Vinsælasta hljómsveit Íslands var úthrópuð

Lög­reglan kom inn á heim­ili Gunnars Þórð­ar­sonar. Hann við­ur­kenndi neyslu á mari­ju­ana.

Í árs­byrjun 1970 birt­ist við­tal við með­limi hljóm­sveit­ar­innar Trúbrots sem skók sam­fé­lagið. Á for­síðu vik­unnar var heil­síðu­mynd af þess­ari vin­sæl­ustu hljóm­sveit Íslands með fyr­ir­sögn­inni: Við reyktum mari­ju­ana. Þessi yfir­lýs­ing var orð­rétt höfð eftir Gunnari Þórð­ar­syni gít­ar­leik­ara. 

Viðtalið kom í fram­haldi af lög­reglu­rann­sókn og miklu umtali í sam­fé­lag­inu þar sem umtalað var að hljóm­sveitin væri í dóp­inu, eins og það kall­að­ist þá. Ómar Valdi­mars­son, blaða­maður Vikunnar, útskýrði í upp­hafi við­tals­ins hver var kveikjan að umfjöll­un­inni. 

„Hvar sem maður kemur þessa dag­ana er talað svo til ein­göngu um tvennt: EFTA og dópstandið á Trúbrot. Ég rakst á kunn­ingja minn í strætó um dag­inn og við fórum að tala um þetta tvennt, þó heldur meira um dóp­málið svo­nefnda,“ skrifar Ómar og seg­ist hafa verið á þeirri skoðun að honum þætti heldur harka­lega að þeim félögum í Trúbrot farið. Og honum tókst að selja hljóm­sveit­inni þá hug­mynd að tala út um málið og játa neysl­una und­an­bragða­laust. 

Súpergrúppa

Á þessum tíma var Trúbrot lang­vin­sælasta hljóm­sveit lands­ins, og stóð flestum öðrum hljóm­sveitum framar að getu og vin­sældum. Hún var súpergrúppa, sett saman úr Hljómum, fyrstu bítla­hljóm­sveit Íslands, og Flowers, sem notið hafði mik­illa vin­sælda. Trúbrot var á þessum tíma nán­ast í guða­tölu hjá ungu fólki á Íslandi og hafði gríð­ar­leg áhrif á ungt fólk. Afhjúp­unin var því mörgum reið­ar­slag.   

Ómar hitti Gunnar Þórð­ar­son „gít­ar­leik­ara hljóm­sveit­ar­innar alræmdu“ og fékk hann til að segja allt af létta um þetta mál sem svo mikið hafði verið talað um í blöðum og á götum úti. Gunnar sagð­ist sjálfur hafa byrjað að nota „lyfið“ á Englandi þremur árum fyrr þegar fyrri breið­skífa Hljóma var tekin upp þar. Síðan hafi hann neytt mari­ju­ana í Svíþjóð ári síðar en lítið eftir það. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gamla fréttin

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár