Jáeindaskanninn stórt og tímafrekt verkefni

Forstjóri Land­spítalans segir ákveðins misskilnings hafa gætt varðandi uppsetningu jáeinda­skannans sem nú er kominn í notkun.

Jáeindaskanni
Jáeindas­kanni Mynd: EPA

Jáeindaskanninn var nýlega tekinn í notkun á Land­spítalanum en undir­búningur verk­efnisins hófst fyrir þremur árum. Aldrei hefur verið til jáeindaskanni á Íslandi en í byrjun ágúst árið 2015 tilkynnti Kári Stef­ánsson forstjóri Íslenskrar erfða­greiningar að fyrir­tækið hefði skuld­bundið sig til að gefa íslensku þjóðinni jáeinda­skanna til notkunar á spítalanum. Kári sagði aftur á móti í vikunni í viðtali við mbl.is að ferlið síðan fyrsta skóflu­stungan að húsinu var tekin í janúar 2016 hefði verið röð af klaufa­skap og mistökum.

Páll Matthíasson forstjóri Land­spítalans fjallar um málið í sínum vikulega pistli á vef Land­spítalans og segir ákveðins misskilnings hafa gætt varðandi framgang verk­efnisins.

Hann segir að uppsetning flókins búnaðar og framleiðslu­tækni, sem jáeindaskanninn krefst, sé stórt verkefni sem þrátt fyrir að tæknin sé ný hér á landi hafi gengið ágætlega og sé nú í höfn, þremur árum eftir að hafist var handa við undir­búninginn.

„Einhverjar væntingar voru um að mögulega yrði hægt að taka skannann í notkun fyrr en reynslan sýnir að þetta er tímafrekt verkefni og gera má ráð fyrir að undir­búningur taki a.m.k. 3 til 4 ár,“ segir hann og bendir á önnur dæmi á Norður­löndunum þar sem sjúkrahús hafa staðið í svipuðum verkefnum.

„Þetta þekkjum við frá nágranna­þjóðum og ágætt dæmi er að nokkru áður en Land­spítala barst gjöf Íslenskrar erfða­greiningar fyrir hönd þjóðarinnar árið 2015 fékk háskóla­sjúkrahúsið í Tromsö, sem að mörgu leyti sinnir áþekkum verkefnum og Land­spítali, sambærilega gjöf. Þar hófust byggingar­framkvæmdir um haustið en frændur okkar í Noregi gera ráð fyrir að fram­leiðsla eigin merki­efnis hefjist næsta vor, rúmum fjórum árum eftir að gjöfin var gefin og eru ekki gerðar athugsemdir við það. Reynslan er svipuð af öðru verkefni í Þrándheimi,“ segir hann.

Hann bætir því við að Íslendingar hafi með miklu færri, en afar einbeittum, starfs­mönnum náð að ljúka þessu ferli talsvert fyrr og það beri að lofa.

Kjarninn fjallaði um ferlið í desember síðastliðnum. Pétur H. Hannesson, yfir­læknir á röntgen­deild á Land­spítala Háskóla­sjúkrahúsi, sagði í samtali við Kjarnann að mikla vinnu tæki að undirbúa verkefnið og að stærsti hluti undir­búnings starfseminnar hefði farið í að setja upp framleiðslu­einingu fyrir það efni sem sjúklingum er gefið vegna rann­sóknarinnar. Síðasta haust hefði tækja­búnaður vegna fram­leiðslunnar verið í prófun.

Farið eftir ströngum alþjóðlegum reglum

Miklar kröfur eru gerðar til húsnæðis, tækja og framleiðslu­ferilsins og er notkun merki­efnis í jáeinda­skanna háð leyfis Lyfja­stofnunar, að sögn Péturs. Farið væri eftir mjög ströngum alþjóð­legum reglum við leyfis­veitinguna og væri umsóknar­ferillinn langur og strangur og sömu kröfur gerðar til þessarar fram­leiðslu og lyfja­framleiðslu stórra lyfja­fyrirtækja.

Hann sagði enn fremur að bygging 250 fermetra húsnæðis undir starfsemina, uppsetning tækja­búnaðar og prófanir hefði gengið vel. Stefnt hefði verið að því að hefja notkun snemma síðastliðið haust en dráttur á afhendingu vottaðs húsnæðis hefði ollið nokkrum töfum.

Eru þá liðin tæp þrjú frá því að verkefnið fór í gang og sagði Pétur að fá dæmi mundi vera um svo hraðan framgang verkefnis sem þessa. Notkun þessar rann­sóknar­aðferðar væri ný hér á landi og mundi taka tíma að koma starfseminni og notkun jáeinda­skanna í endanlegt horf.

Jáeindaskanni olli miklum framförum

Jáeindaskanni er íslenska heitið á mynd­greiningar­tæki sem kallast PET/CT á fræðimáli og er einkum notað til að greina og meta æxli í mann­líkamanum. Þessi tækni sá dagsins ljós á seinustu áratugum 20. aldar og olli miklum framförum í greiningu og meðhöndlun á krabbameins­æxlum en búnaðinn má einnig nota við greiningar á öðrum sjúkdómum.

Jáeindaskanninn varð til við samruna tveggja áður þekktra greiningar­tækja; annars vegar tölvu­sneiðmynda­tækis sem er röntgen­tæki sem gerir okkur kleift að sjá og mynda innri líffæri sjúklings og hins vegar mynd­greiningar­tækis sem greinir geisla­virkar jáeindir frá efni sem sprautað er í sjúkling og safnast fyrir til dæmis í krabbameins­frumum. Heiti tækisins er dregið af jáeindunum.

Geislavirk efni búin til í hringhraðli

Jáeinda­skannanum fylgir óhjá­kvæmilega mikill og flókinn búnaður sem notaður er til að framleiða geisla­virk merkiefni í sérstakri lyfja­framleiðslu­stofu sem er síðan sprautað í sjúklinginn. Sjúklingurinn sér aðeins jáeinda­skannann en búnaðurinn er að öðru leyti aðeins aðgengi­legur starfs­fólki spítalans því fram­leiðsla og meðhöndlun geisla­virkra efna er aðeins á færi þeirra sem fengið hafa til þess þjálfun.

Geisla­virku efnin eru búin til í svokölluðum hringhraðli sem komið er fyrir í stein­steypum klefa neðanjarðar. Inni í hraðlinum er rafstraumur notaður til að auka hraða öreindar, og segulsvið til þess að halda henni á hringlaga braut. Öreindinni er skotið á efni sem umbreytist í geisla­virka samsætu.

Geisla­virka efnið er leitt inn í lyfja­framleiðslu­stofu þar sem það er sameinað efni með sækni í ákveðna vefi í líkamanum. Merki­efninu er sprautað er í sjúklinginn með vélmenni en áður en það er gert þarf að prófa það til þess að ganga úr skugga um allt sé fullkomlega rétt og hrein­leiki og gæði eins og vera ber. Þær prófanir fara fram á gæða­stjórnunar­stofu við hlið framleiðslu­stofunnar.

Sjúklingurinn þarf að liggja kyrr í klukkutíma

Eftir að merki­efninu hefur verið sprautað í sjúklinginn þarf hann að liggja kyrr í um það bil klukku­stund á meðan geisla­virka efnið dreifist um líkamann og safnast fyrir í þeim krabbameins­æxlum sem kunna að vera í honum. Að því búnu fer sjúklingurinn í jáeinda­skannann sem tekur myndir þar sem hægt er að greina þá staði þar sem að merki­efnið gefur frá sér jáeindir.

Geisla­virkni efnisins dvínar hratt og eftir skamma stund er hún orðin svo lítil að ekki stafar hætta af henni. Nauðsynlegt er að hanna og byggja sérstakt hús yfir jáeinda­skannann og tækja­búnaðinn sem honum fylgir. Fram­leiðsla og meðhöndlun geisla­virkra efna er mjög vandmeðfarin og krefst ýtrustu aðgætni. Búa þarf þannig um hnútana að enginn verði fyrir hættulegri geislun.

Merki­efnið sem sprautað er í sjúklinga verður framleitt í rannsóknar­stofu sem fullnægir alþjóð­legum stöðlum um hrein­leika. Húsnæðið rannsóknar­stofunnar og allt sem í því verður þarf að vera eins hreint og frekast er unnt. Til þess að tryggja hámarks­nákvæmni við skömmtun lyfjanna er notað vélmenni en eftir að geisla­virku lyfi hefur verið sprautað í sjúkling er hann geisla­virkur skamma stund og því ber að forðast að starfs­fólk og aðrir sjúklingar nálgist hann um of. Haga þarf innri skipan hússins í samræmi við það.

Heimildir: Íslensk erfða­greining

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár