Hluthafalisti Play birtur – Hópur Skúla enn stærsti eigandinn

Í nýjum hluthafa­hópi flug­félagsins Play er að finna umsvifa­mikla einka­fjárfesta, lífeyris­sjóði og fagfjárfestinga­sjóði. Til stendur að skrá félagið á First North og gefa almenningi tækifæri á að kaupa.

Skúli Skúlason og félagar hans eru áfram stærstu eigendur Play.
Skúli Skúlason og félagar hans eru áfram stærstu eig­endur Play. Mynd: Bára Huld Beck

Fjár­festinga­félagið FEA ehf., í eigu hóps fjárfesta undir forystu Skúla Skúla­sonar, er áfram stærsti eigandi flug­félagsins Play eftir að félagið safnaði um sex milljörðum króna nýverið í lokuðu hlutafjár­útboði. FEA-hópurinn eignaðist allt hlutafé í Play, sem hefur enn ekki flogið eina einustu ferð, í byrjun maí í fyrra þegar félagið gat ekki endur­greitt brúarlán sem FEA veitti því veturinn á undan.

Á meðal nýrra stórra eigenda sem koma inn í eigenda­hópinn eftir hlutafjár­aukninguna eru lífeyris­sjóðurinn Birta, sem er næst stærsti eigandinn með 12,55 prósent hlut sem hann greiddi um milljarð króna fyrir. Fjár­festinga­félag Einars Arnar Ólafs­sonar, Fiskisund, er þriðji stærsti eigandinn með 11,86 prósent hlut sem hann greiddi litlu minna en Birta fyrir. Einar Örn er einnig nýr stjórnar­formaður Play. Fjár­festinga­félagið Stoðir, sem er á meðal umsvifamestu einka­fjárfesta á Íslandi og á stóra eignar­hluti í meðal annars Arion banka, Kviku og Símanum, er skráð fyrir 8,37 prósent hlut sem kostaði um 600 milljónir króna. Einar Örn er á meðal stórra hluthafa í Stoðum.

Þá á fjár­festinga­félagið Brim­garðar, í eigu systkinanna Eggerts Árna, Guðnýjar Eddu, Gunnars Þórs og Halldórs Páls Gísla­barna, 4,81 prósent hlut og Dalía ehf. er skráð fyrir 4,61 prósent hlut. Þá á Lífsverk lífeyris­sjóður 4,28 prósent hlut.

Flestir aðrir fjár­festar á listanum yfir 16 stærstu hluthafa eru fagfjárfesta­sjóðir. Undan­tekningin þar er félagið Attis ehf., sem á 1,67 prósent hlut. Forsvars­maður þess er skráður Guðmundur Örn Þórðarson.

Á næstu vikum og mán­uðum er fyr­ir­hugað að bjóða almenn­ingi að fjár­festa í Play sam­hliða skrán­ingu á verð­bréfa­markað First North.

Stefnt er á að félagi hefji sig til flugs í júní næst­komandi.

Sú vending varð nýverið að Birgir Jónsson var ráðinn forstjóri Play. Hún tengdist hlutafjár­útboðinu. Í stöðu­uppfærslu sem hann birti á Facebook í síðustu viku sagði Birgir: „Ég hef aldrei verið eins spenntur fyrir neinu á ævinni eins og tæki­færinu sem Play hefur til að ná árangri.

Það er einhver sérstök orka sem umlykur fólkið sem vinnur nú hjá fyrir­tækinu og fólkinu sem hefur fjárfest í því. Ótrúlegur metnaður og hungur í árangur. Rosalegur kraftur.

Þetta verður erfitt, flókið og hratt. En djöfull sem þetta verður gaman!!

Það er gríðar­legur heiður fyrir mig að fá að leiða þennan hóp og einhvernveginn finnst mér að allt sem ég hef gert hingað til hafi verið uppbygging að þessu verkefni.“

Kjarninn tók ítarlegt viðtal við Skúla Skúlason og Arnar Már Magnússon, þáverandi forstjóra félagsins, í september í fyrra. Það má lesa hér til hliðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár