Kosningastjóri Trumps dæmdur og lögmaðurinn játar lögbrot

Óhætt er að segja að innstri hringur Donalds Trumps Bandaríkja­forseta sé nú í vanda.

Paul Manafort, sem var kosninga­stjóri Donalds Trumps um tíma, var í gær sak­felld­ur fyr­ir skattsvik, banka­svik og fyr­ir að hafa ekki greint frá inni­stæðum leynilegra félaga í skatta­skjólum.

Fjöl­miðlar í Banda­ríkjunum túlka dómin sem sig­ur fyr­ir sér­stak­an sak­sókn­ara, Robert S. Mu­ell­er, og starfs­menn hans.

Þeir ákærðu Mana­fort fyr­ir að fela millj­ón­ir Banda­ríkja­dala á af­l­ands­reikn­ing­um til þess að forðast skatta og að hafa logið ít­rekað til þess að geta fengið 20 millj­ón­ir doll­ara að láni hjá fjár­mála­stofn­un­um.

Ákær­an gegn Mana­fort var í 18 liðum og var hann dæmd­ur fyr­ir 8, en kviðdóm­ur­inn gat ekki kom­ist að niður­stöðu í 10 liðum.

Cohen líka

Fyrr­verandi lögmaður Trumps, Michael Cohen, játaði síðan í gær á sig um­fangs­mik­il fjár- og skattsvik. Hann hef­ur und­an­farið verið til rann­sókn­ar vegna mögu­legra skatts­vika og fleiri svika við fjár­mála­stofn­an­ir, og hefur sekt hans nú verið sönnuð og viðurkennd.

Tengdist hún meðal annars 20 milljóna Bandaríkja­dala lánveitingum til fjölskyldu­reksturs has, á sviði leigubíla­starfsemi.

Hann sagðist enn fremur hafa greitt tveim­ur kon­um að beiðni Trumps Bandaríkja­forseta, til að tryggja að þær myndu ekki tala um sam­band sitt við for­set­ann.

Cohen sagði að greiðslurn­ar hefðu átt að hafa áhrif á for­seta­kosn­ing­arn­ar 2016. Þetta er brot á lögum um fjár­mögnun kosingabaráttu, og segir á vef CNN að margir telji Trump sjálfan nú vera í vandræðum. Ekki eru öll kurl komin til grafar enn, hvað þetta varðar, en Trump hefur enn ekki tjáð sig um þessi mál.

Ann­arri kon­unni greiddi Cohen 150 þúsund Bandaríkja­dali en hinni, klámmynda­leikkonunni Stor­my Daniels, greiddi hann 130 þúsund Bandaríkja­dali. Var það gert til að Daniels þegði um sam­band henn­ar og Trump sem varði í stutt­an tíma, á meðan hann var kvænt Melaniu Trump, eiginkonu sinni og forsetafrú.

Daniels steig fram fyrr á árinu og sagði að sér hefði verið hótað ef hún myndi tjá sig um sambandið við forsetann, en hún gerði það samt, og leiddi það meðal annars til þess að rannsókn hófst á Cohen. Var húsleit framkvæmd á skrif­stofu hans í apríl og hefur rannsókn staðið yfir síðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár