Verðhrun á mörkuðum...aftur

Yfir­lýsingar frá Englands­banka, um að vextir yrðu mögulega hækkaðir hraðar, settu af stað mikla hrinu lækkana á verðbréfa­mörkuðum

Hlutabréfa­verð hrundi á alþjóða­mörkuðum í dag, víðast hvar um 3 til 5 prósent. Eins og oft, þegar svona mikil dagsveifla verður, er eru margar skýringar nefndar fyrir fallinu, sem enn er viðvarandi þegar þetta er skrifað (21:32).

Á vef Wall Street Journal og BBC kemur fram að fjár­festar hafi brugðist hratt við yfir­lýsingum Englands­banka (Bank Of England) þess efnis að vextir yrðu hugsanlega hækkaðir hraðar en áður hafði verið búist við, og að verðbólga kunni að vaxa á næstunni.

Verð á hráolíu féll einnig töluvert, en það hefur lækkað um 2,3 prósent í dag á Bandaríkja­markaði og er nú tunnan nú komin í 60 Bandaríkja­dali.

Eins og á föstu­daginn í síðustu viku og á mánudag, þegar hlutabréf lækkaði með skörpum hætti, þá hefur mesta lækkunin verið í Banda­ríkjunum. Svo virðist sem fjár­festar séu nú margir hverjir farnir að búa sig undir það, að „lognið“ sem seðla­bankar hafa veitt hagkerfum og verðbréfa­mörkuðum á undan­förnum tíu árum, með því að halda vöxtum niðri og stuðla að miklu magni fjármagns í umferð, sé nú á förum.

Í umfjöllun Wall Street Journal segir að ráðgjafar innan banka í Banda­ríkjunum hafi gefið fjár­festum út þau skilaboð að halda ró og taka ekki ákvarðanir á grund­velli skarpra dagsveiflna á markaði.

Þessar sveiflur nú ættu ekki að koma mörgum á óvart, í ljósi mikils uppgangs á hlutabréfa­mörkuðum á undan­förnum árum. Ekki aðeins á undan­förnu ári, heldur í reynd allt frá því að viðspyrnan hófst á fjármála­mörkuðum eftir hrunið 2007 til 2009.

Aðgerðir seðla­banka, ekki síst í Banda­ríkjunum, Bretlandi og Evrópu, hafa haft víðtæk áhrif á gang efnahags­mála og þróun á verðbréfa­mörkuðum.

Á sumar­mánuðum í fyrra sagði Jamie Dimon, forstjóri JP Morgan bankans, meðal annars að „enginn hefði hugmynd um“ hvað myndi gerast, þegar íhlutun seðla­banka á markaði myndi minnka og hefð­bundið ástand myndast á markaði á nýjan leik. Um það væri algjör óvissa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár