Jáeindaskanni mikilvægur - annað en Vaðlaheiðargöng eða kísilver á Bakka

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­gar, hafði frum­kvæði að því að Íslensk erfða­grein­ing gæfi íslensk rík­inu jáeindaskanna til að sýna for­dæmi um það sem hægt sé að gera í heil­brigð­is­kerf­inu fyrir til­tölu­lega lítið fé. Sem kunn­ugt er til­kynnti fyr­ir­tækið að það hygð­ist gefa tækið

„Ég hef notað já­eindask­ann­ann sem bæði raun­veru­legt dæmi og sem sym­bol um það sem vant­ar. Þegar Íslensk erfða­grein­ing gef­ur skann­ann, er það ekki bara tæki held­ur erum við að sýna for­dæmi um það sem hægt er að gera fyr­ir til­tölu­lega lítið fé. Þetta varðar mik­il­væg­an hlut í stað­inn fyr­ir til dæm­is Vaðla­heiða­göng­in eða kís­il­ver á Bakka,“ sagði Kári í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun. Um væri að ræða mikið fé fyrir Íslenska erfða­grein­ingu en ekki mikið fé í sam­hengi við fjár­lög rík­is­ins.

Kári segir Íslend­inga hafa dreg­ist aftur úr í fram­förum í lækna­vís­indum, sem hafi verið miklar und­an­farin ár. Hann sagð­ist ekki skilja stjórn­mála­menn á Íslandi. „Mér þykir vænt um þennan hóp en ég skil hann ekki. Ég held að við eigum að vera betri við þá, þá kannski stjórna þeir betur. Til dæmis hafa þeir vannært heil­brigð­is­kerfið þó sá stjórn­mála­maður sem myndi auka fjár­magn í það yrði vin­sæl­asti stjórn­mála­maður sög­unnar,“ sagði Kári og bætti því við að það væri líkt og um sjálfs­morð­stil­raun stjórn­mála­manna væri að ræða. 90 pró­sent þjóð­ar­innar hafi frekar viljað kaupa ný tæki fyrir heil­brigð­is­kerfið en að ráð­ast í gerð Vaðla­heið­ar­ganga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár