Hringbraut bendlar föður Sigmundar við fjármögnun Vefpressunnar í annað sinn

Gunnlaugur M. Sigmundsson, faðir forsætis­ráðherra, hafnaði því í samtali við Stundina í sumar að hann hefði lagt fjármuni til rekstrar fjölmiðla­veldis Björns Inga Hrafns­sonar. Fjöl­miðillinn Hringbraut heldur því nú fram öðru sinni, en í fyrra skiptið var nafnlaus pistill fjar­lægður.

Fjöl­miðillinn Hringbraut hefur tvisvar sinnum í vetur haldið því fram, í pistlum sem skrifaðir eru undir nafnleynd, að Gunnlaugur M. Sigmundsson, faðir forsætis­ráðherra, hafi lagt fjármuni til rekstrar fjölmiðla­veldis Björns Inga Hrafns­sonar.

Fyrri pistillinn, sem birtist undir dulnefninu Náttfari í byrjun nóvember, var fjar­lægður. Að sögn Sigmundar Ernis Rúnars­sonar, ritstjóra Hringbrautar, var þetta gert vegna þess að heimildirnar fyrir efni pistilsins voru ekki taldar nægilega tryggar.

Á aðfangadag birti Hringbraut aðra grein, nú undir dulnefninu Ólafur Jón Sívertsen, þar sem líkum er leitt að því að Gunnlaugur og aðilar tengdir honum hafi lagt fjármuni til rekstrar fjölmiðla­veldisins.

Stundin hafði samband við Gunnlaug síðasta sumar, áður en Hringbraut fjallaði um málið, og spurði hvort rétt væri að hann hefði lánað fyrirtæki Björns Inga 60 milljónir króna árið 2013. Gunnlaugur hafnaði því og sagði að sér hefði verið kennt fyrir löngu að óskynsamlegt væri að fjárfesta í fjöl­miðlum. 

Í fyrri pistlinum sem var fjar­lægður af vef Hringbrautar er rakið hve rekstrar­kostnaður DV og dv.is er mikill meðan tekju­streymið láti á sér standa. „Heimildar­maður Náttfara sem hefur mikla reynslu af fjölmiðla­rekstri heldur því fram að það þurfi að borga með rekstri DV 10 milljónir króna á mánuði til að halda skipinu á floti,“ segir í pistlinum og er fullyrt að skulda­hali fjölmiðla­veldis Björns Inga hafi numið um 80 milljónum króna árið 2013 og innspýtingar verið þörf.

Frekari innspýtingu spáð

Í fram­haldinu skrifar höfundur pistilsins: 

„Heimildar­maður Náttfara telur sig hafa öruggar heimildir fyrir því hvaðan umræddir fjármunir hafa komið. Hann hefur ekki getað sýnt skriflegar sannanir en er viss í sinni sök. Hann telur fullvíst að Gunnlaugur M. Sigmundsson, faðir forsætis­ráðherra, hafi lagt þessa fjármuni til rekstrarins. Gunnlaugur var á sínum tíma eigandi Kögunar og seldi fyrir­tækið á réttum tíma með gífur­legum hagnaði. Gunnlaugur er milljarðamæringur. Honum hefur runnið til rifja að sjá hve illa flokkur sonar hans hefur komið út úr skoðana­könnunum og hefur viljað kenna fjöl­miðlum um það. Einkum DV á meðan Reynir Traustason stýrði þar á bæ. Fram­sóknarmenn mátu það svo að það væri lífnauðsynlegt fyrir flokkinn að aftengja DV og tryggja að miðillinn væri meinlaus gagnvart Framsóknar­flokknum og ríkis­stjórn Sigmundar Davíðs. Þetta hefur gengið eftir. DV lætur Framsókn og ríkis­stjórnina alveg í friði, reynir frekar að hjálpa til ef eitthvað er með viðtölum við ráðherra og þingmenn flokksins.“

Þá eru leiddar að því líkur að fram að næstu kosningum muni fjöl­skylda Sigmundar Davíðs leggja til mörg hundruð milljónir króna til að freista þess að halda honum við völd. „Fjöl­skyldan hefur fjárhagslegt afl til þess. Það á svo eftir að koma á daginn hvort unnt er að kaupa völd og halda völdum á Íslandi með slíkum hætti.“

Umdeild fréttaskrif

Í umræðum á Facebook upplýsti Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri Hringbrautar, um ástæður þess að pistillinn var fjar­lægður. „Ég tók þetta út þar eð ég taldi ekki nægilega tryggar heimildir fyrir efni pistilsins. Við hljótum öll að vilja byggja á þeim traustum og haldgóðum. Engar hótanir hér, aðeins viðleitni til að vanda betur til verka,“ skrifaði hann og vísaði því á bug að nokkur maður hafi farið sérstak­lega fram á að pistillinn yrði tekinn út.

Í seinni pistlinum, sem birtist á aðfangadag, segist huldu­maðurinn Ólafur Jón Sívertsen hafa heimildir fyrir því að fjármunir til rekstrar „allra þessara flokks­miðla Fram­sóknar komi frá nánustu ættingjum og vinum formanns flokksins“ og bendir á að faðir Sigmundar er sterk­efnaður. Skömmu eftir að pistillinn fór í loftið birtist frétt á vef Hringbrautar upp úr skrifum huldu­mannsins.

Fjölmargir gagnrýndu þessi vinnu­brögð og skrifaði Björn Þorláksson, blaða­maður á Hringbraut, pistil um „mistök Hringbrautar“ þar sem hann gagnrýndi kollega sína fyrir að hafa birt frétt upp úr skrifum manns sem ekki er til.

Taprekstur Vefpressunnar

Eins og Stundin hefur áður fjallað um í ítarlegri frétta­skýringu hefur fjölmiðla­veldi Björns Inga allt frá upphafi reitt sig á stuðning fjár­sterkra aðila. Ef litið er á ársreikninga Vefpressunnar má sjá að hún hefur verið rekin með umtals­verðu tapi allt frá stofnun ef frá er talið rekstrar­árið 2013 þegar félagið skilaði loksins hagnaði.

Pressan ehf. var rekin með 66 milljóna tapi árið 2012. Á rekstrar­árinu 2013 hækkuðu skyndi­lega skammtíma­skuldir félagsins um rúmar 60 milljónir króna, án þess að gefnar væru skýringar á því í ársreikningi. Vísir fjallaði um málið í júní og hafði eftir Arnari Ægissyni, framkvæmda­stjóra Pressunnar, að hann myndi ekki hvernig lánið væri til komið. Líklega væri um að ræða „yfir­færslu á yfir­drætti sem var í eignarhalds­félaginu Vefpressunni ehf.“. Hann staðfesti þó að yfir­drátturinn væri hjá MP banka. „Yfir­drátturinn er þar. Hann var það, hann er ekki lengur. Það er enginn yfir­dráttur í dag.“

Tengsl Sigmundar við MP banka

Engin opinber skjöl eru til um lánið frá MP banka, sem verður að teljast rausnarlegt í ljósi þess hver fjar­hagsstaða Pressunnar var á þessum tíma. Eins og bent hefur verið á í fjöl­miðlum hafa Sigmundur Davíð, og ríkis­stjórn Íslands, marg­vísleg tengsl við MP banka. Forstjóri bankans, Sigurður Atli Jónsson, er kvæntur systur Sigmundar Davíðs. Sigurður Hannesson, framkvæmda­stjóri eigna­stýringar MP banka, er náinn vinur og helsti efnahags­ráðgjafi Sigmundar. Þá hafa þrír af sjö meðlimum framkvæmda­hóps ríkis­stjórnarinnar um losun gjaldeyris­hafta gegnt yfirmanns­stöðu í bankanum.

Frægt varð þegar Hlín Einars­dóttir, fyrr­verandi sambýlis­kona Björns Inga Hrafns­sonar, og Malín Brand systir hennar voru hand­teknar fyrir tilraun til fjár­kúgunar á hendur Sigmundi Davíð forsætis­ráðherra. Í nóvember­blaði Stundarinnar birtist viðtal við Malín þar sem hún lýsti aðdrag­andanum, meðal annars því þegar systir hennar sagði henni að hún byggi yfir upplýsingum um Sigmund Davíð og Björn Inga.

„Það var Sigmundur Davíð sem kippti í einhverja spotta í MP-banka og bjargaði rétt eftir að hann varð forsætisráðherra“

Haft er eftir Malín: „Mér leist ekkert á það hversu breytt fas hennar var frá því fyrr um daginn og spurði hvað hún væri eiginlega búin að drekka marga bjóra. Það fauk í hana og hún sagði mér að hlusta. Svo spurði hún hvort ég myndi þegar Vefpressan var við það að fara á hausinn. Vissulega mundi ég það. Þá var stundum ekkert hlaupið að því að fá útborgað. Hlín rifjaði upp að skyndi­lega hefði verið til nóg af peningum og Vefpressunni borgið. „Það var Sigmundur Davíð sem kippti í einhverja spotta í MP-banka og bjargaði rétt eftir að hann varð forsætis­ráðherra,“ sagði hún áköf.“

Samkvæmt heimildum Stundarinnar hafa samskipti Björns Inga og Sigmundar Davíðs færst mjög í aukana undan­farin ár og vinskapur tekist með þeim. Hafa þeir átt samveru­stundir erlendis auk þess sem Sigmundur Davíð hefur heimsótt Björn Inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár