InDefence gagnrýna afslátt kröfuhafa - vilja að þeir borgi andvirði stöðugleikaskatts

InDefence hóp­ur­inn gagn­rýnir þá leið stjórn­valda að bjóða slita­búum föllnu bank­anna að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum og klára nauða­samn­inga sína gegn því að sleppa undan álagn­ingu stöð­ug­leika­skatts. Sú leið, að semja um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum, felur í sér lægri greiðslur frá slita­bú­unum til rík­is­sjóðs en álagn­ing stöð­ug­leika­skatts, sem yrði 39 pró­sent á allar eignir búanna. Þess í stað vill InDefence að tryggt verði í frum­vörpum til laga um stöð­ug­leika­skatt og nauða­samn­inga fjár­mála­fyr­ir­tækja að samn­ingar um mæt­ingu stöð­ug­leika­skil­yrða skili jafn miklu í rík­is­kass­ann og stöð­ug­leika­skattur, en að teknu til­liti til frá­drátt­ar­liða ætti hann að geta skilað 682 millj­örðum króna í tekjur fyrir ríkið legg­ist hann á. Þetta er meðal þess sem kemur fram í umsögn hóps­ins um frum­varp um stöð­ug­leika­skatt sem skilað var inn til Alþingis í vik­unni.

Mat á því hversu miklu sam­komu­lag um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda skilar er mis­mun­andi. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur talað um 450 millj­arða króna. Sér­fræð­ingar sem Kjarninn fékk til að reikna út mögu­legar tekjur sögðu að þær yrðu lík­ast til á bil­inu 300 til 400 millj­arðar króna. Aðrir hafa kom­ist að hærri nið­ur­stöðu. Hver end­an­leg fjár­hæð verður mun þó ekki liggja fyrir fyrr en búið verður að selja við­skipta­bank­anna tvo, Íslands­banka og Arion banka, sem eru í eigu slita­búa föllnu bank­anna og end­an­legt virði krafna sem fram­seldar verða til stjórn­valda verður ljóst.

Forsætisráðherra og nánustu samstarfsmenn voru í InDefence


InDefence-hóp­ur­inn hefur verið mjög áber­andi í íslensku sam­fé­lagi und­an­farin ár. Hópurinn varð fyrst til í októ­ber 2008 þegar nokkrum ein­stak­lingum ofbauð fram­ganga breskra stjórn­valda gagn­vart Íslandi þegar landið beitti hryðju­verkarlögum gegn Íslandi vegna banka­hruns­ins. InDefence barð­ist síðan hat­ramm­lega gegn Icesave-samn­ing­unum og stóð meðal ann­ars fyrir und­ir­skrift­ar­söfn­unum gegn sam­þykkt þeirra.

[caption id="attachment_31627" align="alignnone" width="640"] Sigurður Hann­es­son.[/caption]

Bæði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður hans, voru áber­andi í starfi InDefence hér á árum áður. Sigurður Hann­es­son, einn vara­for­manna fram­kvæmda­hóps um losun hafta, sem vann til­lögur um stöð­ug­leika­skil­yrði og mögu­legan stöð­ug­leika­skatt, kom einnig að starfi hóps­ins. Sigurður er einn nán­asti efna­hags­ráð­gjafi og trún­að­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra. Hann tekur auk þess virkan þátt í flokks­starfi Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Telja ágalla á nauðasamningsleið


Í Frétta­blað­inu í dag er rætt við Ólaf Elíasson, tón­list­ar­mann og með­lim InDefence, um gagn­rýni hóps­ins á frum­vörp um stöð­ug­leika­skatt og nauða­samn­inga fjár­mála­fyr­ir­tækja. Þar segir hann afstöðu InDefence hafa verið þá að þeir sem ábyrgir eru fyrir því tjóni sem þjóð­fé­lagið hafi orðið fyrir vegna banka­hruns­ins, slita­búin, bæru kostn­að­inn af þeim skaða, frekar en almennir borg­arar lands­ins.

Þetta sjón­ar­mið segir Ólafur ekki virð­ast hafa orðið ofan á og að rík­is­stjórnin hafi talið auð­veld­ara að fara fram með mark­mið um stöð­ug­leika. Það sé nokk­urs konar fram­hald á sam­komu­lag­inu sem gert var við Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn í lok árs 2008. Leið stöð­ug­leika­skatts sé auð­skilj­an­leg og hún verji almanna­hags­muni. Ágallar séu hins vegar á nauð­samn­ings­leið.

Auk þess setur InDefence-hóp­ur­inn sig upp á móti því að Seðla­banki Íslands geri svo­kall­aðað stöð­ug­leika­mat. Að sögn Ólafs sýni sagan að þótt Seðla­bank­inn njóti trausts í efna­hags­málum þá sé hann ekki óskeik­ull. Það hafi komið í ljós með van­hugs­aðri afstöðu hans til Icesave. „Hann byggir allt sitt á lang­tímamati sem hingað til hefur ekki oft stað­ist og þess vegna er frá­leitt að láta þetta alfarið í hend­urnar á Seðla­bank­anum," segir Ólafur við Frétta­blaðið.

Hann tekur þó fram að hann telji að rík­is­stjórnin sé "búin að ná ævin­týra­legum árangri umfram það sem til stóð og ástæða til að halda því til haga.“ Það hversu fljótir kröfu­haf­arnir hafi verið til að sam­þykkja samn­inga­leið­ina ætti þó að nægja til að vekja upp spurn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár