Donald Trump segir milljónir hafa kosið ólöglega

Yfirlýsinga­gleði hins nýkjörna forseta Banda­ríkjanna hefur náð nýjum hæðum.

Donald J. Trump, nýkjörinn forseti Banda­ríkjanna, segir í færslu á Twitter-svæði sínu að til viðbótar við yfirburða­sigur hans í kjörmanna­kosningunni þá hefði hann unnið heildar­kosninguna (popular vote) einnig, ef ekki hefði verið fyrir þær „milljónir kjósenda“ sem kusu ólöglega.

Þetta kom fram á Twitter-svæði hans í dag, og hafa allir helstu fjöl­miðlar Banda­ríkjanna fjallað um yfir­lýsinguna í dag. Hún kemur í beinu framhaldi haf því að Jill Stein, fram­bjóðandi Græningja, hefur farið fram á endur­talningu atkvæða í þremur ríkjum þar sem mjótt var á munum milli Hillary Clinton og Donald Trump, og vilja margir frétta­skýrendur meina það, að í þessum ríkjum hafi úrslitin í raun ráðist. Þetta eru Winsconsin, Pennsylvanía og Michigan.

Stein hefur sagt, að orðrómur um tölvu­hakkarar hafi haft áhrif á útkomu rafrænnar kosningar í ríkjunum sé alvarlegur, og það þurfi að fást botn í það hvernig staðan var í raun og veru. Hillary Clinton hefur tekið undir þetta, og vísað til þess að vitað sé að tölvu­hakkarar hafi verið að skipta sér af kosninga­baráttunni með því að komast yfir gögn og birta þau. Þau afskipti voru rakin til tölvu­hakkara í Rússlandi.

Hillary Clinton hlaut ríflega 64 milljónir atkvæða í kosningunum en Donald Trump ríflega 62 milljónir atkvæða. Þrátt fyrir það hlaut Trump muni fleiri kjörmenn en Hillary, en að lágmarki þurfti að tryggja 270 til að ná í Hvíta húsið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár