Drápu tvö börn og foreldra þeirra

Ellefu ára drengur sem lifði af drápið á fjöl­skyldu hans segir hermennina hafa barið sig eftir árásina.

Missti fjölskyldu sína
Missti fjöl­skyldu sína Mustafa, sem særð­ist en lifði af eftir að ísra­elskir her­menn skutu á bif­reið­ina sem flutti for­eldra hans og tvö systk­ini, fær huggun í jarð­ar­för fjöl­skyldu sinnar í bænum Tammun á norð­ur­hluta Vest­ur­bakk­ans, sem er á her­náms­svæði Ísraels, fyrr í dag. Ísra­els­her skaut fjóra með­limi palest­ínskrar fjöl­skyldu til bana, 37 ára gamlan mann, 35 ára gamla eig­in­konu hans og tvo drengi, fimm og sjö ára, á hernumda Vest­ur­bakk­anum, að því er heil­brigð­is­ráðu­neyti Palest­ínu greindi frá, en Ísraelar sögðu her­menn hafa hafið skot­hríð vegna meintrar öryggisógnar. Mynd: JAAFAR ASHTIYEH / AFP

Sorg­mæddir Palestínu­menn grétu yfir líkum fjögurra fjölskyldu­meðlima, þar á meðal tveggja barna, sem palestínska heilbrigðis­ráðuneytið sagði að hefðu verið skotin til bana fyrr í dag af ísraelskum hersveitum á hernumda Vestur­bakkanum.

Ísraelski herinn og lögreglan sögðu að hermenn hefðu hafið skothríð á bifreið vegna meintrar öryggis­ógnar og drepið fjóra einstaklinga í henni.

„Fjórir píslar­vottar úr einni fjöl­skyldu komu á tyrkneska ríkis­sjúkrahúsið í Tubas eftir að hernáms­liðið skaut á þá í Tammun,“ sagði palestínska heilbrigðis­ráðuneytið í Ramallah.

Þar kom fram að sjúkra­húsið hefði tekið á móti líkum 37 ára gamals manns, 35 ára gamallar eiginkonu hans og tveggja drengja, fimm og sjö ára, og bætti við að allir hefðu verið með skotsár.

Ljós­myndir AFP sýna tugi fjölskyldu­meðlima koma saman til að syrgja hina látnu.

Konur grétu yfir ástvinum sínum sem vafðir voru í palestínska fána og kuffiyeh-trefla, á meðan einn maður lyfti líki barns yfir mann­fjöldann.

Móðirin öskraði, faðirinn fór með bæn

„Móðir mín öskraði einu sinni enn og þagnaði svo, á meðan faðir minn fór með Shahada (íslamska trúar­játninguna) áður en hann dó,“ sagði Khaled Ali Bani Odeh, annað tveggja barna sem lifðu af.

„Þeir drógu mig út (úr bílnum) og byrjuðu að hoppa á bakinu á mér. Svo fóru þeir með mig út í horn og spurðu mig hvað hefði gerst og hverjir hefðu verið með mér í bílnum.“

„Ég sagði þeim að það hefðu verið pabbi minn og mamma.“
Khaled Ali Bani Odeh
Ellefu ára gam­all drengur á Vest­ur­bakk­anum.

„Ég sagði þeim að það hefðu verið pabbi minn og mamma. Þeir sögðu að ég væri að ljúga og byrjuðu að berja mig,“ sagði hinn 11 ára gamli við blaðamenn í viðurvist ættingja við útför foreldra sinna og tveggja systkina.

Ísraelski herinn brást ekki strax við ásökunum hans en staðfesti dauðsföllin.

Herinn og lögreglan sögðu í sameiginlegri yfir­lýsingu að í aðgerð í Tammun hafi „bifreið gefið í í átt að hersveitunum, sem litu á það sem bráða ógn við öryggi sitt og brugðust við með skothríð“.

„Fyrir vikið voru fjórir Palestínu­menn sem voru í bifreiðinni drepnir,“ sagði þar og bætt var við að atvikið væri í rannsókn.

Í yfir­lýsingu sem birt var á X fordæmdi palestínska utan­ríkis­ráðuneytið morðin harðlega og sagði þau „ekki einangruð“ atvik, heldur „hluta af umfangs­mikilli og kerfis­bundinni árásar­girni“ Ísraels­manna gegn Palestínu­mönnum.

Palestínska frétta­stofan WAFA greindi frá því að hin tvö börn hjónanna, átta og ellefu ára, hefðu særst af sprengju­brotum eftir að ísraelskar hersveitir hófu skothríð á bifreið þeirra snemma í morgun.

Kveður systk­ini sínMustafa kyssir annað systk­ina sinna sem lét­ust í árás Ísraels á bíl fjöl­skyld­unnar í morgun.

Meira ofbeldi við upphaf Íransstríðsins

Ofbeldi á Vestur­bakkanum, sem Ísrael hefur hernumið síðan 1967, hefur aukist verulega frá því að árás Hamas á Ísrael 7. október 2023 hratt af stað stríðinu á Gaza.

Einnig hefur orðið aukning í mann­skæðum árásum ísraelskra land­tökumanna á Vestur­bakkanum frá upphafi stríðsins við Íran, að sögn palestínskra yfirvalda og Sameinuðu þjóðanna, en að minnsta kosti sex Palestínu­menn hafa verið drepnir frá byrjun mars.

Palestínsk yfirvöld sögðu að ísraelskir land­tökumenn hefðu skotið palestínskan mann til bana í gær í árás á þorpið Qusra, á meðan tveir aðrir íbúar særðust.

Herinn staðfesti í dag að „vegna skot­hríðar eins hinna grunuðu Ísraels­manna hafi palestínskur borgari verið drepinn og fleiri palestínskir borgarar særst og verið fluttir til frekari læknis­meðferðar“.

Hafa drepið þúsund á Vesturbakkanum

Samkvæmt samantekt AFP sem byggir á tölum frá palestínska heilbrigðis­ráðuneytinu hafa ísraelskir hermenn eða land­tökumenn drepið að minnsta kosti 1.045 Palestínu­menn – margir þeirra vígamenn, en einnig fjöldi almennra borgara – á Vestur­bakkanum frá upphafi stríðsins á Gaza.

Opinberar tölur frá Ísrael segja að 45 Ísraelar, bæði hermenn og almennir borgarar, hafi verið drepnir í árásum Palestínu­manna eða í hernaðar­aðgerðum Ísraels.

Auk um þriggja milljóna Palestínu­manna búa meira en 500.000 Ísraelar í landnema­byggðum og útvörðum á Vestur­bakkanum, sem eru ólöglegar samkvæmt alþjóða­lögum.

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Grétar Reynisson skrifaði
    On Jewish Leadership Truman wrote that: "The Jews, I find are very, very selfish" and accused them of not caring about other displaced groups as long as they received "special treatment".
    On Hitler and Stalin Comparison: He stated: "Yet when they have power, physical, financial or political, neither (Adolf) Hitler nor (Joseph) Stalin has anything on them for cruelty or mistreatment to the underdog".
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár