Jáeindaskanni kemst í gagnið í byrjun næsta árs

Bygging 250 fer­metra hús­næðis undir starf­sem­ina, upp­setn­ing tækja­bún­aðar og próf­anir hafa gengið vel. Stefnt var að því að hefja notkun snemma í haust en dráttur á afhend­ingu vott­aðs hús­næðis hefur valdið nokkrum töfum.

Starfsemi jáeindaskanna byggir á framleiðslu skammlífrar geislavirkrar samsætu sem er tengd merkiefni.
Starf­semi jáeindaskanna byggir á fram­leiðslu skamm­lífrar geisla­virkrar sam­sætu sem er tengd merki­efni. Mynd: EPA

Aldrei hefur verið til jáeindas­kanni á Íslandi en í byrjun ágúst árið 2015 til­kynnti Kári Stef­áns­son að Íslensk erfða­grein­ing hefði skuld­bundið sig til að gefa íslensku þjóð­inni jáeindaskanna til notk­unar á Land­spít­al­anum.

Eftir rúm­lega tveggja ára bið fer að stytt­ast í að jáeindas­kann­inn kom­ist í gagnið en mikla vinnu tekur að und­ir­búa verk­efnið. Að sögn Péturs H. Hann­es­sonar yfir­læknis á röntgen­deild á Land­spít­ala Háskóla­sjúkra­húsi standa vonir til að unnt verði að rann­saka fyrstu sjúk­ling­ana í jan­úar 2018.

Hann segir að stærsti hluti und­ir­bún­ings starf­sem­innar hafi farið í að setja upp fram­leiðslu­ein­ingu fyrir það efni sem sjúk­lingum er gefið vegna rann­sókn­ar­innar. Und­an­farna mán­uði hafi tækja­bún­aður vegna fram­leiðsl­unnar verið í prófun.

Farið eftir ströngum alþjóðlegum reglum

Miklar kröfur eru gerðar til hús­næðis, tækja og fram­leiðslu­fer­ils­ins og er notkun merki­efnis í jáeindaskanna háð leyfis Lyfja­stofn­unar, að sögn Péturs. Farið sé eftir mjög ströngum alþjóð­legum reglum við leyf­is­veit­ing­una og sé umsókn­ar­fer­ill­inn langur og strangur en sömu kröfur gerðar til þess­arar fram­leiðslu og lyfja­fram­leiðslu stórra lyfja­fyr­ir­tækja.

Hann segir enn fremur að bygg­ing 250 fer­metra hús­næðis undir starf­sem­ina, upp­setn­ing tækja­bún­aðar og próf­anir hafi gengið vel. Stefnt hafi verið að því að hefja notkun snemma í haust en dráttur á afhend­ingu vott­aðs hús­næðis hafi ollið nokkrum töfum. Eins og fram hefur komið er áætlað að unnt verði að rann­saka fyrstu sjúk­ling­ana í jan­úar á næsta ári.

Tekur tíma að koma starfseminni í endanlegt horf

Eru þá liðin rúm tvö ár frá því að verk­efnið fór í gang og segir hann að fá dæmi muni vera um svo hraðan fram­gang verk­efnis sem þessa. Notkun þessar rann­sókn­ar­að­ferðar sé ný hér á landi og muni taka tíma að koma starf­sem­inni og notkun jáeindaskanna í end­an­legt horf.

„Ef engir hnökrar verða á því að hefja starf­semi munu nær allir þeir sjúk­lingar sem hingað til hafa þurft að sækja þessa þjón­ustu til Kaup­manna­hafnar verða rann­sak­aðir hér á landi á fyrstu vikum nýs árs,“ segir hann í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Jáeindaskanni olli miklum framförum

Jáeindas­kanni er íslenska heitið á mynd­grein­ing­ar­tæki sem kall­ast PET/CT á fræði­máli og er einkum notað til að greina og meta æxli í mann­lík­am­anum. Þessi tækni sá dags­ins ljós á sein­ustu ára­tugum 20. aldar og olli miklum fram­förum í grein­ingu og með­höndlun á krabba­meinsæxlum en bún­að­inn má einnig nota við grein­ingar á öðrum sjúk­dómum.

Jáeindas­kann­inn varð til við sam­runa tveggja áður þekktra grein­ing­ar­tækja; ann­ars vegar tölvu­sneið­mynda­tækis sem er röntgentæki sem gerir okkur kleift að sjá og mynda innri líf­færi sjúk­lings og hins vegar mynd­grein­ing­ar­tækis sem greinir geisla­virkar jáeindir frá efni sem sprautað er í sjúk­ling og safn­ast fyrir til dæmis í krabba­meins­frumum. Heiti tæk­is­ins er dregið af jáeind­unum.

Geislavirk efni búin til í hringhraðli

Jáeindaskann­anum fylgir óhjá­kvæmi­lega mik­ill og flók­inn bún­aður sem not­aður er til að fram­leiða geisla­virk merki­efni í sér­stakri lyfja­fram­leiðslu­stofu sem er síðan sprautað í sjúk­ling­inn. Sjúk­ling­ur­inn sér aðeins jáeindaskann­ann en bún­að­ur­inn er að öðru leyti aðeins aðgengi­legur starfs­fólki spít­al­ans því fram­leiðsla og með­höndlun geisla­virkra efna er aðeins á færi þeirra sem fengið hafa til þess þjálfun.

Geisla­virku efnin eru búin til í svoköll­uðum hring­hraðli sem komið er fyrir í stein­steypum klefa neð­an­jarðar. Inni í hraðl­inum er raf­straumur not­aður til að auka hraða öreindar, og seg­ul­svið til þess að halda henni á hring­laga braut. Öreind­inni er skotið á efni sem umbreyt­ist í geisla­virka sam­sætu.

Geisla­virka efnið er leitt inn í lyfja­fram­leiðslu­stofu þar sem það er sam­einað efni með sækni í ákveðna vefi í lík­am­anum. Merki­efn­inu er sprautað er í sjúk­ling­inn með vél­menni en áður en það er gert þarf að prófa það til þess að ganga úr skugga um allt sé full­kom­lega rétt og hrein­leiki og gæði eins og vera ber. Þær próf­anir fara fram á gæða­stjórn­un­ar­stofu við hlið fram­leiðslu­stof­unnar.

Sjúklingurinn þarf að liggja kyrr í klukkutíma

Eftir að merki­efn­inu hefur verið sprautað í sjúk­ling­inn þarf hann að liggja kyrr í um það bil klukku­stund á meðan geisla­virka efnið dreif­ist um lík­amann og safn­ast fyrir í þeim krabba­meinsæxlum sem kunna að vera í honum. Að því búnu fer sjúk­ling­ur­inn í jáeindaskann­ann sem tekur myndir þar sem hægt er að greina þá staði þar sem að merki­efnið gefur frá sér jáeindir.

Geisla­virkni efn­is­ins dvínar hratt og eftir skamma stund er hún orðin svo lítil að ekki stafar hætta af henni. Nauð­syn­legt er að hanna og byggja sér­stakt hús yfir jáeindaskann­ann og tækja­bún­að­inn sem honum fylgir. Fram­leiðsla og með­höndlun geisla­virkra efna er mjög vand­með­farin og krefst ýtr­ustu aðgætni. Búa þarf þannig um hnút­ana að eng­inn verði fyrir hættu­legri geislun.

Merki­efnið sem sprautað er í sjúk­linga verður fram­leitt í rann­sókn­ar­stofu sem full­nægir alþjóð­legum stöðlum um hrein­leika. Húsnæðið rann­sókn­ar­stof­unnar og allt sem í því verður þarf að vera eins hreint og frekast er unnt. Til þess að tryggja hámarks­ná­kvæmni við skömmtun lyfj­anna er notað vél­menni en eftir að geisla­virku lyfi hefur verið sprautað í sjúk­ling er hann geisla­virkur skamma stund og því ber að forð­ast að starfs­fólk og aðrir sjúk­lingar nálgist hann um of. Haga þarf innri skipan húss­ins í sam­ræmi við það.

Húsnæði sniðið að tækjabúnaðinum

Geisla­skammtur sjúk­lings veldur honum ekki skaða en rann­sóknin er ákveðin af lækni í sam­ræmi við ástand hans. Eftir að myndir hafa verið teknar í jáeindaskann­anum er reiknað með því að sjúk­lingur bíði um stund áður en hann yfir­gefur stað­inn á meðan geisla­virkni hans dvínar. Húsnæðið er sniðið í einu og öllu að tækja­bún­að­inum, fram­leiðslu­ferli geisla­virku lyfj­anna og með­höndlun sjúk­ling­anna. Án sér­hann­aðs hús­næðis eru tækin ekki not­hæf. Jáeindas­kann­inn og allt sem honum fylgir, þar með talið húsið, mynda órofa heild sem er gjöf ÍE til þjóð­ar­innar.

Þann 18. sept­em­ber 2015 var und­ir­rituð sam­starfs­yf­ir­lýs­ing vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins, Íslenskrar erfða­grein­ingar og Land­spít­ala um bygg­ingu húss fyrir jáeindaskanna við Land­spít­ala og var yfir­lýs­ingin hluti af frum­hönn­un­ar­skýrslu verk­efn­is­ins. Þar er kveðið nánar á um ýmsa þætti fram­kvæmd­ar­innar, meðal ann­ars að Íslensk erfða­grein­ing ber allan kostnað af bygg­ingu húss­ins en Land­spít­al­inn ber kostnað af þeim breyt­ingum sem gera þarf á hús­næði spít­al­ans vegna fram­kvæmd­ar­innar.

28% af kosnaði greiðist af Landspítalanum

[links]

Segir á vef­síðu Íslenskrar erfða­grein­ingar að gert sé ráð fyrir að 72 pró­sent af heild­ar­kostn­að­inum falli til vegna nýbygg­ing­ar­innar og greið­ist hann að fullu af Íslenskri erfða­grein­ingu. Áætlað er að 28 pró­sent af kostn­að­inum sé vegna aðlög­unar og breyt­inga á húsi Land­spít­al­ans og greið­ist sá hluti af spít­al­anum.

Hönnun hús­næð­is­ins hófst af fullum krafti þegar búið var að velja hús­inu stað. Frá þessu er greint á vef­síðu Íslenskrar erfða­grein­ingar. Í lok ágúst­mán­aðar sama ár og byrjun sept­em­ber var rætt við full­trúa helstu fram­leið­enda jáeindaskanna og ann­ars bún­aðar sem nauð­syn­legur er. Í byrjun des­em­ber var und­ir­rit­aður samn­ingur við General Electric um kaup á öllum bún­aði auk ráð­gjafar við bygg­ing­una og þjálf­unar starfs­fólks.

Segir jafn­framt í síð­unni að hönn­un­ar­vinnan fari fram í nánu sam­ráði við verk­efn­is­stjóra og tækni­menn á vegum General Electric. Við lok frum­hönn­unar 22. sept­em­ber árið 2015 var áætlað að húsið myndi kosta 263.600.000 krónur. Inni­fal­inn hafi verið kostn­aður vegna breyt­inga og aðlög­unar húss Land­spít­al­ans.

Heildarfjárhæð gjafar 6,5 milljónum Bandaríkjadala

Í byrjun febr­úar 2016 þegar hönnun húss­ins var lengra á veg komin og fram­kvæmdir í þann mund að hefj­ast var ætlað að bygg­inga­fram­kvæmdin myndi kosta 268.500.000 krónur. Heild­ar­fjár­hæð gjaf­ar­innar eru 6,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala.

Þann 12. jan­úar 2016 tók Páll Matth­í­as­son for­stjóri Land­spít­al­ans fyrstu skóflustungu að jákvæðni­hús­inu og þar með hófust bygg­ing­ar­fram­kvæmdir. Samið var við Gunnar St. Ólafsson bygg­ing­ar­verk­fræð­ing um að ann­ast bygg­ing­ar­stjórn í skiln­ingi bygg­ing­ar­reglu­gerðar og eft­ir­lit með fram­kvæmdum. Jarð­veg­fram­kvæmdir voru boðnar út til þriggja verk­taka. Fyr­ir­tækið Grafa og grjót ehf. átti lægsta til­boðið og lauk verki sínu 25. jan­úar.

Næsti fram­kvæmda­á­fangi var fólg­inn í upp­steypu húss­ins og frá­gang þess að utan. Verkið var boðið út til þriggja verk­taka. Þarfa­þing ehf. átti lægsta til­boðið og þegar hefur verið und­ir­rit­aður samn­ingur um verkið.

Leitast við að hraða framkvæmdum sem mest

Bygg­ing­ar­leyfi fyrir hús­inu var gefið út 22. febr­úar og fram­kvæmdir hófust dag­inn eftir með því að steypt var þrifalag ofan á klöpp­ina undir hring­hrað­als­hús­inu.

Áætlun um hönnun og bygg­ingu húss­ins var gerð í nóv­em­ber 2015, áður en samn­ingar höfðu verið und­ir­rit­aðir um tækja­kaupin og áður en að fullu var orðið ljóst hvert flækju­stig bygg­ing­ar­innar væri. Samkvæmt Íslenskri erfða­grein­in­ingu var ákveðið í upp­hafi að leit­ast við að hraða fram­kvæmd­inni sem mest án þess þó að það bitni hvorki á gæðum hönn­unar né húss­ins.

Heim­ildir: Íslensk erfða­grein­ing

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár