Guðlaugi Þór eignuð menningarmál fyrir mistök

Mistök við birtingu forseta­úrskurðar um skiptingu mála­flokka á milli ráðherra urðu til þess að Guðlaugur Þór Þórðarsson, nýskipaður umhverfis-, orku- og loftslags­mála­ráðherra, var settur yfir menningarmál.

Óvænt verkefni
Óvænt verk­efni Það kom fólki á óvart að Guð­laugur Þór hefði fengið menn­ing­ar­mál á sitt borð enda nýskip­aður umhverf­is­ráð­herra. Mynd: xd.is

Vegna mistaka við birtingu forseta­úrskurðar um skiptingu starfa ráðherra í Stjórnar­tíðindum í gærkvöldi virtist sem svo að Guðlaugi Þór Þórðar­syni, nýskipuðum umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra hefði verið falin stjórn menningar­mála. Var hann sagður fara fyrir málefnum bókmennta, mynd­listar, list­skreytingar opinberra bygginga, Sinfóníu­hljóm­sveitar Íslands og Kvikmynda­miðstöðvar, starfs­launa lista­manna, Þjóð­leikhússins og Íslenska dans­flokksins. 

    Svo er hins vegar ekki, samkvæmt upplýsingum frá Róberti Marshall, upplýsinga­fulltrúa ríkis­stjórnarinnar. Mistök hafi verið gerð við birtingu úrskurðarins. Hin eiginlegu skjöl hafi verið rétt og því hafi mistökin ekki haft áhrif á raun­verulega skiptingu verkefna á milli ráðherra. 

    Hið rétta er að Guðlaugur Þór fær á sitt borð verkefni umhverfis­ráðuneytisins að viðbættum málefnum tengdum menningar­minjum, sem tilheyra mennta- og menningar­mála­ráðuneytinu. Undir þeim mála­flokki er varð­veisla menningar­arfs, skil menningar­verðmæta til annarra landa, verndar­svæði í byggð og Minja­stofnun Íslands.

    Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, nýskipaður ferðamála-, viðskipta- og menn­ingarmála­ráðherra, er sú sem fer með forræði yfir þeim menningar- og lista­málum sem voru sögð á borði Guðlaugs Þórs. 

    Mistökin fólust í því að farið var línuvillt þegar vísað var til verkefna umhverfis­ráðherrans en menningarmál er í næstu línu á eftir menningar­minjum í öðrum forseta­úrskurði þar sem verkefni hvers ráðuneytis eru talin upp. Samkvæmt upplýsingum Stundarinnar er verið að uppfæra auglýsinguna í Stjórnar­tíðindum. 

    Uppfært klukkan 11.32 til að árétta að mistök við birtingu forseta­úrskurðar höfðu ekki lagaleg áhrif á skiptingu mála­flokka á milli ráðherra.

    Kjósa
    0
    Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

    Veistu meira?

    Athugasemdir (3)

    Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

    Mest lesið

    Mest lesið

    Mest lesið í vikunni

    Mest lesið í mánuðinum

    Mest lesið í mánuðinum

    Mest lesið undanfarið ár