Vilja slá met í hópfjármögnun með fjárfestingum í bjór

Stærsta sjálf­stæða brugg­húsið í Skotlandi, Brewdog, ætlar á næst­unni að safna 25 millj­ónum punda í hópsöfnun. Fyr­ir­tækið seg­ist vilja kom­ast hjá því að fjár­mála­fyr­ir­tæki græði á fjár­mögn­un­inni, og kallar hópsöfn­un­ina Equity for Punks, sem væri hægt að þýða sem Eigið fé fyrir pönk­ara. Nafnið er vísun í þekktasta bjór Brewdog, sem heitir Punk IPA.

526,316 hlutir í fyr­ir­tæk­inu verða seldir í skiptum fyrir fram­lög almenn­ings og lág­markið verður tveir hlutir fyrir 95 pund. Fyr­ir­tækið hefur áður ráð­ist í hóp­fjár­mögnun og safn­aði 4,25 millj­ónum punda á innan við hálfu ári árið 2013. Með því var slegið met í hóp­fjár­mögnun en nú vill fyr­ir­tækið fimm­falda þessa upp­hæð og slá ný met.

Brugg­húsið rekur nú 27 bari um heim­inn en fyr­ir­tækið var stofnað af þeim Martin Dickie og James Watt árið 2007. Þeir keyptu not­aðar brugggræjur og hófust handa, en í dag er Brewdog það vöru­merki í mat og drykk í Bret­landi sem vex hvað hrað­ast. Bjórinn er seldur til 55 ríkja, hann er meðal ann­ars fáan­legur á Íslandi, og 360 manns vinna hjá Brewdog.

Watt segir í nokkuð hástemmdri yfir­lýs­ingu að bylt­ing hafi orðið í vönd­uðum bjór (e. craft beer) og tek­ist hafi að end­ur­skil­greina bjór­inn. Nú sé komið að því að end­ur­skil­greina fjár­mögn­un­ar­kerfi. Fjár­mála­stofn­anir hafi ýtt undir það að bjór sé lélegur og ódýr með því að hafa gróða alltaf að leið­ar­ljósi.

„Til að leyfa Brewdog að vaxa en vera áfram trúir okkar sann­fær­ingu höfum við þurft að búa til nýja kyn­slóð við­skipta­mód­ela. Equity for Punks færir stjórn­ina til fólks­ins sem þykir vænt um bjór­inn okkar, og þannig höldum við ástríð­unni og trú­verð­ug­leik­anum í bjór­glösum fólks.

Við erum ekki Rockefeller, við erum Guy Fawkes. Við erum að brenna kerfið - normið - og búa til nýja fram­tíð fyrir fyr­ir­tæki úr rúst­unum,“ sagði hann jafn­framt og bætti því við að ýta ætti ríka fólk­inu til hliðar og veita almenn­ingi vald til að ráða eigin örlögum með því að fjár­festa í ástríð­unni fyrir vönd­uðum bjór.

Fyrir áhuga­sama er hægt að fjár­festa í bjór­fyr­ir­tæk­inu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár