Gildi segir að of mikil óvissa og áhætta hafi falist í því að kaupa í Arion

Stærstu eig­endur Arion banka vildu ekki leyfa Gildi að leggja mat á end­ur­skoðað upp­gjör bank­ans áður en þeir keyptu hlut.

Stjórn Gildis ákvað að kaupa ekki hlut í Arion banka að svo stöddu vegna þess að líf­eyr­is­sjóð­ur­inn fékk ekki meiri tíma til að meta fjár­fest­ing­una. Sér­stak­lega vildi Gildi fá að leggja mat á end­ur­skoðað upp­gjör Arion banka sem verður birt á morgun, 14. febr­úar. Ekki náð­ist saman um að leyfa sjóðnum það. Þá taldi Gildi að enn væri tals­verð óvissa „um skrán­ingu Arion banka á markað og einnig skortir að mati sjóðs­ins skýr­ari sýn á fram­tíð­ar­rekstur bank­ans.“ Þetta kemur fram í frétt á heima­síðu Gildis, sem er þriðji stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins.

Þess vegna var það mat sjóðs­ins að „of mikil óvissa og áhætta fælist nú í kaup­unum fyrir sjóð­fé­laga Gildis. Viðræðum um kaup á hlut í Arion banka var því slitið.“

LSR sagði skorta á gagnsæi í söluferlinu

Stærstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins var boðið að kaupa hlut í Arion banka af Kaup­þingi, félagi utan um eft­ir­stand­andi eignir kröfu­hafa þess banka, þann 24. jan­úar síð­ast­lið­inn. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var vilji til þess að selja sjóð­unum um fimm pró­sent hlut áður en að bank­inn yrði skráður á markað. Frestur til að svara til­boð­inu rann út á mánu­dag, 12. febr­úar. Engin líf­eyr­is­sjóður tók því. Haukur Haf­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins (LSR), sagði í við­tali við Morg­un­blaðið í dag, að líf­eyr­is­sjóð­ur­inn hafi bakkað út úr við­ræðum um kaup á hlut í Arion banka, fyrir útboð og skrán­ingu, meðal ann­ars vegna skorts á gagn­sæi í sölu­ferl­in­u.

Þá segir hann að fram­tíð­ar­sýn fyrir hönd bank­ans hafi mátt vera skýr­ari í við­ræð­un­um, og að LSR, eins og aðrir líf­eyr­is­sjóð­ir, þurfi að meta sínar fjár­fest­ingar eftir áhættu og öðrum þátt­um, en nú leggur sjóð­ur­inn meðal ann­ars áherslu fjár­fest­ingar erlend­is.

Við­mæl­endur Kjarn­ans segja hins vegar ekki úti­lokað að íslensk trygg­inga­fé­lög og önnur fjár­mála­fyr­ir­tæki kaupi hluti í Arion banka fyrir útboð. Kaup­geta þeirra er næg til þess að hægt verði að losa að minnsta kosti tvö pró­sent í bank­anum og þar með upp­fylla það skil­yrði sem er sett fyrir vænt­an­legri arð­greiðslu upp á 25 millj­arða króna til hlut­hafa Arion banka, sem sam­þykkt var á hlut­hafa­fundi í gær.

Kaup­­þing er stærsti eig­andi Arion banka með um 57 pró­­sent hlut. Vog­un­­­­­­ar­­­­­­sjóð­irn­ir Taconic Capital, Och-Ziff CapitalManagement, Attestor Capital og fjár­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­bank­inn Goldman Sachs eiga sam­an­lagt 29,59 pró­­­­­­­sent hlut í bank­­anum og íslenska ríkið á 13 pró­­sent hlut.

Geta fengið háar bón­us­greiðslur tak­ist að selja allar eignir

Stefnt hefur verið að sölu á Arion banka í tölu­vert langan tíma. Kaup­­­þing ehf., eign­­­ar­halds­­­­­fé­lag utan um eft­ir­stand­andi eignir þrota­­­bús hins fallna banka, hélt á 87 pró­­­sent hlut í Arion banka eftir að gengið hafði verið frá upp­­­­­gjöri milli þeirra og rík­­­is­ins í byrjun árs 2016. Og ríkið hélt áfram á 13 pró­­­sent hlut.

Í sam­komu­lag­inu við kröf­u­haf­anna stóð líka að íslenska ríkið ætti for­­­kaups­rétt á hlutum í Arion banka ef bank­inn yrði seldur fyrir virði sem væri 80 pró­­­­sent eða minna af bók­­­­færðu eigin fé. Söm­u­­­leiðis getur ríkið geti leyst Arion banka til sín ef ekki tæk­ist að selja hann fyrir árs­­­lok 2018.

Í ágúst 2016 var greint frá því að um 20 starfs­­­menn Kaup­­­þings gætu fengið allt að 1,5 millj­­­arða króna í bón­us­greiðslur ef mark­mið um hámörkun á virði óseldra eigna myndi nást. Þessar bón­us­greiðslur ættu að greið­­­ast út eigi síðar en í lok apríl 2018. Langstærsta óselda eignin á þeim tíma var 87 pró­­­sent hlutur Kaup­­­þings í Arion banka. Og sú eign er enn að hluta óseld.

Sam­­­kvæmt upp­­­lýs­ingum frá Kaup­­­þingi þá verða bón­us­greiðsl­­­urnar að óbreyttu greiddar út fyrir lok apr­íl. Þau við­­­skipti sem áttu sér stað með hluti í Arion banka í fyrra hafa áhrif á umfang þeirra en fyr­ir­hugað hluta­fjár­­­út­­­­­boð á eft­ir­stand­andi 57,4 pró­­­sent hlut Kaup­­­þings mun ekki gera það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár