Vonin kveikt með tæknifrjóvgun og staðgöngumæðrun

Norðlægi hvíti nashyrn­ing­urinn er í raun útdauður. Síðasta karldýrið er fallið. En nú hefur tekist með fordæma­lausri aðgerð að búa til lífvæn­lega fóstur­vísa sem setja á upp í annarri deili­tegund þessara einstöku risa.

Mohammed Doyo, starfsmaður Ol Pejeta-garðsins í Kenía, ásamt Najin og Fatu, tveimur síðustu norðlægu hvítu nashyrningunum.
Mohammed Doyo, starfs­maður Ol Pejeta-garðs­ins í Kenía, ásamt Najin og Fatu, tveimur síð­ustu norð­lægu hvítu nas­hyrn­ing­unum. Mynd: EPA

Að vera einstakur, einn sinnar tegundar, er stundum sagt til að slá fram­úrskarandi fólki gullhamra. Þegar þetta orðalag var notað um nashyrninginn Súdan var meiningin öllu bókstaflegri. Hann var síðasta karldýr norðlæga hvíta nashyrningsins í gjörvallri veröldinni. Er hann dró andann í síðasta sinn fyrir tveimur árum mátti nánast heyra jarðarbúa andvarpa í uppgjöf.

Hann var farinn. Sá síðasti. Mann­fólkið hafði útrýmt deili­tegund nashyrninga sem komu fyrst fram á sjónar­sviðið fyrir um 50 milljónum ára. Tegund sem hafði eins og allt annað sem lifir haft sínu mikilvæga hlutverki að gegna í vist­kerfinu.

En verandi vel yfir tonn á þyngd, standandi á beit bróður­partinn úr sólar­hringnum og eignast aðeins eitt afkvæmi í einu og það á nokkurra ára fresti, var ekki beinlínis styrkur þegar mennirnir hófu að þrengja að búsvæðum nashyrninga í Afríku, vopnaðir byssum og lásbogum.

Stundum voru þeir einfald­lega fyrir. Seinna komst sú þjóðsaga á kreik að úr hornum þeirra mætti vinna frygðarlyf. Og það var gert. Í stórum stíl. Þótt ítrekað væri bent á með rann­sóknum að sama efni væri í nashyrnings­hornum og nöglum manna. Það er því jafn kynörvandi að naga á sér táneglurnar og gleypa mulið nashyrnings­horn.

Og þá voru eftir tveir

Áður en Súdan kvaddi þennan heim, 45 ára og því saddur lífdaga, hafði hans verið gætt af vopnuðum vörðum í friðlandi í Kenía. Þangað hafði hann verið fluttur úr dýragarði í Tékklandi. Hann var eftir­sóttur, veiði­þjófar ásældust horn hans. Í frið­landinu hafði verið reynt án árangurs að koma honum til fylgilags við kvendýr. Eftir dauða hans eru aðeins tveir nashyrningar af deili­tegundinni á lífi í heiminum og þeir eru báðir kvenkyns, mæðgurnar Najin og Fatu.

En vonin var ekki öll úti. Í ágúst á síðasta ári urðu merkileg tímamót er vísinda­menn söfnuðu eggfrumum úr kven­dýrunum tveimur og frjóvguðu þau á rannsóknar­stofu með sæði sem þeir höfðu varðveitt úr Súdan og þremur öðrum karldýrum. Til urðu í fyrsta sinn tveir fóstur­vísar að norðlægum hvítum nashyrningum. Þessi aðgerð var svo endur­tekin í desember síðastliðnum og um jólin tókst að búa til enn einn fóstur­vísinn.

Þetta eykur mjög svo líkurnar á því að bjarga megi tegundinni frá algjörri útrýmingu. Til stendur að endurtaka eggheimtuna úr Najin og Fatu nokkrum sinnum í viðbót áður en þær verða of gamlar.

Fatu og Najin búa í Ol Pejeta-frið­landinu í Kenía þar sem Súdan eyddi sínum síðustu árum. Til að sækja eggin þarf að svæfa þær og um leið og aðgerðin er afstaðin er flogið með kynfrumurnar á rannsóknar­stofu á Ítalíu.

Um jólin tókst að frjóvga eitt eggja Fatu. Sæðið var úr nashyrningnum Suni sem drapst árið 2014. Fóstur­vísirinn er nú geymdur í kæli á rannsóknar­stofunni ítölsku í fljótandi köfnunar­efni ásamt fóstur­vísunum tveimur sem urðu til síðasta haust.

Najib Balala, ráðherra náttúru- og ferðamála í Kenía, segir ríkis­stjórnina mjög ánægða með hvernig til hefur tekist. Verkefnið er styrkt af stjórn­völdum þar í landi og að því koma vísinda­menn frá Kenía, Tékklandi, Þýska­landi og Ítalíu. „Ég hvet vísinda­mennina til að halda áfram að þróa tæknina og uppfinningarnar, ekki aðeins svo að hægt verði að bjarga þessari dýra­tegund heldur einnig öðrum sem standa frammi fyrir sambærilegri ógn,“ sagði Balala.

En hvert verður fram­haldið? Hver verða örlög fóstur­vísanna?

Svörin við þessum spurningum eru nokkuð óvenjuleg. Norðlægu, hvítu nashyrningarnir tveir sem eftir lifa eru komnir af léttasta skeiði og því er stefnt að því að setja fóstur­vísana upp í annarri deili­tegund hvítra nashyrninga, hinni suðlægu. Um óvenju­lega staðgöngumæðrun verður því sannarlega að ræða.

Undir­búningur að þeim kafla björgunar­aðgerðarinnar er þegar hafinn. Valin verður stað­göngumóðir úr hópi kvendýra hvíta, suðlæga nashyrningsins í Ol Pejeta-frið­landinu og vonast er til að hin kvendýrin styðji við uppeldið, ef þar að kemur, með nærveru sinni.

Hin suðlæga tegund, sem kalla má frænku hinnar norðlægu, er einnig á válista líkt og allar aðrar nashyrnings­tegundir heimsins. Á síðasta ári var því ákaft fagnað er nashyrnings­kýrin Viktoría í dýra­garðinum í San Diego fæddi kálf sem getinn var með tækni­frjóvgun. Það jók von vísinda­manna að hin mikilvæga en vandasama aðgerð að bjarga hinni norðlægu tegund frá útrýmingu væri framkvæmanleg.

Enn eru þó ýmis ljón í veginum. Að búa til fóstur­vísana er aðeins eitt skref á langri leið að settu markmiði. Takist að koma fóstur­vísunum upp er alls óvíst að meðgangan, sem tekur heila átján mánuði, heppnist vel. Einnig er ljóst að ekki verður hægt að viðhalda heilli tegund alfarið með kynfrumum tveggja kvendýra og fjögurra karldýra.

Vísinda­mennirnir ætla því líka að freista þess að búa til kynfrumur úr stofn­frumum sem safnað var úr tólf norðlægum, hvítum nashyrningum áður en þeir drápust. Þeir segja að tilraunirnar allar séu mikil­vægar og þarfar til að bjarga tegundum í útrýmingar­hættu seinna meir en minna á að besta leiðin til að viðhalda tegund sé að auka lífsgæði hennar, hætta veiðum og ágangi að búsvæðum.

Bjartsýni vísinda­mannanna er það mikil á þessari stundu að þeir vonast til að velja stað­göngumóður úr hópi suðlægu, hvítu nashyrninganna bráðlega og setja fóstur­vísana upp á þessu ári. Gangi allt að óskum gæti því lítill nashyrnings­kálfur, af norðlægu, hvítu deili­tegundinni, dregið andann í fyrsta sinn fyrir árið 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár