Telur kröfuhafa hafa gert gott samkomulag við Ísland - hækkar væntar endurheimtur

Verð á skulda­bréfum á föllnu íslensku bank­anna er talið lík­legt til að hækka í kjöl­far þeirra aðgerða við losun hafta sem rík­is­stjórnin kynnti á mánu­dag þar sem kröfu­höfum var boðið að semja í stað þess að lagður væri á þá stöð­ug­leika­skattur. Þetta kemur fram í frétt á Bloomberg-frétta­veit­unni.

Þar er haft eftir Anthony Liu, grein­anda hjá Exotix Partners LLP, miðl­ara­fyr­ir­tæki í London, að sam­komu­lagið sem kröfu­haf­arnir hafa gert við íslensk stjórn­völd sé gott. „Mér finnst það ekki ósann­gjarnt, sem kom mér á óvart.“

Í frétt Bloomberg kemur fram að greiðslur kröfu­hafa sem byggja á þeim sam­komu­lögum sem náðst hafa um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda geti kostað slita­búin allt niður í 2,75 millj­arða dala, um 365 millj­arða króna, í sam­an­burði við þá 5,1 millj­arði dala, um 676 millj­arða króna, sem þeir hefðu þurft að greiða ef stöð­ug­leika­skatt­ur­inn hefði verið lagður á.

Liu telur að nið­ur­staðan eigi eftir að leiða til þess að verð á skulda­bréfum föllnu bank­anna, sem ganga kaupum og sölum á mark­aði, muni hækka umtals­vert. Hann telur að slitabú Glitnis, sem borgar mest allra slita­búa til rík­is­ins miðað við fyr­ir­liggj­andi sam­komu­lög, sé að fá „besta díl­inn“. Væntar end­ur­heimtur í bú bank­ans hafa vana­lega verið um 30 pró­sent af nafn­virði en Liu telur að þær muni nú hækka í um 35 pró­sent. Skulda­bréfa­verð bæði Glitnis og Kaup­þings hækk­aði lít­il­lega á þriðju­dag, sam­kvæmt Bloomberg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár