Enn fullt af plasti þrátt fyrir fullyrðingar um hreinsun - Terra bregst við og fjarlægir moltuna

Enn er mikið plast að finna á svæði sem Terra dreifði plast­mengaðri moltu á í Krýsuvík þrátt fyrir að starfs­menn Terra hafi fullyrt að búið sé að hreinsa það. Mikið af plasti fannst grunnt ofan í jörðinni, í umræddri moltu. Terra ákvað í gærkvöldi, eftir ábendingar Stundarinnar, að hreinsa alla moltuna burt.

Mikil plastmengun Mikið plast var enn í jörð í Krýsuvík þegar blaðamaður Stundarinnar fór þangað í vettvangsferð, þrátt fyrir að Terra hafi fullyrt að svæðið hafi verið hreinsað. Terra hefur nú hafist handa við að fjarlægja alla plastmenguðu moltuna af svæðinu.

Sorphirðu- og endur­vinnslu­fyrirtækið Terra, sem dreifði plast­mengaðri moltu á svæði við Krýsuvík í sumar, hefur sagt að það hafi brugðist við ábendingum þess efnis að plast væri á svæðinu og hafi sent mannskap til að hreinsa það upp. Athuganir Stundarinnar sýna þó að verulegt magn smárra plastagna eru enn á umræddu svæði og þegar grafið er grunnt ofan í moltuna má finna mikið magn af plasti þar, stóru sem smáu.

Þá fann blaða­maður Stundarinnar sem fór á svæðið í gær einnig leyfar af blámáluðum trébrettum, sem höfðu verið tætt niður og notuð í stoðefni við gerð moltunnar. Mjög óæskilegt er að málað timbur sé notað í moltugerð þar eð málningin getur inni­haldið ýmis efni sem ekki ættu að berast út í náttúruna.

„Þetta var hálfur plastpoki sem við týndum“

Terra, sem var útnefnt umhverfis­fyrirtæki ársins af Samtökum atvinnu­lífsins nú rétt á dögunum, dreifði 1.500 rúmmetrum af moltu á um 50 hektara svæði í Krýsuvík, í samvinnu við Land­græðsluna og með stuðningi umhverfis­ráðuneytisins. Ætlunin var að græða upp gróður­snautt land með moltunni sem gerð er úr lífrænum úrgangi. Moltan var hins vegar menguð af plasti og sagði Arngrímur Sverrisson, rekstrar­stjóri Terra, í samtali við Stundina fyrir helgi að ástæðan hefði verið þekkingar­leysi. Hann harmaði mistökin mjög.  

Segjast hafa farið vandlega yfir svæðið

Freyr Eyjólfsson, upplýsinga­fulltrúi Terra, hefur lýst því að fyrir­tækið hafi brugðist við ábendingum um mengunina með því að fara á svæðið og hreinsa það. „Ég fór sjálfur á svæðið, við vorum þar í tvo daga og fórum vel og vandlega yfir svæðið eftir að hafa fengið ábendingu um þetta á Facebook fyrir um tveimur vikum. Við vorum þarna sjö manns, og afraksturinn var nú ekki meiri en svo að þetta var hálfur plastpoki sem við týndum, sem eru nú ekki gríðarleg afköst í plokki. En það var fínt að þessi ábending kom og við bara hreinsuðum svæðið,“ segir Freyr í samtali við Stundina.

Þannig að svæðið er núna hreint?

„Við höfum farið mjög vandlega yfir þetta og reynt að hreinsa allt upp.“

Við sendum blaðamann á svæðið og sá var ekki sammála því að búið væri að hreinsa það. Hann stakk til að mynda niður skóflu og upp með moltunni kom hreinlega alls konar plast, misstórt. Það virðist því vera að þó þið hafið hreinsað það sem var á yfirborði jarðar þá sé ljóst að jörðin undir sé verulega plast­menguð.

Mikið plast­ruslEins og sjá má er enn mikið plast­rusl í molt­unni í Krýsuvík.

„Við erum búin að útskýra að þetta er ekki öll moltan, þetta er lítill hluti moltunnar á afmörkuðu svæði og það urðu mistök. Það er klárlega frétt og allt í lagi hjá þér að upplýsa um það og það er klárlega frétt að umhverfis­fyrirtæki ársins sé í moltu­verkefni og samstarfi með Land­græðslunni og það hafi farið einhver hluti moltunnar á þetta svæði plast­mengað. Við höfum gengist við því og beðist afsökunar á því, við höfum reynt að fara þarna á svæðið og skoða og hreinsa þetta upp og við töldum að málinu væri lokið með því. Þetta er rann­sóknar og tilrauna­verkefni og við fórum þarna upp eftir með nokkrar tegundir af moltu því þetta er vísinda­verkefni. Einn hluti moltunnar er gróf­sigtaður og við setjum meira trjákurl í hana og við treystum bara á að þetta væri gott og þar fór í gegn, því miður plast. Það er bara fínt að upplýsa um það, við erum ekkert yfir gagnrýni hafin og þó við séum eitthvað umhverfis­fyrirtæki ársins þá erum við ekkert fullkomin.“

Þess ber að geta að það sem Freyr segir hér að framan er ekki í samræmi við það sem mátti skilja á Arngrími Sverris­syni, rekstrar­stjóra Terra, þegar Stundin ræddi við hann fyrir helgi. Arngrímur talaði aldrei í því viðtali um að um lítinn hluta moltunnar hefði verið að ræða. Þá sagði hann að ástæðan fyrir því að svona fór hefði verið að net sem Terra notar til að sía moltuna, og grípa þar með aðskota­efni eins og plast, hefðu verið með of stóra möskva­stærð og minnka þyrfti þá möskva.

Málað timbur notað sem stoðefni

Spurður um hversu lítinn hluta moltunnar væri þá að ræða svaraði Freyr:

„Ég er ekki með nákvæmar tölur en ég get alveg sagt það að þetta nær ekkert yfir allt svæðið.“

Vitið þið þá hvar henni var dreift, þessum ákveðna hluta?

„Já, við vitum nákvæmlega hvar henni var dreift og fórum þangað.“

Er þá ekki ástæða til þess að fjarlægja þá moltu, í ljósi þess að það virðist vera plast um allt í moltunni?

„Við erum búin að fara þarna tvisvar eða eða þrisvar og hreinsuðum eins og við gátum. Mér þykir mjög leitt að heyra að þú hafir fundið eitthvað meira með því að grafa þarna niður.“

Blaða­maður Stundarinnar sem fór á staðinn í gær fann þar leifar af niður­tættum vöru­brettum, máluðum með bláu. Slík vöru­bretti ætti alls ekki að nota til moltu­framleiðslu þar eð í málningunni geta verið ýmis þau efni sem óæskilegt er að komist út í náttúruna. Spurður hvort þar hafi líka verið um mistök að ræða svaraði Freyr:

 „Þetta er gömul molta þar sem þetta var gert, en núna og síðastliðin ár höfum við eingöngu notað garða­úrgang og tré sem stoðefni. Þetta er akkúrat þessi litli hluti moltunnar sem ég er að tala um.“

Geturðu þá ekki sagt mér hversu mikill hluti þessara 1.500 rúmmetra af moltu sem þarna var dreift er þessi litli hluti moltunnar sem var mengaður, ýmist af bláum brettum eða plasti?

„Ég get ekki skotið á töluna núna en þetta er lítill hluti moltunnar, á afmörkuðu svæði.“

Hyggist þið bregðast á einhvern hátt við því að í jarð­veginum hafi fundist töluvert magn plasts?

„Tókuð þið margar prufur, mörg sýni? Það er mjög erfitt að svara þessu.“

En tókuð þið sjálfir sýni og prufur úr jarð­veginum?

„Ég get bara ekki alveg svarað þessu. Ég verð bara að sjá þetta og skoða þetta til að geta brugðist við þessu.“

En aftur, ættuð þið ekki að fjarlægja þessa plast­menguðu moltu af svæðinu?

„Ef þið hafið fundið meira plast þá þætti mér vænt um að þið mynduð vísa mér á staðinn og við bara bregðumst við því og hreinsum það upp.“

Ég verð að fá að ítreka þetta, er ekki ljóst að moltan sjálf, jarðefnið, er allt plast­mengað og þarf ekki að fjarlægja hana fyrir vikið, þennan hluta?“

„Hún er ekkert öll plast­menguð.“

Nú, en vorum við ekki að ræða að svo væri áðan?

„Ef það er einhver hluti þarna sem er enn óhreinn þá þarf að fara og hreinsa það betur og við munum sannarlega gera það. Það þarf ekkert að fjarlægja moltuna, við förum bara og hreinsum svæðið eins vel og við getum. Það er ekkert mál að fara þarna og plokka og tína þetta, það er það sem við gerðum.“

Er ekki augljóst að það er alls konar plast í moltunni sjálfri? Þarf þá ekki að fjarlægja hana?

„Það er mjög erfitt að fjarlægja alla moltuna, við getum alveg farið þarna upp eftir og hreinsað til eins og við höfum verið að gera.“

Já, en vandinn er sá að ef tilfellið er að það komi alltaf upp plast ef maður stingur niður skóflu þá er plastið þarna ofan í jörðinni með tilheyrandi mengun af, ekki satt?

„Þá er það bara vísbending um að við þurfum að fara þarna upp eftir og hreinsa betur og fara með hrífur og við gerum það þá bara. Takk fyrir ábendinguna.“

Segir lærdómsríkt að gera mistök

Freyr segir að hjá Terra þyki fólki mjög vænt um verkefnið og það sé mikilvægt. „Okkur þykir mjög vænt um þetta tilrauna og rannsóknar­verkefni með Land­græðslunni. Þetta er mikilvægt verkefni til að fara að nota moltu og lífrænan áburð til land­græðslu og skóg­ræktar. Við viljum að það takist, það hefur ákveðið fordæmis­gildi þannig að við munum gera allt til að hreinsa upp svæðið.

„Stundum er það nú bara lærdóms­ríkt í rann­sóknum og tilraunum að gera mistök, er það ekki?“

Þetta hefur aldrei áður komið fyrir hjá okkur, í þrjátíu ára sögu moltu­fram­leiðslunnar. Við höfum sett moltu í önnur landgræðslu­verkefni, það er búið kaupa af okkur moltu, við höfum verið að gefam moltu til skóg­ræktenda og aldrei áður hefur komið svona kvörtun.“

Finnst ykkur það þá bera ykkur gott vitni að það hafi komið upp í þessu mikilvæga verkefni?

„Það er mjög miður að þetta hafi gerst og við förum ekkert í grafgötur með það. Við gerðum mistök, þetta er rann­sóknar og tilrauna­verkefni og þarna fór ákveðinn hluti út sem ekki átti að fara út. Ákveðinn fasi í tilrauninni mistókst skulum við segja, eða það voru gerð mistök í ákveðnum hluta rann­sóknarinnar, og stundum er það nú bara lærdóms­ríkt í rann­sóknum og tilraunum að gera mistök, er það ekki? Þá vitum við hvað við getum gert betur.“

Fundu plast og ætla að fjarlægja moltuna

Freyr Eyjólfsson hafði aftur samband við blaðamann eftir fyrra samtal og upplýsti að hann hefði farið að nýju í vettvangs­ferð í Krýsuvík. Í þeirri vettvangs­ferð hefði komið í ljós að skoðun blaða­manns Stundarinnar kom heim og saman, mikið plast væri enn í moltunni sem Terra dreifði í Krýsuvík. Það væri mjög miður og því hefði verið brugðist við og Terra hafið frekari og umfangs­meiri hreinsun.

„Terra hefur þegar hafist handa viđ ađ hreinsa þessa moltu burt af þessum svæđum“

„Terra hefur þegar hafist handa viđ ađ hreinsa þessa moltu burt af þessum svæđum. Yfirborđshreinsun er búin ađ vera í gangi og mun halda áfram. Þetta verður mikil vinna og við verðum í þessu næstu daga. Við ætlum að hreinsa þetta upp og flytja þetta burtu. Við viðurkennum að við gerðum þarna mistök og ætlum bara að bæta fyrir það. Terra mun taka þetta svæđi í fóstur og fara reglulega yfir svæđiđ í allan vetur og næsta vor og tryggja þađ allt komist í gott ástand,“ sagði Freyr. Hann upplýsti einnig að mengaða moltan hefði verið um fimmtungur af þeirri moltu sem dreift var í Krýsuvík og hefði verið dreift á tvö svæði.  

Hreins­un­ar­starf hafiðTerra brást í gær­kvöldi við, eftir að blaða­maður ræddi við Frey Eyj­ólfs­son, og fóru á svæðið í Krýsuvík í vett­vangs­skoðun. Þá kom í ljós mikið plast í molt­unni sem dreift var á svæð­inu og hófst fyr­ir­tækið handa við að fjar­lægja hana.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár