Amazon boðar lægra verð í Whole Foods og öflugri netverslun

Ævintýra­legur vöxtur Amazon heldur áfram. Áskrifendur Amazon Prime munu nú geta verslað á afsláttar­kjörum í Whole Foods.

Hluthafar Whole Foods hafa nú formlega samþykkt kaup­tilboð tækni- og smásölu­risans Amazon en verð­miðinn var 13,7 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 1.500 milljörðum króna. Formleg sameining hefur ekki ennþá gengið í gegn, en það styttist í að það gerist.

Amazon hyggst lækka verð á fjölda vöru­tegunda í Whole Foods og tengja saman Amazon Prime vildarkjara­kerfi á vef fyrir­tækisins við verslana­keðjuna. Þannig munu áskrifendur Amazon Prime fá afsláttar­kjör í Whole Foods.

Talið er að Amazon Prime meðlimir séu næstum 80 milljónir á heimsvísu, en Amazon gefur ekki upp nákvæma tölu áskrifenda sinna í uppgjörs­tilkynningum. Grein­endur hafa þó greint uppgjör félagsins með fyrr­greindum hætti.

Fastlega er búist við því að Amazon muni kynna marg­víslegar breytingar á starfsemi sinni, á næstu misserum, en fyrir­tækið vinnur nú að miklum vaxtar­áformum í Evrópu og miðausturlöndum, þar sem fyrir­tækið ætlar sér að byggja upp sambærilega smásölu­starfsemi og hefur náð rækilegri fótfestu í Banda­ríkjunum.

Gengi bréfa helstu samkeppnis­aðila Amazon féll, samkvæmt umfjöllun BBC, eftir að fréttirnar bárust út um að Amazon hefði hug á því að lækka vöruverð í Whole Foods, og efla verslunina með harðari samkeppni um verð við önnur fyrirtæki. Vöruverð í Whole Foods hefur verið á bilinu 15 til 20 prósent hærra en hjá mörgum samkeppnis­aðilum, en að á móti hefur fyrir­tækið lagt mikið upp úr gæðavöru og góðri verslunar­upplifun.

Í heild eru verslanir Whole Foods 470 talsins. Jeff Bezos, forstjóri Amazon, hefur látið hafa eftir sér að engar kúvendingar verði gerðar á starfsemi Whole Foods, enda fyrir­tækið þekkt fyrir afbragðs þjónustu og góðar vörur. Hins vegar séu mikil tækifæri í því fólgin að efla netverslun, og tengja vöru­merkið við þjónustu Amazon.

Markaðs­virði Amazon er í dag 474 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur um tæplega 50 þúsund milljörðum króna. Virði fyrir­tækisins er því um fimmtíu­falt meira en virði íslenska hlutabréfa­markaðarins í heild sinni. Bezos, sem er stofnandi fyrir­tækisins, á sjálfur rúmlega 17 prósent hlut í fyrir­tækinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár