Nær helmingur karlmanna sagðist hafa áreitt

Tæpur helmingur karlkyns svarenda netkönnunar Harvard Business Review viðurkenndu að þeir höfðu tekið þátt í athæfi sem nú yrði skilgreint sem kynferðisleg áreitni.

Áhrif #MeToo og #TimesUp herferðanna á vinnustaði eru enn óljós.
Áhrif #MeToo og #TimesUp her­ferð­anna á vinnu­staði eru enn óljós. Mynd: Pixabay.com

Nær helmingur karlmanna sem svöruðu netkönnun tíma­ritsins Harvard Business Review sögðust hafa gert eitthvað í fortíðinni sem yrði skilgreint sem kynferðisleg áreitni í dag. Könnunin mældi einnig áhrif #MeToo og #TimesUp á vinnu­staði, en þau eru talin óljós samkvæmt frétt á vef tíma­ritsins sem birtist í gær.

Samkvæmt fréttinni lét tímaritið gera könnun til þess að skoða eftir­fylgni #MeToo og #TimesUp byltinganna sem vöktu athygli á kynbundinni áreitni í garð kvenna síðasta vetur. Könnunin var framkvæmd á netinu og alls svöruðu 1.100 manns henni, en flestar spurningarnar sneru að því hvort einhverjar breytingar hafi átt sér stað á vinnu­stöðum svar­endanna vegna byltinganna.

Heilt yfir sýndi könnunin jákvæð viðhorf í garð umræðunnar um kynferðis­lega áreitni, en um 63% viðmælenda lýstu #MeToo sem „heilbrigðri,“ auk þess sem 45% þeirra segja það hafa orðið öruggara að deila eigin reynslu­sögum af ofbeldi. Þá höfðu 28% svarenda deilt eigin sögu um kynferðislegaa áreitni, en 41% viðmælenda þekktu einhvern sem hafði gert það.

Frétt Harvard Business Review segir svör karlkyns viðmælenda könnunarinnar hafa staðfest umfang vanda­málsins sem byltingarnar færðu í sviðs­ljósið. Nær helmingur þeirra sögðust hafa einhvern tímann í fortíðinni tekið þátt í athæfi sem nú væri skilgreint sem kynferðisleg áreitni eða misferli.

Þegar kom að því að mæla raun­verulega eftir­fylgni #MeToo og #TimesUp á vinnu­stöðum voru niður­stöður könnunarinnar hins vegar óskýrar. Um 56% viðmælenda sögðust hafa fundið fyrir einhverjum framförum, en aðeins um þriðjungur vildi meina að fram­farirnar hafi verið meiri en litlar. Aðeins 19% kvenmanna og 23% karlmanna sögðu vinnu­staðinn sinn hafi hrundið af stað starfsmanna­þjálfun sem miðaði að samskiptum kynjanna auk þess sem 23% kvennna og 17% karlmanna sögðust hafa séð haldbærar breytingar á vinnu­staðnum sem auka trú þeirra á viðbragðs­getu kerfisins ef slík atvik koma upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár