BrewDog opnar í Reykjavík

Skoska brugg­húsið BrewDog mun opna á horni Frakka­stígs og Hverf­is­götu í sumar.

Brugg­húsið BrewDog mun opna á Íslandi snemma í sumar á horni Frakka­stígs og Hverf­is­götu. BrewDog er skoskt hand­verks­brugg­hús sem bruggar og selur gæða­bjór. Þór­hallur Við­ars­son er fram­kvæmd­ar­stjóri BrewDog Reykja­vík og segir hann að það hafi staðið til í nokkurn tíma að fá BrewDog til Íslands.

[links]„Það er nokkuð síðan að BrewDog gaf það út opin­ber­lega að þeir hefðu auga­stað á að opna bar á Íslandi.“ segir Þór­hallur. Að komu BrewDog til Íslands standa Þór­hallur, Eyþór Mar Har­alds­son, mat­reiðslu­maður og Róbert Ólafsson eig­andi For­rétta­bars­ins.

„Það voru nokkrir búnir að hafa þetta á teikni­borð­inu í nokkurn tíma, ég kem svo inn í ferlið í byrjun febr­úar.” segir Þór­hallur. Ásamt þeim Þórhalli, Eyþóri og Róberti standa fjár­festar og bjórá­huga­menn að opn­un­inni.

[adspot]BrewDog var stofnað árið 2007 í Skotlandi af James Watt og Martin Dickle. Þeir hafa farið nokkuð sér­staka leið við að byggja fyr­ir­tækið upp, en starf­semin bygg­ist á hóp­fjár­mögnun. BrewDog hefur slegið heims­met í hóp­fjár­mögnun en nú eiga yfir 70 þús­und hlut­hafar í fyr­ir­tæk­inu. Fyr­ir­tækið hefur verið á lista Sunday Times yfir 100 ört vax­andi fyr­ir­tæki í heim­inum sex ár í röð, enda hefur fyr­ir­tækið vaxið á ógnar hraða síð­ustu ár. Þór­hallur segir að það séu undir tíu manns sem koma að fjár­mögnun stað­ar­ins hér á landi.

Mikil áhersla lögð á bjór og mat

Stað­ur­inn verður ekki aðeins bar heldur einnig veit­inga­hús. „Það er verður lögð mikil áhersla á bjór og mat, og pörun þar á milli.“ segir Þór­hallur. Þeir stefna á að vera með ívið stærri og flott­ari veit­inga­stað en tíðkast á börum BrewDog í öðrum löndum.

„Við setjum stefn­una hærra hvað varðar mat og úrval og verðum með bæði kjöt, fisk, græn­met­is­rétti og vegan­rétti.“ segir Þór­hallur.

Á BrewDog verða 20 bjórar á krana en stefnt verður að því að hafa 40 pró­sent af þeim krönum undir gesta­bjóra, eða bjóra sem ekki eru brugg­aðir af BrewDog. Þór­hallur segir að hluti af þeim verði fyrir íslenska bjóra en mikil gróska hefur verið í brugg­menn­ingu hér á landi síð­ast­liðin ár.

„Við viljum setja fók­us­inn á öll þessi litlu brugg­hús sem eru ekki kom­inn á þann stað að hafa mikla dreif­ingu.“ segir Þór­hallur. Mikil velta verður á bjórúr­val­inu segir Þór­hallur og þó fólk komi í hverri viku eigi að vera eitt­hvað nýtt í boði hverju sinni.

BrewDog á og rekur 46 bari víðs­vegar um heim­inn og á árinu 2017 brugg­uðu þau yfir 343 þús­und hektólítra af bjór. Fyr­ir­tækið bruggar bjór­inn ekki aðeins í Skotlandi þar sem höf­uð­stöðv­arnar eru í Ellon, heldur hófst fram­leiðsla í Ohio í Banda­ríkj­unum á árinu 2017. Þeir Watt og Dickle stefna á að opna einnig verk­smiðju í Ástralíu á næstu miss­erum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár