var til­kynnt að metið hefði verið slegið þegar hóp­fjár­mögn­unin fór yfir tíu millj­ónir punda, rúm­leg 1,8 millj­arð króna. Sam­an­lagt hefur Brewdog náð í yfir 20 millj­ónir punda, um 3,6 millj­arða króna, í hóp­fjár­mögnun frá árinu 2010. Það er meira en nokk­urt annað fyr­ir­tæki hefur náð í í gegnum þetta fjár­mögn­un­ar­form.

Í lok árs 2015 voru hlut­hafar í BrewDog orðnir fleiri en 32 þús­und tals­ins. Barir fyr­ir­tæk­is­ins víða um heim eru orðnir 44 tals­ins og það fram­leiddi 160 þús­und hektólítra (um 16 millj­ónir lítrar) af bjór á síð­asta ári. Það er rúm­lega fjórum sinnum meira en það gerði árið 2012 og svipað magn og ÁTVR seldi af bjór allt árið 2014. Til að setja þá tölu í skilj­an­legra sam­hengi þá fram­leiddi BrewDog alls 2,2 millj­ónir flaskna og um 400 þús­und dósir af bjór í hverjum mán­uði á síð­ast ári. Alls brugg­aði BrewDog 65 mis­mun­andi bjór­teg­undir á árinu 2015. Og und­ir­bjó sína metn­að­ar­fyllstu útrás til þessa, inn á Banda­ríkja­markað.

Rekst­ur­inn hefur, svo vægt sé til orða tekið, gengið vel á und­an­förnum árum. Í fyrra jókst velta BrewDog um 52 pró­sent í 45 millj­ónir punda, um 8,2 millj­arða króna. Salan í Bret­landi meira en tvö­fald­að­ist. Rekstr­ar­hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins hefur auk­ist um 112 pró­sent á ári að með­al­tali frá árinu 2011. Hann var um 1,5 millj­arðar króna í fyrra.

Þessi mikli árangur hefur orðið til þess að metn­aður BrewDog-manna hefur auk­ist hratt. Og nú ætla þeir að sigra Banda­ríkja­markað. Fyr­ir­tækið ætlar að opna nýja verk­smiðju í Columbus í Ohio-ríki síðar á þessu ári til að styðja við þetta háleita mark­mið.

Við þetta mun fram­leiðslu­geta BrewDog marg­fald­ast. Hún mun fara úr um 160 þús­und hektólítrum í 1,5 milljón hektólítra. Fyrir lok árs 2016. Samhliða verður Banda­ríkja­mönnum í fyrsta sinn gert kleift að taka þátt í hóp­fjár­mögnun fyr­ir­tæk­is­ins, „Equity for Punks“.

Hello my name is Vladimir-bjórinn er dæmi um það hvernig BrewDog kýs að vekja á sér athygli.
Hello my name is Vladimir-bjór­inn er dæmi um það hvernig BrewDog kýs að vekja á sér athygli.

Gáfu allar uppskriftirnar sínar

Það er auð­vitað mjög djarft að ætla sér í alþjóð­lega útrás á þeim skala sem BrewDog er að ráð­ast í án láns­fjár­mögn­unar. Og í algjörri and­stöðu við það sem telst hefð­bundið í þeim efnum. Því þarf fyr­ir­tækið reglu­lega að vekja athygli á sér. Það gerir BrewDog m.a. með því að gefa út bjór sem hét „Hello My Name is Vladimir“, með mynd af Vladimir Putin Rúss­lands­for­seta með farða sem var ekki fyrir sam­kyn­hneigða. Bjórinn var sér­stak­lega fram­leiddur til að mót­mæla fram­ferði rúss­neskra stjórn­valda gagn­vart sam­kyn­hneigðum og helm­ingur ágóð­ans vegna sölu hans rann til góð­gerða­sam­taka sem berj­ast fyrir rétt­indum kúg­aðra minni­hluta­hópa víðs vegar um heim­inn.

Í fyrra setti fyr­ir­tækið á markað „No Label“ bjór­inn sem átti að vera sér­stak­lega fyrir trans­fólk og sýna bar­áttu þeirra fyrir auk­inni við­ur­kenn­ingu stuðn­ing.

Snemma á þessu ári settu BrewDog síðan allar upp­skriftir af bjórum sem fyr­ir­tækið hefur fram­leitt frá því að það var stofn­sett, á netið. Það ákvað sem sagt, undir því yfir­varpi að gjörn­ing­ur­inn væri ein­hvers­konar virð­ing­ar­vottur við heima­brugg, að gefa við­skipta­vinum sínum leið­ar­vís­inn að því að búa til upp­á­halds­bjór­anna sína. The Guardian sagði að verk­efnið setti BrewDog í fram­varð­ar­sveit póst-kap­ít­alísm­ans. Þess skeiðs sem muni taka við af hinum hreina kap­ít­al­isma, þar sem þriðju aðilar á borð við fjár­mála­fyr­ir­tæki högn­uð­ust mest á hug­myndum og frum­kvæði ann­ara. Nú sé tími milli­lið­anna hins vegar að líða undir lok.

Og árangur BrewDog hefur vakið athygli ann­arra og stærri aðila á mark­aðnum. Meira að segja þeirra sem BrewDog gagn­rýnir mest. En afstaða stofn­enda og stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins er skýr, og í henni felst líka mikið aug­lýs­inga­gildi. Hér er tíst frá James Watt, öðrum stofn­enda BrewDog, frá því í jan­úar:

En BrewDog á sína gagn­rýnendur líka. Mann­rétt­inda­bjór­arnir þeirra hafa verið kall­aðir yfir­læt­is­legar til­raunir til að nýta sér mann­rétt­inda­brot til að mark­aðs­setja fyr­ir­tækið. Og þeir hlutir sem fyr­ir­tækið lætur „með­fjár­festum“ sínum í té í hóp­fjár­mögnun sinni eru af dýr­ari gerð­inni, enda eiga stofn­end­urnir tveir enn yfir 60 pró­sent hlut í BrewDog og starfs­menn þeirra á annan tug pró­senta til við­bótar.

BrewDog-bar í Reykjavík?

Hvað sem öllum finnst þá heldur BrewDog ævin­týrið áfram. Til við­bótar við Banda­ríkja­út­rás­ina ætlar fyr­ir­tækið að halda áfram að opna sér­staka BrewDog-bari í sam­starfi við góða rekstr­ar­að­ila víðs vegar um heim­inn á þessu ári. Og þegar áætl­anir fyr­ir­tæk­is­ins í fyrir árið 2016 voru kunn­gerðar í jan­úar vakti athygli að ein þeirra borga sem það hefur auga­stað á nú er Reykja­vík.

Því gæti verið stutt í að hand­verks­bjór­þyrstir Íslend­ingar geti fengið breitt úrval af BrewDog bjór af krana í höf­uð­borg­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár