47 skotvopn hafa fundist hjá fjöldamorðingjanum

Stephen Paddock, sem skaut 59 til bana í Las Vegas og særði yfir 500, var með 47 skotvopn á þremur stöðum.

Stephen Paddock, fjölda­morðinginn sem skot 59 til bana og særði yfir 500 á tónleikum í Las Vegas, var með í það minnsta 47 skotvopn, auk sprengis­efnis og skotfæra, í fórum sínum. Þetta staðfesti lögreglan í Nevada á blaðamanna­fundi í nótt.

Skot­vopnin voru á hótelhergi á 32. hæð Mandala Bay Resort, þar sem hann skaut á þúsundir manna á tónleikum, í húsi hans í Mesquite og síðan á stað sem ekki hefur verið gefinn upp ennþá.

Paddock skaut sig áður en sérsveitar­menn brutu sér leið inn á herbergi hans og lést hann samstundis af sárum sínum.

Skot­árásin er ein sú mann­skæðasta í sögu Banda­ríkjanna, en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu virðist Paddock hafa skipulagt árásina vel áður en hann lét til skarar skríða.

Hann lét byssu­kúlum rigna inn í mann­fjölda sem taldi 22 þúsund manns, og var með sérstakan búnað á byssunum sem gerðu honum mögulegt að skjóta fleiri skotum á skemmri tíma. Þá var hann einnig með mynda­vélabúnað inn á herbergi sínu sem gerði honum mögulegt að fylgjast með lögreglu­mönnum og öðrum manna­ferðum í nágrenni við herbergi hans og fyrir utan hótelið.

Rannsókn er enn í gangi, en lögreglan staðfesti að hann hefði nýlega millifært nokkur þúsund Bandaríkja­dali til Filippseyja, en ekki hefur verið staðfest í hvaða tilgangi það var gert. Paddock var sterk­efnaður en hafði aldrei komið við sögu lögreglu fyrr, nema í tengslum við hefð­bundið eftirlit lögreglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár