Samkeppniseftirlitið ekki haft aðkomu að rannsókn á dótturfélagi Eimskips í Danmörku

Dönsk sam­keppn­is­yf­ir­völd stað­festa að hús­leit hafi farið fram hjá dótt­ur­fé­lagi Eimskips í Danmörku en vilja að öðru leyti ekki tjá sig um rann­sókn máls­ins. Ekki hefur verið óskað eftir aðstoð Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins hér á landi við rann­sókn­ina.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið á Íslandi hefur ekki haft neina aðkomu eða verið dönskum sam­keppn­is­yf­ir­völdum innan handar í tengslum við rann­sókn á dótt­ur­fé­lagi Eimskips í Danmörku sem snýr að stærri rann­sókn á hátt­semi í land­flutn­ingum í Danmörku þar sem grunur leikur á að fyr­ir­tækið hafi brotið gegn dönskum sam­keppn­is­lögum. .

Þetta kemur fram í fyr­ir­spurn Kjarnans til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, en í því segir jafn­framt að það sé í höndum danskra sam­keppn­is­yf­ir­valda að „ákveða hvort þau leita aðstoðar hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu á grund­velli þess sam­starfs sem mót­ast hefur á milli nor­rænna og evr­ópskra sam­keppn­is­eft­ir­lita“.

Eim­skip sendi frá sér tvær til­kynn­ingar til Kaup­hallar á mánu­dags­kvöld. Í annarri þeirra er greint frá því að á sunnu­dag hafi danska sam­keppn­is­eft­ir­litið fram­kvæmt hús­leit í Ála­borg hjá dönsku dótt­ur­fé­lagi Eim­skip Hold­ing B.V., sem er í eigu Eim­skipa­fé­lags Íslands hf., á grund­velli dóms­úr­skurð­ar.

Í til­kynn­ing­unni segir að hús­leitin snúi að „starf­semi Atl­antic Truck­ing sem er hluti af Eim­skip Den­mark A/S og er hluti af rann­sókn á hátt­semi í land­flutn­ingum í Dan­mörku og tók til fleiri félaga á þeim mark­aði. Til­gangur hús­leit­ar­innar er að rann­saka hvort brotið hafi verið gegn ákvæðum danskra sam­keppn­islaga.

Dótt­ur­fé­lagið vinnur að því að veita dönskum sam­keppn­is­yf­ir­völdum aðgang að umbeðnum upp­lýs­ing­um. Eim­skipa­fé­lag Íslands hf. hefur ekki ástæðu til að ætla að brotið hafi verið gegn dönskum sam­keppn­is­lögum í starf­semi Atl­antic Truck­ing sem hefur um 5% mark­aðs­hlut­deild í gáma­flutn­ingum á þessum mark­að­i.“

Staðfesta ekki að húsleitin sé hluti af stærri rannsókn á landflutningum

Danska sam­keppn­is­eft­ir­litið stað­festir í sam­tali við Kjarnann að hús­leit hafi verið gerð hjá Atlantic Trucking en vill ekki stað­festa að hús­leitin teng­ist stærri rann­sókn á hátt­semi í land­flutn­ingum í Dan­mörku líkt og full­yrt er í til­kynn­ingu Eimskips. Þar sem rann­sóknin stendur enn yfir vill danska Sam­keppn­is­eft­ir­litið ekki veita frek­ari upp­lýs­ingar um rann­sókn máls­ins, hversu umfangs­mikil hún er eða hvenær megi búast við að henni ljúki.

Seinni til­kynn­ing sem Eimskip sendi frá sér á mánu­dags­kvöld snýr að sölu Eimskips á Goða­foss og Lax­foss, kom upp á yfir­­­borðið eftir umfjöllun Kveiks um það í sept­em­ber 2020.

Þá var sagt frá því að Eim­­skip hefði selt skipin tvö til fyr­ir­tækis sem heitir GMS, og sér­­­­­­hæfir sig í að vera milli­­­­­­liður sem kaupir skip til að setja þau í nið­­­­­­ur­rif í Asíu þar sem kröfur um aðbúnað starfs­­­­­­manna og umhverf­is­á­hrif nið­­­­­­ur­rifs­ins eru mun lak­­­­­­ari en í Evr­­­­­­ópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár