Engar sannanir fyrir yfirlýsingum Trumps

Er Trump að verja sig áður en endur­talningin fer fram í þremur baráttu­ríkjum? Þessu er nú velt upp eftir ótrúlegar yfir­lýsingar hins nýkjörna forseta Banda­ríkjanna.

Engar sannanir eru til fyrir yfir­lýsingum Donalds J. Trump, sem sigraði í bandarísku forseta­kosningunum 8. nóvember, um að milljónir „ólöglegra kjósenda“ hafi tekið þátt í kosningunum.

Frá þessu greindi hann á Twitter-svæði sínu í gæt, og hafa ummæli hans vakið bæði undrun og hneykslan. Engar sannanir eru til fyrir því sem hann sagði og svo virðist sem hann ætli sér ekki að sýna fram á nein gögn máli sínu til stuðnings.

Hann setti yfir­lýsingu sína fram í samhengi við sigur hans í kosningunum, og í henni ítrekaði hann að hanni hafi unnið yfirburða­sigur í kjörmanna­kosningunni og að hann hefði einnig haft sigur í heildar­útkomu kosningana ef ekki hefði verið fyrir milljónir ólöglegra kjósenda.

Framboð Hillary Clinton hefur nú ákveðið að styðja kröfu Græningjans Jill Steins um að endur­telja í þremur ríkjum þar sem mjótt var á munum milli Hillary og Trumps, í Michigan, Pennsylvaníu og Winsconsin.

Í umfjöllun fjölmiðla í Banda­ríkjunum, hefur komið fram að ásakanir um að kosningar hafi ekki verið löglegar, hafi oft komið fram áður í gegnum tíðina. En aldrei með viðlíka yfir­lýsingum og Trump hefur nú sett fram. Í umfjöllun New York Times kemur fram að starfslið Trump hafi nú þegar sett fram yfir­lýsingar þess efnis að niður­staða kosninganna væri skýr og að hana ætti að virða.

En ef það er rétt sem Trump heldur fram, þá er líklegt að farið verði fram á endur­talningu víðar en í fyrr­nefndum ríkjum. Í gærkvöldi setti hann síðan fram ávirðingar um að kosningarnar í Virgínu, New Hampshire og Kaliforníu, sem Hillary sigraði í, hafi verið verið svindl. Sakaði hann fjölmiðla meðal annars um að standa sig ekki nægilega vel hvað þessi mál varðaði. „Alvarleg vandamál,“ sagði hann síðan að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár