Stormasöm vika í evrópskum stjórnmálum

Mögulegt áframhald „Merkelisma“ í Þýska­landi, barnabóta­skandall hjá „teflon Mark“ í Hollandi og stjórnar­kreppa af völdum smáflokks á Ítalíu er á meðal þess sem var efst á baugi í evrópskum stjórn­málum í vikunni.

Armin Laschet er nýr leiðtogi flokks Kristilegra demókrata, sem hefur tögl og haldir í þýskum stjórnmálum. Kannski tekur hann við af Merkel sem kanslari í haust.
Armin Laschet er nýr leið­togi flokks Kristi­legra demókrata, sem hefur tögl og haldir í þýskum stjórn­málum. Kannski tekur hann við af Merkel sem kansl­ari í haust. Mynd: EPA

Vikan sem er að klárast hefur verið viðburðarík í evrópskum stjórn­málum. Skandalar og stjórnar­slit, dómsmál og valda­skipti. Kjarninn tók saman nokkra mola um það sem átti sér stað á stjórnmála­sviðinu í álfunni – og ekki tengdist COVID – í þessari viku.

Áframhald „Merkelisma“ í Þýskalandi?

Í dag var Armin Laschet kjörinn nýr leiðtogi Kristilegra demókrata (CDU) í Þýska­landi í stað Annegret Kramp-Karrenbauer, sem tók við leiðtoga­hlutverki flokksins af Angelu Merkel Þýska­lands­kanslara fyrir röskum tveimur árum. Af 1.001 fulltrúa á flokks­þinginu sem öllu ræður studdu 521 Laschet til forystu.

Ekki er þó öruggt að Laschet auðnist að verða útnefndur kanslara­efni flokksins áður er Þjóð­verjar ganga til kosninga í haust, en sú ákvörðun verður tekin af flokknum á vordögum. Fleiri gætu blandað sér í þá baráttu, en CDU hefur yfirburða­stöðu í skoðana­könnunum og teljast má líklegt að næsti kanslari komi úr röðum flokksins.

Laschet, sem er dyggur stuðnings­maður Merkel, sagði í kosninga­baráttu sinni fyrir leiðtoga­kjörið að stefnu­breyting í flokks­forystunni myndi „senda alröng skilaboð“. Flestir telja að hann boði áframhald „Merkelisma“ innan Kristilegra demókrata og hann dró engan dul á það sjálfur í viðtali við Politico sem birtist í september.

Það styttist í brott­hvarf Merkel af stjórnmála­sviðinu, en hún hefur verið alltumlykjandi í evrópskum stjórn­málum frá því að hún varð kanslari fyrir 16 árum síðan. Ljóst er að hvort sem Laschet eða einhver annar verður kanslara­efni CDU verður skarðið sem þarf að fylla stórt.

Stjórnarkreppa á Ítalíu

Það er sjaldnast lognmolla yfir stjórn­málum á Ítalíu. Þar hafa heilar sextíu og sex ríkis­stjórnir setið frá því að lýðveldið var stofnað árið 1948. Í vikunni varð enn á ný stjórnar­kreppa þegar Matteo Renzi, fyrr­verandi forsætis­ráðherra, sagði flokk sinn frá ríkis­stjórnar­samstarfi undir forsæti Giuseppe Conte.

Flokkur Renzi, Italia Viva, hafði verið minnsti flokkurinn í samstarfi við Fimm­stjörnu­hreyfingu Matteos Salvini og Lýðræðis­flokk Conte og hefur verið að mælast með 2-3 prósent atkvæða í skoðana­könnunum upp á síðkastið.

Ástæðan fyrir því að flokkurinn hætti í samstarfinu var óánægja með efnahags­áætlunina sem teiknuð hefur verið upp til þess að takast á við áhrif heims­faraldursins. Óljóst er enn hvernig þeir flokkar sem eftir standa í ríkis­stjórnar­samstarfinu ætla að leysa úr stöðunni.

Barnabótaskandall fellir hollensku stjórnina

Mark Rutte forsætis­ráðherra Hollands hjólaði á fund konungs á föstudag og baðst lausnar fyrir ríkis­stjórn sína. Ástæðan er barnabóta­skandall, en opinber skýrsla sem birt var í desember sýndi fram á að skatta­yfirvöld höfðu gengið rangt fram gagnvart tugþúsundum foreldra á 2013 til 2019, sakað þá um svik og krafist endur­greiðslna.

Málið er þó eilítið undarlegt, þar sem skandallinn er að mestu talinn á ábyrgð annarra en þeirra sem nú sitja í ríkis­stjórn. Einn ráðherra sagði af sér þegar blaðamenn komu upp um málið árið 2019.

Afleiðingarnar af þessu máli hafa verið grafal­varlegar fyrir þúsundir fjöl­skyldna, sem jafnvel voru krafðar um að endur­greiða tugi þúsunda evra til skattsins. Líf þeirra voru lögð í rúst með ranglæti af hálfu yfirvalda.

Lodewijk Asscher, leiðtogi hollenska Verkamanna­flokksins og félagsmála­ráðherra í fyrri ríkis­stjórn, sagði af sér flokks­formennsku á fimmtudag þar sem hann vildi ekki að umræður um hans ábyrgð á þessu máli sköðuðu flokkinn í komandi kosninga­baráttu.

Kosningar í Hollandi fara fram eftir tvo mánuði. Mark Rutte mun fara fram á ný sem leiðtogi flokks síns, sem spáð er sigri í kosningunum og fleiri þing­mönnum en þegar síðast var kosið árið 2017. Fjögurra flokka ríkis­stjórn hans mun sitja til bráða­birgða fram að kosningum.

Sænskir jafnaðarmenn ekki stærstir

Það heyrir nánast til tíðinda þegar Sósíal­demókrata­flokkurinn í Svíþjóð er ekki sá flokkur sem mælist með mest fylgi í skoðana­könnunum.

Það gerðist í vikunni – en þá birti Aftonbladet könnun frá könnunar­fyrirtækinu Demoskop sem leiddi í ljós að mið-hægri flokkurinn Moderatarna væri með mest fylgi kjósenda, eða 23,2 prósent á móti 23 prósentum Sósíal­demókrata.

Þó að allt sé þetta innan skekkju­marka þykir þetta ekki góð byrjun á árinu fyrir Stefan Löfven og aðra jafnaðar­menn, sem hafa átt í vök að verjast að undan­förnu vegna viðbragða Svía vegna kórónu­veiru­faraldursins.

Kona fyrrverandi ráðherra dæmd fyrir að ógna lýðræðinu

Laila Anita Bertheussen, sambýlis­kona Tor Mikk­el Wara fyrr­verandi dómsmála­ráðherra Noregs, var í gær dæmd í 20 mánaða fangelsi fyrir að ógna lýðræðinu með því að sviðsetja árásir á eigið heimili.

Norskir saksókn­arar telja sig fullvissa um að Berthuessen hafi sjálf staðið að því að kveikja í eigin bíl og vinna skemmdar­verk á húsi þeirra Wara. Meðal annars var hakakross spreyjaður á húsið. Dómari í Ósló tók undir þetta og dæmdi Berthuessen í fangelsi, sem áður segir.

Wara sagði af sér embætti dómsmála­ráðherra þegar ljóst varð að lögregla væri að rannsaka þátt konu hans í skemmdar­verkunum árið 2019. Hann bar vitni við réttar­höldin og sagðist telja konu sína saklausa. Það sama sagði hún sjálf og hefur þegar áfrýjað niður­stöðunni.

Áður en gefið var út að Berthuessen væri til rann­sóknar hafði Wara sagt skemmdar­verkin og bílbrunann árás gegn lýðræðinu. Hann hafði verið umdeildur fyrir störf sín, ekki síst hvað varðar málefni innflytjenda.

Saksókn­arar töldu að Berthuessen hefði með framferði sínu reynt að skapa samúð í garð Wara, en Berthuessen hélt því fram að hún teldi hóp fólks sem berst gegn rasisma hafa framið skemmdar­verkin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár