Spánn gefur Katalóníu fimm daga frest

Stjórn­völd á Spáni hafa stillt Katalóníu upp við vegg, og gefið stjórn­völdum fimm daga frest til að eyða öllum hugmyndum um sjálf­stæði héraðsins.

Mariano Rajoy forsætis­ráðherra Spánar hefur gefið Carles Puigdemont forseta Katalóníu fimm daga frest til þess að gefa svar um það hvort hann ætli að lýsa yfir sjálf­stæði Katalóníu.

Frá þessu greinir breska ríkis­útvarpið BBC, en í fréttinni segir einnig að ef hann staðfesti fyrir næst­komandi mánudag að hann ætli að gera það, þá muni hann fá þrjá daga til viðbótar til að draga sjálfstæðis­yfirlýsingu til baka.

Rajoy hefur sýnt mikla hörku í samskiptum við Katalínu, og hefur sagt að hann sé tilbúinn að beita 155. grein spænsku stjórnar­skrárinnar til að svipta héraðinu sjálf­stjórnar­réttindum sínum, en stjórn héraðsins færi þá til spænskra stjórn­valda.

Puigdemont skrifaði undir sjálfstæðis­yfirlýsingu Katalóníu í gær, en frestaði jafnframt framkvæmdinni til að veita svigrúm til viðræðna.

Mikil óvissa hefur ríkt á Spáni eftir þjóðar­atkvæða­greiðsluna í Katalóníu þann 1. október síðastliðinn sem hefur verið dæmd ógild af stjórnlaga­dómstól Spánar.

Rajoy segir að nauðsynlegt sé að binda enda á stöðuna í Katalóníu til að tryggja öryggi í Barcelona og eyða öllum efasemdum að Spánn standi eftir - þrátt fyrir þjóðar­atkvæða­greiðsluna um sjálf­stæði - sameinaður. Allir aðrir mögu­leikar séu óásættanlegir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár