Rafdrifin framtíð virðist nálgast of hratt fyrir Toyota

Japanski bíla­fram­leiðandinn Toyota er sagður reyna að beita áhrifum sínum til þess að tvinn­bílar og vetnis­bílar verði hluti af orkuskipta­stefnu Biden-stjórn­ar­innar, en ekki bara hreint rafmagn.

Stærsta bíla­framleiðslu­fyrirtæki í heimi, japanski risinn Toyota, hefur í vikunni verið sagt reyna að hafa áhrif á stefnu bandarískra stjórn­valda varðandi hvata til þess að fá neytendur til að skipta yfir í rafmagns­bíla.

Í umfjöllun New York Times um málið segir að á undan­förnum mánuðum hafi fulltrúar Toyota beitt sér gegn því, á bak við tjöldin á fundum í bandaríska þinginu, að stór skref verði tekin í þá átt að reyna að draga bandaríska neytendur í átt að rafmagns­bílum.

Fulltrúi fyrir­tækisins er sagður hafa komið því áleiðis við fulltrúa á vegum þingmanna að í bílaflota náinnar framtíðar ættu bæði tvinn­bílar og bílar sem ganga fyrir vetni að vera í stærra hlutverki en þeim er ætlað í áætlunum ríkis­stjórnar Joe Biden, sem ætlar að verja milljörðum dollara á næstu árum til þess að styðja við orku­skipti í bílaflota Bandaríkja­manna. Framtíðin sem Biden-stjórnin sér fyrir sér er fyrst og fremst rafmögnuð.

Toyota er ekki bara búið að beita sér gegn eða reyna hægja á umskiptunum yfir í rafmagn í Banda­ríkjunum, heldur einnig í ríkjum ESB, Bretlandi, Indlandi og í heima­landinu Japan. Ástæðan er sögð sú að fyrir­tækið hefur dregist aftur úr keppinautum sínum hvað rafbíla varðar og setið á hliðar­línunni á meðan að fyrirtæki á borð við Tesla, Volkswagen, Nissan og fleiri hafa tekið forystu.

Toyota veðjaði á það fyrir nokkrum árum að vetnis­bílar yrðu til framtíðar aðalmálið í bíla­heiminum. Sú tækni er þegar orðin töluvert dýrari en fram­leiðsla rafhlaðna fyrir ökutæki og óvíða er hægt að fylla á tankinn með vetni.

Þetta hefur hefur sett áætlanir Toyota í uppnám. Bíla­fram­leiðandinn Honda, sem einnig sá fyrir sér vetnis­drifna framtíð, hefur þegar sett áætlanir sínar á hilluna. En Toyota hefur gripið til hagsmuna­gæslu, sem gagn­rýnendur sem New York Times ræðir við segja að gæti orðið umhverfinu skaðleg og hamlað umskiptum yfir í hreinni bílaflota.

Í yfir­lýsingu frá Toyota vegna þessa máls sagðist fyrir­tækið alls ekki vera á móti rafmagns­bílum. Það væri staðreynd að þeir væru framtíðin. Fyrir­tækið telur þó að það sem muni gerast á meðan stökkið verði tekið yfir í 100 prósent rafdrifna framtíð fái of litla athygli í umræðunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár