Segist ekki hafa verið í leynimakki með neinum

Tengda­sonur og helsti ráðgjafi forseta Banda­ríkjanna kemur fyrir þingnefnd bandaríska þingsins í dag.

Jared Kushner er einn helsti ráðgjafi Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna. Kushner er giftur Ivönku Trump.
Jared Kushner er einn helsti ráð­gjafi Donalds Trump, for­seta Banda­ríkj­anna. Kushner er giftur Ivönku Trump. Mynd: EPA

Jared Kushner, einn helsti ráðgjafi og tengda­sonur Donalds Trump forseta Banda­ríkjanna, segist í yfir­lýsingu ekki hafa verið í neinu leyni­makki með neinum. Kushner kemur fyrir þingnefnd bandaríska þingsins og ber vitni í dag.

Þing­haldið og yfirheyrslan yfir Kushner verður lokað fyrir fjöl­miðlum. Tilkynninguna sendi Kushner frá sér að morgni dags í Banda­ríkjunum. Frá þessu er greint á vef Reuters.

„Ég var ekki í leyni­makki og veit ekki um neinn annan sem kom að forseta­framboðinu sem var í leyni­makki með erlendum ríkis­stjórnum,“ segir Kushner í tilkynningu sinni.

„Ég átti ekki í neinum óviðeigandi samskiptum. Ég hef ekki reitt mig á rússneskt fé til að fjármagna viðskipti mín í einka­geiranum,“ segir hann enn fremur.

Kushner var einn þeirra sem sótti fund með rússneskum lögmanni í New York í aðdrag­anda forseta­kosninganna í fyrra. Upp komst um fundinn þegar Donald Trump yngri, sonur forsetans, tvítaði öllum tölvupóst­samskiptum sínum um þennan fund.

Tengda­sonur forsetans segist hafa „hugsanlega átt fjögur samtöl við rússneska fulltrúa“ á meðan kosninga­baráttan fór fram og eftir að Donald Trump var kosinn forseti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár