Ótrúlegar hækkanir stóru tæknifyrirtækjanna

Jeff Bezos, stofnandi og forstjóri Amazon, er orðinn ríkasti maður heims. Hann fór fram úr nágranna sínum við Lake Washington á Seattle svæðinu, Bill Gates, eftir miklar hækkanir á hluta­bréfum.

Markaðs­virði Amazon jókst um rúmlega 13 prósent í dag, í ótrúlegum hækkunum stóru tækni­fyrir­tækjanna á hlutabréfa­markaði í Banda­ríkjunum.

Jeff Bezos, forstjóri og stofnandi Amazon, varð við þessa hækkun ríkasti maður heims en eignir hans eru nú metnar á meira en 90 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 9.450 milljörðum króna.

Stærstur hluti eigna hans er bundinn við Amazon, en hann á ennþá ríflega 17 prósent hlut í félaginu.

Næstur á eftir honum í röðinni er nágranni hans við Lake Washington í útjaðri Seattle, Bill Gates, sem stofnandi Microsoft með Paul Allen, en eignir hans eru metnar á um 88,5 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 9 þúsund milljörðum króna.

Markaðs­virði Amazon er nú 528,8 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur 55 þúsund milljörðum króna.

Verðmæti Apple, verð­mætasta hluta­félags heims, hækkaði um 3,58 prósent í dag, og nemur markaðs­virði félagsins nú 842 milljörðum króna, eða sem nemur um 90 þúsund milljörðum króna.

Grein­endur spá því, að Apple gæti fyrr eða síðar, náð því að vera með verðmiða upp á meira en eitt þúsund milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 105 þúsund milljarða króna.

Alphabet (Google) hækkaði um rúmlega 4 prósent í viðskiptum dagsins, og nemur markaðs­virði félagsins nú tæplega 710 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 75 þúsund milljörðum króna.

Verð­miðinn á Microsoft hækkaði einnig mikið í dag, eða um 6,4 prósent. Verð­miðinn á félaginu er nú kominn upp í 646 milljarða Bandaríkjadal, eða sem nemur um 70 þúsund milljarða króna.

Óhætt er að segja hluthafar þessara félaga hafi ávaxtað eignir sínar vel að undan­förnu, en öll þessi félög eru nú fjögur verð­mætustu hluta­félög heimsins. Amazon og Microsoft eru með höfuð­stöðvar í Seattle en Apple og Alphabet í Kaliforníu, og teljast til helstu flagg­skipa Sílikondalsins. Öll félögin eru því með hjartað í starfseminni á Vestur­strönd Banda­ríkjanna.

Facebook er síðan fimmta stærsta fyrir­tækið, með verðmiða upp á 516 milljarða Bandaríkjdala, 54 þúsund milljarða króna, en hlutabréf þess hækkuðu um meira en 4 prósent í dag.

Það er með höfuð­stöðvar í Sílikondalnum í Kaliforníu.

Ástæðan fyrir hækkunum í dag eru sagðar góðar rekstrar­tölur, sem komu grein­endum og fjár­festum á óvart, og jafnvel enn hraðari uppbygging - almennt á litið - en búist hafi verið við, áður en rekstrar­uppgjör fyrir síðustu þrjá mánuði voru kynnt, að því er segir í umfjöllun CNBC.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár