Íslandsveðmál kröfuhafa gekk fullkomlega upp

End­ur­heimtir kröfu­hafa föllnu bank­anna, þegar þeir eru búnir að greiða umsamið stöð­ug­leika­fram­lag til rík­is­sjóðs, verða betri en þeir hafa reiknað með að þær yrðu á und­an­förnum árum. Kröfu­hafar Glitnis munu til að mynda fá allt að 33 pró­sent af nafn­virði krafna sinna miðað við núver­andi eign­ar­stöðu bús­ins og áætlað stöð­ug­leika­fram­lag. Miðað við verð á mark­aði með skulda­bréf Glitnis hafa áætl­aðar end­ur­heimtir oft­ast nær verið á bil­inu 25-30 pró­sent, eða lægri en það sem kröfu­haf­arnir reikna nú með að fá. End­ur­heimtir kröfu­hafa Kaup­þings og Lands­bank­ans verða einnig við efri mörk þess sem þeir hafa talið að þær yrðu á und­an­förnum tæpu sjö árum.

Miðað við það verð sem hefur verið á kröfum á föllnu bank­ana virð­ast kröfu­hafar þeirra því hafa áætlað nokkuð vel fyrir mörgum árum síðan hver nið­ur­staðan yrði þegar greitt yrði úr búunum. Veðmálið á íslenska efna­hags­hrunið gekk upp og ljóst er að stór hópur kröfu­hafa, sem keyptu kröfur á bank­anna á hrakvirði síðla árs 2008 og á fyrri hluta árs­ins 2009, mun marg­falda fjár­fest­ingu sína.

Virðast vera að fá góðan "díl"

Stjórn­völd kynntu

áætlun sína um losun hafta

í byrjun júní síð­ast­lið­inn. Kynn­ingin snérist að mestu um 39 pró­sent stöð­ug­leika­skatt sem myndi skila íslenska rík­inu rúm­lega 800 millj­örðum króna. Til að forð­ast álagn­ingu skatts­ins gátu kröfu­hafar föllnu bank­anna sam­þykkt að greiða svo­kallað stöð­ug­leika­fram­lag fyrir næstu ára­mót. Greiðslu sem gerði þeim kleift að fá und­an­þágu frá gjald­eyr­is­höftum og greiða út kröfu­höfum sínum. Áður en að kynn­ing stjórn­valda, sem haldin var í Hörpu og var sjón­varpað beint, fór fram höfðu stærstu kröfu­hafar allra bank­anna sam­þykkt að greiða þetta stöð­ug­leika­fram­lag og útfært það að mestu hvernig þau ætl­uðu að gera það.

[caption id="attachment_31634" align="alignnone" width="640"] Tilkynnt var um aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda við losun hafta í byrjun júní síð­ast­lið­inn. Kynning á aðgerð­unum for fram í Hörpu og var sýnd i beinni útsend­ingu. Skömmu áður höfðu stærstu kröfu­hafar föllnu bank­anna lagt fram til­boð um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda til að sleppa við stöð­ug­leika­skatt.[/caption]

Síðan þá hafa margir rýnt í hvort kröfu­haf­arnir hafi gert góðan „díl“. Erlendir grein­ing­ar­að­ilar virð­ast, að minnsta kosti sumir hverjir, vera á þeirri skoðun og Indefence-hóp­ur­inn, sem barð­ist meðal ann­ars gegn sam­þykkt Icesave-samn­ing­anna, hefur gagn­rýnt sam­komu­lag við bank­ana og þann afslátt sem hann telur kröfu­hafa fá vegna þeirra.

Samkvæmt grein­ingu Kjarnans virð­ast kröfu­hafar vera að fá góðan „díl“. Þeir fjár­munir sem renna til þeirra vegna sam­komu­lags­ins eru meiri en kröfu­haf­arnir hafa verið að reikna með á und­an­förnum árum.

Glitnir "sparar" allt að 174 milljarða

Slita­stjórn Glitnis greindi frá því í hálfs­árs­upp­gjöri sínu, sem birt var í lok ágúst, að hún áætl­aði að búið greiði

205,4 til 254,4 millj­arða króna

í stöð­ug­leika­fram­lag til rík­is­sjóðs. Sú upp­hæð er í fullu sam­ræmi við

útreikn­inga sem Kjarninn

gerði á vænt­an­legu fram­lagi Glitnis í kjöl­far þess að rík­is­stjórnin kynnti áætlun sína um losun hafta í byrjun juní síð­ast­lið­inn.

Það er mun lægri upp­hæð en ef stöð­ug­leika­skattur yrði lagt á búið. Þá myndi það þurfa að greiða rík­is­sjóði 329,3 til 379,3 millj­arða króna. Kröfu­hafar Glitnis „spara“ sér því allt að 173,9 millj­arða króna með því að greiða stöð­ug­leika­fram­lagið til að sleppa við skatt­inn, sem yrði 39 pró­sent á allar eignir þess.

Sam­komu­lagið,sem var gert af stærstu kröfu­höfum Glitnis, var samþykkt af öðrum kröfu­höfum Glitnis á kröfu­hafa­fundi 8. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Meira en kröfuhafar reiknuðu með

Glitnir er það slitabú sem mun greiða lang­hæstu upp­hæð­ina í stöð­ug­leika­fram­lag. Athygli vekur að engar fréttir hafa borist af and­stöðu við sam­komu­lagið á meðal kröfu­hafa Glitnis. Það virð­ist fara afar vel ofan í þá. Ástæðan er ein­föld: sú lausn sem nú er verið að landa gerir það að verkum að end­ur­heimtir kröfu­hafa verða meiri en þeir hafa átt von á und­an­farin ár.

Kröfur á slitabú föllnu bank­anna eru að uppi­stöðu skulda­bréf sem ganga kaupum og sölum á skipu­lögðum mark­aði. Í við­skiptum með þær kröfur end­ur­spegl­ast það sem kröfu­haf­arnir telja virði krafn­anna verði þegar þær verða greiddar út. Væntar end­ur­heimtur á skulda­bréf Glitnis frá síðla árs 2009 og fram á þetta ár hafa verið á bil­inu 20 pró­sent af nafn­virði krafna og upp í um 30 pró­sent. Í vor voru end­ur­heimt­irnar áætl­aðar á bil­inu 27 til 29 pró­sent sam­kvæmt gerðum við­skiptum. Það þýðir að kröfu­hafar reikn­uðu með að 27 til 29 krónur af hverjum 100 nafn­virð­is­krónum myndi skila sér í vasa þeirra við upp­gjör bús­ins.

Sam­þykktar almennar kröfur í bú Glitnis eru 2.372 millj­arðar króna og eignir þess 981,1 millj­arður króna. Miðað við áætlað stöð­ug­leika­fram­lag munu kröfu­hafar Glitnis fá 726,7 til 775,7 millj­arða króna til skipt­anna. Það eru 30,6 til 32,6 pró­sent af nafn­virði krafna í búið, sem eru tölu­vert hærri end­ur­heimtir en kröfu­hafar hafa búist við und­an­farin ár.

[caption id="attachment_18324" align="alignnone" width="624"] Steinunn Guð­bjarts­dóttir, for­maður slita­stjórnar Glitnis.[/caption]

Við efri mörk væntra endurheimta Kaupþings

Miðað við útreikn­inga Kjarnans mun slitabú Kaup­þings þurfa að greiða um 100 millj­arða króna í stöð­ug­leika­fram­lag til að losna við stöð­ug­leika­skatt­inn. Ef hann myndi verða lagður á eignir Kaup­þings myndi hann skila um 327,2 millj­örðum króna.

Sam­þykktar almennar kröfur í bú bank­ans eru 2.806 millj­arðar króna og eignir hans eru metnar á um 838 millj­arða króna.

Væntar end­ur­heimtir kröfu­hafa Kaup­þings, miðað við það stöð­ug­leika­fram­lag sem búið mun að öllum lík­indum greiða, verða því 26,3 pró­sent af kröfum. Það er í takti við það sem kröfu­hafar hafa metið virði krafna á Kaupþing á und­an­farin ár. Á tíma­bil­inu októ­ber 2009 til mars 2013 voru áætl­aðar end­ur­heimtir lægstar 20,5 pró­sent en mestar 29 pró­sent. Oftast voru þær á bil­inu 24 til 26 pró­sent og því eru end­ur­heimtir kröfu­hafa Kaup­þings eftir greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags örlítið hærri en þær voru oft­ast á þessu ára­bili.

Líkt og hjá Glitni, og Lands­bank­anum líka, voru það stærstu kröfu­hafar Kaup­þings sem gerðu sam­komu­lag um greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags við stjórn­völd. Aðrir kröfu­hafar fá tæki­færi til að taka afstöðu til þess sam­komu­lags á kröfu­hafa­fundi 30. sept­em­ber næst­kom­andi.

Landsbankinn greiðir minnst

Slitabú Lands­bank­ans mun greiða stjórn­völdum um 30 millj­arða króna í stöð­ug­leika­fram­lag. Ástæða þess að greiðsl­urnar eru mun lægri en hjá hinum tveimur eru tví­þættar: ann­ars vegar vegna þess að þorri eigna Lands­bank­ans fóru í að greiða upp for­gangs­kröfur vegna inn­stæðna, aðal­lega Icesave. Slíkar kröfur í búið eru alls 1.328 millj­arðar króna. Hins vegar hélt slitabú Lands­bank­ans ekki eftir nýja bank­anum sem búinn var til um inn­lendar eignir og skuldir hans heldur fékk ríkið hann. Nýi Lands­bank­inn hefur greitt íslenska rík­inu mik­inn arð á und­an­förnum árum og nú stendur til að selja allt að 30 pró­sent hlut í honum, sem mun skila rík­inu miklum fjár­munum.

[caption id="attachment_7778" align="align­right" width="300"] Þorri eigna slita­bús Lands­bank­ans fór í að greiða for­gangs­kröfur vegna Icesave.[/caption]

Sam­þykktar kröfur í bú Lands­bank­ans voru 3.051 millj­arður króna. Þegar búið er að gera ráð fyrir greiðslu for­gangskrafna, sem eru þegar að lang­mestu greiddar, standa eftir kröfur upp á 1.612 millj­arða króna og eignir upp á um 251 millj­arð króna. Því fá almennir kröfu­hafar um 8,2 pró­sent end­ur­heimtir á öllum sam­þykktum kröfum. Það er í takti við virði krafna á bank­ann á árunum 2010 og framan af árinu 2011. Síðari hluta þess árs og næstu árin á eftir féll hins vegar verð á skulda­bréfum Lands­bank­ans og í lok árs 2012 voru væntar end­ur­heimtur komnar niður í um fimm pró­sent af nafn­virði krafna. Þegar ein­ungis almennar kröfur á Lands­bank­ans eru taldar með, ekki for­gangs­kröfur, eykst end­ur­heimt­ar­hlut­fallið enn frekar og verður 15,6 pró­sent.

Almennir kröfu­hafar gamla Lands­bank­ans fá tæki­færi til að kjósa um stöð­ug­leika­fram­lagið á kröfu­haf­ar­fundi sem fram fer 2. októ­ber næst­kom­andi.

Þeir sem komu fyrstir inn mokgræða

Þótt að sam­setn­ing kröfu­hafa­hópa bank­anna sé vel þekkt, en uppi­staðan í þeim eru banda­rískir fjár­fest­inga- og vog­un­ar­sjóðir, þá er ógjörn­ingur að sjá hvað hver þeirra mun "græða" á því að fjár­festa í efna­hags­legu hruni Íslands. Engar upp­lýs­ingar eru aðgengi­legar um á hvaða gengi stærstu kröfu­haf­arnir keyptu sig inn.

Það er þó hægt að draga þá ályktun að þeir sem komu snemma inn, keyptu skulda­bréf á íslensku bank­anna síðla árs 2008 og á árinu 2009, muni marg­falda fjár­fest­ingu sína.

Skulda­bréf á Glitni, Kaupþing og Lands­bank­ans voru til að mynda boðin upp í þremur upp­boðum alþjóð­legra trygg­inga­fé­laga, sem höfðu selt skulda­bréfa­trygg­ingar á þá, í nóv­em­ber 2008. Fyrsta upp­boðið var haldið 4. nóv­em­ber með skulda­trygg­ingar á Lands­bank­ann. Samkvæmt nið­ur­stöðu þess voru áætl­aðar end­ur­heimtur bréfa á bank­ann 1,25 pró­sent. Daginn eftir var haldið upp­boð á trygg­ingum á Glitni sem skil­aði því að væntar end­ur­heimtur voru þrjú pró­sent af upp­haf­legu virði skulda­bréfa. Síðasta dag­inn, fimmtu­dag­inn 6. nóv­em­ber, voru skulda­trygg­ingar Kaup­þings boðnar upp. Á þeim tíma var greini­legt að reiknað var með að end­ur­heimtur úr búi þess banka yrðu mestar, eða 6,625 pró­sent. Þessi upp­boð lögðu síðan lín­una fyrir lág­marks­verð á kröfum á íslensku bank­anna sem skiptu ótt og títt um eig­endur mán­uð­ina eftir.

Tíma­bilið frá því að þessi upp­boð fóru fram og þangað til hægt var að lýsa kröfum í bú bank­anna í apríl 2009 er í raun algjört svart­hol. Á þessu hálfa ári áttu sér stað mikil við­skipti með kröfur á íslensku bank­anna en þau eru þess eðlis að ómögu­legt er að rekja þau. Því er hvorki hægt að sjá hverjir voru stór­tæk­astir í upp­kaupum á þessum tíma né á hvaða verði þeir keyptu. Við­skiptin með kröf­urnar fóru fram á hrakvirði miðað við upp­haf­legt mat.

[quote font="0" align="right"]Sá hópur sem keypti kröfur á þessum tíma mun mok­græða á fjár­fest­ingu sinni.[/quote]

Það var á þessu tíma­bili sem vog­un­ar­sjóð­irnir, sem eiga stærstan hluta krafna á Glitni og Kaupþing, eign­uð­ust stóran hluta af kröfum sínum. Ástæður áhuga þeirra eru engin geim­vís­indi. Eignir búanna voru ein­fald­lega miklu meira virði en upp­haf­lega var talið. Sá hópur sem keypti kröfur á þessum tíma mun mok­græða á fjár­fest­ingu sinni.

Uppgjör hrunsins skilar ríkinu líka ábata

Þótt kröfu­hafar fái greitt út rúm­lega það sem þeir hafa reiknað með þegar íslenska efna­hags­hrunið verður gert upp þá fær íslenska ríkið líka ýmis­legt. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, reiknar til dæmis með því að stöð­ug­leika­fram­lagið og ávinn­ingur af fyr­ir­hug­uðum gjald­eyr­is­út­boðum fyrir aflandskrónu­eig­endur muni skila rík­is­sjóði um 500 millj­örðum króna. Sú upp­hæð mun, að minnsta kosti að hluta, fara í að greiða niður skuldir og lækkað vaxta­gjöld rík­is­sjóðs mikið á næstu árum.

Auk þess mun upp­gjör slita­bú­anna gera það að verkum að hægt verður að losa um fjár­magns­höft, sem hafa verið hér við lýði frá því síðla árs 2008, án þess að efna­hags­legum stöð­ug­leika verði ógnað. Með því mun upp­gjör hruns­ins ljúka að mestu á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár