Kona í hjólastól þurfti að yfirgefa salinn áður en leiksýningu lauk

Skýringin sem starfs­fólk Borgar­leikhússins fékk var að akstur stæði henni ekki til boða eftir klukkan tíu á kvöldin. Aksturinn ekki á vegum ferða­þjónustu fatlaðra.

Brugðið
Brugðið Berg Þór Ing­ólfs­syni, leik­ara við Borg­ar­leik­húsið, var brugðið í gær þegar áhorf­andi í hjóla­stól þurfti að yfir­gefa leik­sýn­ingu áður en henni var lokið. Skýr­ingin sem fékkst var að áhorf­and­anum stæði ekki til boða að fá keyrslu eftir tíu á kvöldin. Ferða­þjón­usta fatl­aðra í Kópavogi og Strætó sem sinnir ferða­þjón­ust­unni fyrir hin sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu stað­festa þó að ekki hafi verið um keyrslu á þeirra vegum að ræða. Mynd: Pressphotos

Bergur Þór Ingólfsson, leikari við Borgar­leikhúsið, lýsti því í Facebook-færslu í gærkvöldi að á sýningu sem hann hafi verið að leika í hafi kona í hjólastól yfirgefið salinn fimmtán mínútum áður en sýningunni lauk. „Þegar var farið að spyrjast fyrir um hvort eitthvað alvarlegt hafi komið upp á var skýringin sú að akstur stendur henni ekki til boða eftir klukkan tíu á kvöldin. Henni er semsagt smalað upp í bíl áður en tjaldið fellur,“ skrifaði Bergur Þór. Ferða­þjónusta fatlaðra á höfuð­borgar­svæðinu segir þó að ekki hafi verið um akstur á sínum vegum að ræða.

Kristín Eysteins­dóttir Borgar­leik­hússtýra var á sýningunni og varð sömuleiðis vör við þegar konan yfirgaf salinn. „Maður tekur eftir því þegar fólk fer úr salnum og við fórum auðvitað að velta fyrir okkur hvort eitthvað hefði komið fyrir. Þá fengum við þessi svör sem Bergur lýsir. Þetta er auðvitað alveg hrikalegt og nær ekki nokkurri átt. Ég hyggst hafa samband við konuna í dag og bjóða henni að koma aftur á sýningu hjá okkur, ég vil bara að hún viti að hún er velkomin í Borgar­leikhúsið.“

Bergur Þorri Benjamínsson, formaður Sjálfs­bjargar, segir að það þessi lýsing sé eins og aftan úr fortíðinni. „Ég heyrði af svona tilvikum fyrir mörgum árum síðan en síðan þá hefur reglunum verið breytt. Þetta kemur því ansi mikið á óvart. Þetta á alla vega ekki að þurfa að gerast.“

Árið 2014 var þjónustu Ferða­þjónustu fatlaðra breytt og hún færð til miðnættis á virkum dögum. Um síðustu áramót, þegar Strætó hóf nætu­rakstur til eitt á nóttinni, var þjónusta Ferða­þjónustunnar færð til samræmis við það einnig. Ferða­þjónusta fatlaðra í Kópavogi veitir þjónustu til miðnættis á virkum dögum. 

Allt eðlilegt hjá ferðaþjónustunni

Stundin aflaði upplýsinga bæði hjá Ferða­þjónustu fatlaðra í Kópavogi og hjá Strætó bs. sem sinnir ferða­þjónustu fatlaðra fyrir önnur sveitar­félög á höfuð­borgar­svæðinu. Í báðum tilfellum var hægt að staðfesta að ekkert hefði farið úrskeiðis hvað varðar ferða­þjónustuna. Enginn akstur var þannig hjá Ferða­þjónustu fatlaðra í Kópavogi frá Borgar­leikhúsinu í gærkvöldi. Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsinga­fulltrúi Strætó, segir að þar á bæ hafi verið kannað hvort um akstur á þeirra vegum hafi verið að ræða. Ein ferð hafi verið farin frá Borgar­leikhúsinu, um klukkan korter yfir tíu. „Við erum búin að staðfesta að þetta hafi ekki verið ferð á okkar vegum. Við höfðum samband við farþegann í þeirri ferð sem svaraði því til að allt hefði gengið vel og verið eðlilegt.“

Stundin hefur ekki náð sambandi við konuna sem um ræðir.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár