Íslensk erfðagreining gefur Landspítalanum jáeindaskanna

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, færði Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni, heil­brigð­is­ráð­herra, ávísun á jáeindaskanna í dag en slíkt tæki hefur aldrei verið til á Íslandi. Um 200 íslenskir sjúk­lingar verða í ár sendir til Kaup­manna­hafnar í slíkan skanna en hver ferð kostar um það bil tvær til þrjár millj­ónir króna.

Jakob Jóhanns­son, yfir­læknir við geisla­með­ferð krabba­meina á Land­spít­al­anum hefur sagt að tækið geti til dæmis verið notað til þess að finna upp­runa­stað krabba­meins ef fólk grein­ist með mein­varp. Í til­kynn­ingu frá Íslenskri erfða­grein­ingu segir að lík­legt sé að notk­unin verði meiri þegar jáeindas­kanni sé til á Íslandi. Með skann­anum má áætla nákvæm­ari stað­setn­ingu mein­anna og þannig beina geisla­með­ferð nákvæm­lega á stað­inn.

Auk þess að vera mik­il­vægt tæki í krabba­meins­lækn­ingum hefur það reynst vel við grein­ingu á Alzheimers-skjúkdóm­inum. Með tæk­inu er hægt að fylgj­ast með virkni heil­ans, til að mynda þegar hann leysir úr ákveðnum verk­efnum, eða virkni ann­ara líf­færa og getur þess vegna verið mik­il­vægt tæki til vís­inda­rann­sókna á sjúk­dómum í hinum ýmsu líf­færum.

Tækið kostar um það bil 800 millj­ónir íslenskra króna og þarf sér­hæft starfs­fólk til þess að ann­ast tækið. Tækið er nokkuð stórt og fyrir það þarf að öllum lík­indum að ráð­ast í nýbygg­ingar eða hag­ræða í núver­andi hús­næði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár